Entries from nóvember 2008
nóvember 30, 2008 · 1 ummæli
Flex félagar eru með skemmtilega pælingu í gangi:
Plötusnúðar og tónlistarmenn sem eru þarna úti og hafa áhuga á að koma fram í útvarpi geta tekið þátt í skemmtilegri keppni.
Það eina sem þú þarft að gera er að senda inn syrpu á flex@flex.is sem er 30 – 60 mín að lengd. Í póstinum þarf að taka fram hvernig syrpan var sett saman, þaes. hvernig búnaður var notaður. Gaman væri að fá mynd af aðstöðunni en það er ekki nauðsynlegt.
Flott hugmynd sem virðist vera að fá fínar undirtektir. Að mínu mati mun líklegri til þess að skila árangri en “alvöru” live dj keppni myndi gera um þessar mundir, erfitt að ná grúskurunum úr svefnherberginu.
Flokkar: íslenskt
Tagged: dj keppni, flex, syrpur, xið
nóvember 28, 2008 · 2 Ummæli
Reynt verður að mæla með atburðum hverja helgi, það er að segja ef við finnum eitthvað til að mæla með.
Jack Schidt spilar ásamt hinni þýsku Factory Girl á Kaffi Cultura annað kvöld.

Gullkálfurinn Jack Schidt
Eins og flestir (ættu að) vita er Jack Schidt annað nafn yfir Margeir sem er einn af elstu og virtustu plötusnúðum landsins. Factory Girl veit ég svosem ekkert um, annað en það að hún er hjá sama booking agency og Margeir og Steed Lord. Því má örugglega búast við þrusukvöldi á Kultura sem virðist vera breyta um stefnu og verða einn af skemmtilegri skemmtistöðum borgarinnar.
Einnig mæli ég með að fólki hlusti á Party Zone á laugardagskvöldið. Gestasnúður þáttarins er enginn annar en Asli sem er búinn að lofa því að spila ,,neðanjarðar diskó perlur”, sem er góð tilbreyting frá ,,helvítis technoinu”.
Flokkar: Helgin · íslenskt
Tagged: Asli, Cultura, Disko, Factory Girl, Margeir, Party Zone
Eða um 16 milljónir íslenskra króna? Ef svo er þá geturðu keypt plötusafnið hans Mr. C. Reyndar máttu sennilega ekki flytja svona mikinn gjaldeyri úr landi á þessum síðustu og verstu tímum þannig að það nær kannski ekki lengra…
Flokkar: fréttir
Tagged: ebay, mr c, plötur, vínyll
Í liðnum “syrpu syrpa” ætlum við að benda á skemmtileg dj mix sem hafa orðið á vegi okkar á veraldarvefnum síðustu daga. Það er alltaf nóg af skemmtilegum syrpum til þess að hlusta á, satt best að segja er erfitt að komast yfir þetta allt saman en hér er fyrsti skammtur.
Metro Area
Írsku töffararnir hjá Bodytonic eru með tvö skemmtileg mix í podcastinu sínu, alvöru Berlínar techno frá Marcell Dettman og æðislegt diskó grúv hjá Metro Area. Ef þið fílið fyrra mixið er óhætt að mæla með Berghain mix disknum sem Dettmann setti saman fyrr í ár en ef þið dönsuðuð diskó við Metro Area er óhætt að mæla með Fabric disknum þeirra sem var að koma í verslanir.
Snobbararnir og elítistarnir hjá Infinite State Machine settu inn mix frá Chicago búanum m50, kann ekki nánari deili á þeim peyja en góðan smekk hefur hann. Syrpan inniheldur lög frá ekki ómerkari mönnum en Model 500, Theo Parrish og Moodymann. Ekki er svo verra að þarna er einnig laumað inn gömlum smelli frá Exos, áfram Ísland! Tjekkið á þessari syrpu, sem hefur hlotið nafnið “Trying to Stay Hopeful”, hér.
Appleblim
Síðast en alls ekki síst er sett af pirate stöðinni Rinse FM frá Appleblim. Síðasta Rinse FM settið hans var valið mix ársins af FACT magazine, RA podcastið hans í sumar var frábært og Dubstep All Stars diskurinn hans er einn sá besti í seríunni. Einn merkilegasti pródúserinn, plötusnúðurinn og label eigandinn í dubstep senunni með sett sem nær yfir hardcore, dnb, techno og klassíska tónlist. Ekki missa af þessu
Flokkar: Syrpu Syrpa
Tagged: syrpur, mix, appleblim, metro area, bodytonic, marcel dettmann, m50
nóvember 26, 2008 · 1 ummæli

The Mountain People
Mountain 006
MOUNTAIN 006
Mountain People
Deep House / Minimal
3/5
Félagarnir Serafín og Rozzo sem báðir eru þungavigtarmenn í housinu mynda duoið Mountain People. Í fyrra gáfu þeir út tvær 12″ undir þessu nafni, báðar þessar 12″ rötuðu á topplistana hjá plötusnúðum víðsvegar um heiminn, meðal annars hjá hinum þýsku Ame og tecno konunginum Ricardo Villalobos.
Á Mountain 006 er að finna tvö lög sem heita þeim frumlegu nöfnum Mountain 006.1 og Mountain 006.2(ef platan er keypt á beatport er einnig að finna auka lag). Bæði lögin minna mikið á fyrri lög dúosins, mikið percussion og mikill tech house fílingur. Þó að lögin séu bæði mjög groovy, þá eru þau keimlík og frekar . Hér legg ég þó áherslu á groovy, þá sérstaklega Mountain 006.2.
Ég efast ekki um að bæði lögin verði spiluð í gríð og erg næsta mánuðinn, enda vel produceruð lög og Mountain People orðnir vel þekktir í bransanum . Eftirminnilega verða þau þó örugglega ekki þar sem þau eru of lík flestu öðru sem er að gera í deep housinu í dag.
Tóndæmi:
The Mountain People – Mountain 006.1
The Mountain People – Mountain 006.2
Kaupa
plötu: Juno | Phonica
mp3: Beatport
Flokkar: Plötudómar
Tagged: Beatport, Deep House, Groovy, Monuntain People, Tech House

Aðstandendur Weirdcore kvöldana hafa sett saman skemmtilega safnskífu með íslenskum raftónlistaröktum og er hún fáanleg fríkeypis á www.weirdcore.com. Inniheldur gripurinn lög frá listamönnum á borð við Biogen, Frank Murder, Tonik, Ruxpin og Skurken, svo fáeinir séu nefndir. Frábært framtak og sömu sögu er að segja um Weirdcore kvöldin, mánaðarleg tónlistarkvöld þar sem íslenskir raftónlistarmann af ýmsum toga stíga á stokk.
Hlekkir:
www.myspace.com/weirdcorervk
www.weirdcore.com
Flokkar: íslenskt
Tagged: íslenskt, biogen, frank murder, freep3, ruxpin, skurken, tonik, weirdcore
nóvember 25, 2008 · 1 ummæli
Árslista árstíðin komin í gang! Tónlistar vefritið Fact ríður á vaðið með lista yfir bestu mix ársins 2008. Hver eru uppáhalds mixin ykkar frá árinu sem er að líða (þótt það sé rúmlega 1/12 af því eftir)?
Flokkar: linkar
Tagged: fact mix listar 2008