DansiDans.com – Raf- og danstónlist á Íslandi

Entries from desember 2008

Topp 10 – desember 2008

desember 28, 2008 · Rita ummæli

Magnús Felix

  1. Minilogue – Doiice A (Minilogue)
  2. Pépé Bradock – Mandragore (Atavisme)
  3. Matthew Dear – Elementary Lover (Dj Koze rmx) (Ghostly International)
  4. Matthew Styles – We said nothing (Diamonds)
  5. Stimming – Kleine Nachtmusik (Buzzin´fly)
  6. Willie Ninja – Hot (MAW bonus beats) (Nervous Old Skool)
  7. Justin Martin – My Angelic Deamons (Buzzin´fly)
  8. Damian Schwartz – Barrunto (Oslo)
  9. Martinez – Chi Town 60661 (LoMidHigh organic)
  10. Rozzo – Meta001.2 (Trackdown records)

Kalli

1.    Ýmsir – DAT Music 2 (Soul:R)
2.    Ýmsir – Soundboy’s Gravestone Gets Desecrated By Vandals (Skull Disco)
3.    2562 – Embrace (3024)
4.    Kode9 – Bad (Hyperdub)
5.    Flying Lotus – LA Epx2 (Warp)
6.    Jose James – Desire (Moodymann Remix) (Brownswood)
7.    Ian Brown – Illegal Attacks (Rufige Kru Remix) (FreeP3)
8.    Move D – Cube (Running Back)
9.    Yagya – Coconut Rice (Sutemos)
10.    Peverelist – Clunk Click Every Trip (Punch Drunk)

 

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine :  :  : TailRank : post to facebook

Flokkar: listar
Tagged: , , , , ,

Jólagjöfin í ár!

desember 27, 2008 · 1 ummæli

MP3 fælar eru frekar léleg jólagjöf, en samt sem áður eru nokkrir ágætis listamenn og útgáfufyrirtæki í jólastemningu og ætla að eyða dýrmætri bandvídd og forlátum empéþrír skrám í sauðsvartan almúgan!

Kimi eru með jólagjöf sem er ekkert svo danstónlistartengd en ágætis músík engu að síður og svo er líka gott að velja íslenskt! Rufige Kru (aka Goldie) og Metalheadz bjóða upp á remix af Ian Brown. Þeir sem hafa enn trú og traust á M_nus geta fundið hringitóna og mp3 lög undir jólatrénu hjá Richie Hawtin og co. Listamaðurinn með skemmtilega nafnið, Ramadanman, tók svo til á harða disknum hjá sér og gaf gestum og gangandi tvö lög. Sutemos eru með fría safnskífu, Intelligent Toys 5.

RCRD LBL og Flying Lotus bjóða upp á remix af Kanye West (sem er einhver mest óþolandi popp stjarna samtímans btw) og Boys Noize eru líka með frítt stuff fyrir þá sem eru í þannig gír. Að lokum er vert að minnast aftur á frípíþrí framtak Zero Inch en þeir gefa nýtt lag á hverjum degi. Ef þú veist um fleiri vefsíður sem eru í jólagjafa-skapi væri fínt að fá linka í athugasemdirnar.

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: mp3
Tagged: , , , , , , ,

Ársuppgjör

desember 22, 2008 · 2 Ummæli

Árslistabrjálæðið farið í fullan gang. Resident Advisor eru búnir að birta alla sína lista fyrir utan lagalistan sem kemur eflaust inn á næstu dögum. Kom svo sem ekki mikið á óvart hjá þeim þetta árið en Berghain/Ostgut Ton crewið er ótvíræður sigurvegari.

Berghain

Þeir vinna label ársins og eru með breiðskífu ársins (Shed – Shedding the Past) auk þess sem Prosumer & Murat Tepeli breiðskífan var í 11. sæti. Þá ratar Marcel Dettmann í 11. sæti í dj kosningunni sennilega að mestu leiti útaf Berghain mixdisknum sem hann setti saman en sá var kosin besta safnskífan. Fyrr í ár var svo Berghain/PanoramaBar kosinn besti klúbbur í heimi. Þessir Berlínarbúar eru að uppskera vel og næsta ár fer vel af stað með Ben Klock breiðskífu í jan/feb.

Ricardo Villalobos er besti plötusnúðurinn í heiminum skv. notendum Resident Advisor. Kom engum á óvart en fannst eiginlega skrítið að það væri ekki meiri vídd í listanum miðað við allan þann fjölda sem kaus.

Beatportal fá valinkunna listamenn úr hverjum geira til þess að gera upp árið og eru svo með sína eigin lista líka. Bæði breiðskífu og smáskífulistinn þeirra fara eiginlega bara undir house & techno, ekkert dubstep? dnb? trance?

Þá eru Fact með öllu víðari lista, breiðskífu- og lagalista og svo eru Little White Earbuds með óhefðbundnari lista í gangi, gaman að renna yfir þá.

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: listar
Tagged: , , , , , ,

Syrpu Syrpa #4

desember 18, 2008 · Rita ummæli

Fyrsta mixið í plötusnúningakeppni Flex er dottið inn. House mix frá BenSol. Það er ennþá nógur tími til þess að taka þátt.

To the The Bone er með 2 hörkumix , annars vegar frá þýsku deep house plötusnúðunni Steffi  og hins vegar frá plötusnúðnum Charlie TTB.

Resident Advisor podcastið er soldið hit and miss en Motor City Drum Ensemble mixið frá því í síðustu viku var frábært og Trus’me mixið lítur vel út líka.

Að lokum má svo tjekka á bestu mixum ársins 2008 að mati Little White Earbuds hér. Við ættum kannski að gera syrpu syrpu ársins 2008 hérna við tækifæri…

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: Syrpu Syrpa
Tagged: , , , , , , , ,

Create Digital Music gefur út blað

desember 16, 2008 · Rita ummæli

Tónlistarbloggsíðan www.createdigitalmusic.com var að gefa út blað.Blaðið í föstu formi kostar en hægt er að nálgast á fría pdf útgáfu af blaðinu á þessari slóð. Mæli sterklega með að þeir sem hafi áhuga á að búa til raftónlist kíkji á þetta, þar sem það er margt merkilegt í þessu.

cdmwinter_contents

Flokkar: fréttir
Tagged: , , ,

Ferða-lög

desember 16, 2008 · 4 Ummæli

Í mínum vinahóp er stundum talað um ferðalagið þ.e. síðasta lagið áður en maður fer út (oftar en ekki á djammið). Þegar maður velur ferðalag er mikilvægt að velja rétt og þar spila margir þættir inn í, eins og oft þegar um lagaval er að ræða. Á íslensku væri kannski rétt að tala um ferðalög í tengslum við þessa safnskífu pælingu hjá Get Physical, nú eða kannski Loka Lög, skiptir ekki öllu.
“hvaða lag viltu láta spila í jarðaförinni þinni?” er auðvitað gömul klisja en þetta er samt skemmtileg pæling og flott að setja saman heila plötu með þessu.  En ég er líka sammála Resident Advisor í því að sennilega er einna skemmtilegast að fá að heyra um ástæður fyrir valinu hjá hverjum og einum. Svo er þetta skemmtilega fjölbreyttur listi af plötusnúðum, ekki bara þýskt techno lið.

Sumt skrítið þarna samt, er ekki “Golden Brown” um heróín? Af hverju vill DJ Hell láta spila það? Chloé velur lag með sjálfri sér og Kevin Saundersson lagið er einhvern vegin útúr kú. Skal ekki segja. Þarf að lokum varla að taka það fram að gaman væri að heyra hvaða lög lesendur myndu velja í athugasemdum. Þarf aðeins að melta það sjálfur, dettur ekkert sniðugt í hug núna allavega.

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: fréttir
Tagged: , ,

Meira P Diddy

desember 15, 2008 · 5 Ummæli

Fór að leita að 2 Many DJ’s Essential Mixi frá 2005 eftir að hafa lesið síðustu færslu, skemmtilegt mix en sérstaklega minnistætt fyrir accapellu frá Puffy. Alger klassík þar sem kauði ruglar mjög samhengislaust um ást, plötusnúða sem spila 20 mínútna útgáfur af lögum, “the after hours spots” og sitt lítið fleira. Erfitt að lýsa þessu tjekkið bara á mp3 af þessu hér. Þessi ástríða hans fyrir “20 minute versions” útskýrir kannski afhverju hann er að hanga með Villalobos?

If you going to be out that late you might as well be doing something…

Fáránlega gott stuff! Annars soldið forvitnilegt að þegar ég fór að gúgla og leita af þessu mixi þá rakst ég fyrst á upptöku frá því að mixið var endurspilað sem “classic essential mix”, Annie Mac er að kynna í staðinn fyrir Pete Tong og viti menn á þeirri útgáfu er búið að klippa Puffy út! Hrikaleg ritskoðun og gerir mixið mun verra (svona fyrir utan það hvað þetta mashup dæmi er þreytt árið 2008). Ég þurfti að nota alla mína interwebs skills í að finna upphaflegu útgáfuna frá 2005 og grafa upp þessi gullkorn frá Sean “P Diddy” “Puffy” “Puff Daddy” Combs.

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: mp3
Tagged: , , , , ,

P.Diddy og danstónlist

desember 13, 2008 · 4 Ummæli

Fyrr um árið spiluðu  Claude VonStrokeThe Martinez Brothers og Steve Angello með P.diddy  í partýi á Miami WMC. P.Diddy var óður í að fá að spila á WMC þar sem honum fannst svona samkomur vera á niðurleið eða eins og hann sagði

“Honestly, the reason I’m doing The Main Event is because I’m not impressed with what I’ve been hearing recently, A music conference is supposed to be about freshness and innovation and a remarkable music experience. Sadly, I feel that the last couple of conferences have lacked innovation. This party is not for commercial dance music muthf*%kas”.

Þetta kvöld var að margra mati mjög hallærislega þar sem P.Diddy var einhvers konar ,,hype maður” fyrir plötusnúðana, hoppaði um sviðið  til að fá athygli.

Ég hélt að þetta væri eitthvað one time thing hjá Diddy en ég um daginn rakst ég á þessa mynd.

ricardo

Síðan hvenar fór Ricardo að spila back2back með P.diddy ?

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: pælingar
Tagged: , , , ,

Jútjúb Miksteip #2 – Lögin sem fóru algjörlega framhjá mér

desember 11, 2008 · 6 Ummæli

Í þessu jútjúb miksteipi eru lög sem voru mikið spiluð þetta árið en ég einhvern veginn lærði ekki að meta þau fyrr en núna bara upp á síðkastið.

1. Audion – Billy says go
Jónfrí benti mér á þetta lag á sínum tíma og ég fílaði það ekki neitt. Heyrði Ellen Allien spila það á Melt Festival og fílaði það ekki heldur, Það var ekki fyrr en í október þegar ég var að stússast á beatport að ég rakst á það og lærði að meta það. Groove-ið í þessu lagi er geðveikt og ekki skemmir þetta sérstaka “Audion bassatromma” fyrir. Eitt af lögum ársins að mínu mati.


2.DJ Koze – I want to sleep
Þetta lag var á listum frábærra plötusnúða eins og t.d. Sebo K. Ég hlustaði á þetta lag og skildi ekki hvað þessir plötusnúðar sáu við það. Síðan las ég viðtal við Koze og ákvað þess vegna að skoða myspacið hans. Það varð til þess að ég uppgötvaði þetta lag. Á myspacinu hans er einnig að finna remixið hans af Matthew Dear laginu Elementary lover sem er geðveikt.


3.Ricardo Villalobos – Enfants
Lagið sem gerði allt vitlaust í byrjun árs. Lagið er 17 mínutur og stærsti hluti þess er chílenskur barnakór að syngja. Keypti eintak í Berlín en gaf það þar sem ég sá ekki fram á að eiga eftir að spila það. Rakst á það í mixi um daginn og sé núna mikið eftir að hafa gefið plötuna.


4.Noze – Remember Love
Noze gerðu allt vitlaust á sínum tíma voru meðal annar með besta ,,actið” á Íbiza að margra mati. Platan þeirra On the rocks var kom út í ár á ofurlabelinu Get Physical. Heyrði RA podcastið þeirra í sumar og var ekkert vitlaus í það. Svo um daginn var ég að sýna einhverjum hvað house gæti verið fínt live acti og það varð til þess að ég hlustaði á þetta mix aftur og keypti diskinn. Diskurinn er mjög góður, sérstaklega lagið Remember Love.

5.SiS – Trompeta
Ógeðslega cheesy loopa endurtekinn yfir rosalega miklu percussioni. Margi hafa líkt Trompeta við Heater sem gerði allt vitlaust í fyrra. Í fyrstu fannst mér þetta of cheesy og týpiskt. En svo komst ég að því að þetta lag er geðveikt ef rétt er farið með það í mixi.

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: Jútjúb Miksteip
Tagged: , , , , , , , , ,

Syrpu Syrpa #3

desember 10, 2008 · Rita ummæli

Alltaf er nóg til af plötusnúðum að setja saman syrpur og henda þeim á veraldarvefinn!

Hinn finnski Fanu henti í eitt heitt drum & bass mix, soldið í þeim drumfunk stíl sem hann er þekktur fyrir.

Mary Anne Hobbs fékk dubsteppandi Bristolbúa í heimsókn í hljóðver Radio 1, á eftir að tjekka á þessu en nöfnin sem koma við sögu eru nóg til þess að fullvissa mig um að þetta sé killer þáttur. Svo er tónlistarleg arfleifð Bristol langt frá því að vera ómerkileg. (MP3 download hér)

Fyrir þá eru að leita af gömlu og góðu má finna safn af gömlum WBMX syrpum frá 9. áratugnum hér. WBMX er útvarpsstöð í Chicago sem var meðal annars heimili hins goðsagnakennda mix þáttar Hot Mix Five og átti stóran þátt í uppgangi house tónlistarinnar. Fleiri mix af þessu tagi auk ýmis konar danstónlistar sagnfræði má svo finna á hinni stórskemmtilegu Deephousepage.com.

Þá komst ég loks í það að hlusta á settið sem Scuba gerði fyrir XLR8R, skemmtileg syrpa. Remixin af breiðskífunni hans sem eru að koma út þessa dagana eru líka alveg frábær, sýna hversu fjölbreytt og skemmtilegt dubsteppið er þessa dagana.

Að lokum ætla ég að plögga sjálfan mig og mixið sem ég gerði fyrir PZ í síðustu viku, það má finna hér og tracklisti er hér.

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: Syrpu Syrpa
Tagged: , , , , , , , , , ,