DansiDans.com – Raf- og danstónlist á Íslandi

Entries from janúar 2009

Helgin 30.janúar – 1.febrúar

janúar 30, 2009 · Rita ummæli

mynd_0514812

 

Það er nátturulega einn hlutur sem stendur uppúr þessa helgina en það er Árslistakvöld Party Zone, en á laugardaginn milli 19:30 og 24 munu þeir Helgi Már og Kristján Helgi munu fara yfir 40 bestu lög ársins. Síðan verður haldið partý á Jacobsen sem opnaði síðustu helgi og lofar góðu.Belgíska dúóið Aeroplane verða aðalnúmer kvöldsins en Andrés Nielsen, Fjordfunk og FKNHNDSM munu einnig vera bakvið spilarana.Meiri upplýsingar um árslistakvöldið má finna hér.Einnig hefur heyrt að Aeroplane muni spila á Kaffibarnum í kvöld.

Ekkert annað virðist vera um að vera um helgina í danstónlistinn en ef þið vitið  um eitthvað endilega commentið eða sendið okkur póst á dansidans@dansidans.com

 

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine :  :  : TailRank : post to facebook

Flokkar: Helgin · íslenskt
Tagged: , , , ,

Syrpu Syrpa #8

janúar 28, 2009 · 6 Ummæli

Tim Sweeney

Íslandsvinurinn Tim Sweeney hefur um árabil haldið úti útvarpsþættinum Beats In Space og í síðasta þætti tók hann fyrir árið 2008. Disco/House/Dansrokks fílingur hjá honum enda er hann eitthvað bendlaður við DFA. Góður þáttur og ég mæli líka með podcastinu.  (p.s. Ég held alveg örugglega að ég sé ekkert að rugla þegar ég segi að hann hafi spilað í Reykjavík en man það samt bara óljóst. Kannski 2006 eða 2007, á Barnum. Getur það ekki passað?)

dBridge og Instra:Mental fóru af stað með nýtt podcast undir merkjum Club Autonomics. Þetta er samt ekkert podcast því það er ekki hægt að gerast áskrifandi af því, en burtséð frá þeim misskilningi er þetta frábært framtak! Þetta þríeyki er að gera einhverja mest spennandi hluti í drum & bass heiminum í dag og í þessu “podcasti” spila þeir eldri lög sem hafa haft áhrif á þá í gegnum árin auk þess sem þeir taka syrpu af spánýju dóti. Algert killer sett!

Domu var í gamla daga þekktur sem Sonar Circle og gaf út drum & bass hjá Reinforced en undanfarin ár hefur hann verið viðriðin hina illskilgreinanlegu broken beats senu. Hann smellti tveimur mixum á vefsíðu sína um daginn, eclectic pælingar í gangi, flott stuff.

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: Syrpu Syrpa
Tagged: , , , , , ,

Árslistar – frh.

janúar 28, 2009 · 1 ummæli

Tek hérna power post, 40 lög og 10 breiðskífu/safnskífur/endurútgáfur. Að fordæmi Magnúsar ætla ég að segja nokkur orð um efstu sætin hjá mér.

Lög:

1. TRG – Broken Heart (Martyn Remix) (Hessle Audio)
Martyn átti rosalegt ár í fyrra og þetta remix stóð upp úr, tók techno-dubstep pælinguna í nýjar víddir, detroit synthar, broken beat legar trommur, dubstep bassi og síðast en ekki síst þessir voxar! Nóg af lögum frá honum hér neðar á listanum og á næstunni er væntanleg breiðskífa frá honum sem hefur hlotið nafnið “Great Lengths”.

2. Hercules & Love Affair – Blind (Frankie Knuckles Dub Mix) (DFA)
Ég veit eiginlega ekki alveg hvað mér finnst um Hercules & Love Affair. Fyrst fannst mér þetta góð pæling, catchy og skemmtilegt diskó pop með house/techno áhrifum, en breiðskífan fannst mér ekki jafn eftirminnileg eins og margir vilja meina. En þetta mix frá Frankie Knuckles smellir “Blind” í Paradise Garage house fíling, venjulega er svona dót ekki minn bolli af te, en þetta er alveg fáránlega gott grúv!

3. Shed – Warped Mind (Ostgut Ton)
Soldið öðruvísi grúv hér á ferðinni en gott engu að síður. Ekki mikið í gangi en þessi syntha lína rúllar áfram, mega næs, gamalt og nýtt sánd í einum pakka. Alvöru techno.

4. Pangea – Router (Hessle)
Annar dubstep hybrid slagari. Tregablandnir tónar og vókal sampl sem ætti ekki að passa inn en gerir það samt. Gæsahúð.

5. Martyn – All I have is Memories (Applepips)
Martyn í uk garage fíling á labelinu hans Appleblim.

6. Johnny D – Orbitallife (Oslo)
Ekki flókið, tveggja tóna bassalína, óskiljanlegur söngur og Ferris Bueller sampl. Stuð.

7. Instra:Mental – Sakura (Darkestral)
Instra:Mental héldu áfram að koma með nýjar pælingar í drum & bass heiminn, sem er sjaldgæft orðið. “Sakura” er fallegt lag í analogue electro fíling.

8. Flying Lotus feat. Roberta Flack – Dolly (Warp)
Fly Lo. Besta lagið af Los Angeles breiðskífunni.

9. Prosumer & Murat Tepeli – Believe (Vocal Mix) (Ostgut Ton)
Meira retro stuff frá Ostgut Ton að þessu sinni í old skool deep house fíling en samt með nýjar pælingar í gangi líka. Á einum tímapunkti brestur röddinn í Prosumer sem er momentið sem meikar lagið, gerir þetta allt saman svo “ekta”.

10. Lil’ Wayne – A Milli (Warner)
Svona á heildina séð skil ég ekki Lil’ Wayne hæpið né crunk/suðurríkjarap almennt. En “A Milli” er alger banger, til ótal mixteip útgáfur og bootleg remix af þessu (hvað er málið með þetta t.d.)en originallinn er einfaldlega bestur. Ekkert autotune rugl, bara niður-pitchað A Tribe Called Quest sampl, 808 og þessi furðulegi fýr að rugla yfir herlegheitin.

11. Ricardo Villalobos – Enfants (Chants) (Sei Es Drum)
12. Sound Stream – Live Goes On (Sound Stream)
13. Guillaume & the Coutu Dumonts – Le Tigre (Oslo)
14. Harmonic 313 – Arc Light (Warp)
15. Screaming Soul -Warfare (Ruckspin & Planas Remix) (Ranking Records)
16. Noze – Remember Love (Get Physical)
17. Peverelist – Infinity is Now (Tectonic)
18. Ramadanman – Core (Soul Jazz)
19. Mujava – Township funk (Warp)
20. dBridge – The Yearning (Exit)

21. Martyn – Vancouver (2562 Remix) (3024)
22. Ikonika – Please (Hyperdub)
23. Silkie – I Sed (Deep Medi)
24. Marcus Intalex – Astro Dance (Soul:R)
25. Ramadanman – Blimey (Hessle)
26. Dave Aju – Anyway (Circus Company)
27. Martsman – 8-Bit Bouncer (Med School)
28. Omar S – The Further You Look – The Less You See (FXHE)
29. Commix – Underwater Scene (Soul:R)
30. Goldie – Letting Go (Metalheadz Digital)

31. Sully – Give Me Up (2nd Drop)
32. Loco Dice – La Esquina (Desolat)
33. MyMy – Everybody’s Talking (Playhouse)
34. Shut Up & Dance – Epileptic (Martyn’s No Strobe Mix) (Shut Up and Dance)
35. Subfocus – Timewarp (Ram)
36. Coki & Benga – Night (Tempa)
37. Hud Mo – Ooops (Lucky Me)
38. Amp Fiddler – Stay Or Move On (Brain & Ketch Mix) (Detroit Wax)
39. Henrik Schwarz, Âme &Dixon – D.P.O.M.B. (Version 1) (Innervisions)
40. Scuba – Twitch (Jamie Vex’d Remix) (Hotflush)

Breiðskífur / Safnskífur / Endurútgáfur
1. Shed – Shedding the Past (Ostgut Ton)
2. dBridge – The Gemini Priniciple (Exit)
3. Flying Lotus – Los Angeles (Warp)
4. Carl Craig – Sessions (!k7)
5. Ýmsir – Dat Music 2 (Soul:R)
6. The Mole – As High as the Sky (Wagon Repair)
7. Robert Hood – Fabric 39 (Fabric)
8. Ýmsir – Soundboy’s Gravestone Gets Desecrated By Vandals (Skull Disco)
9. Dave Aju – Open Wide (Circus Company)
10. Liquid Liquid – Slip in and out of Phenomenon (Domino)

Karl Tryggvason | ktryggvason@gmail.com

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: listar
Tagged:

Árslistar

janúar 27, 2009 · 17 Ummæli

Næsta laugardag kynnir Party Zone árslistan sinn fyrir árið 2008. Vegna valkvíða og skorts á tíma hef ég ákveðið að velja aðeins topp 15, ég ætla að birta hann hér ásamt stuttum umfjöllunum um hvert lag.

15.Fabrice Lig – Evolutionism
14.Hugo(Italy) – The Sloop
13.Audiofly X,Amelie – Move
12.Moodyman – Freaky MF
11.Mixworks – Berlin Dub

10.Soundstream – Dance with me
2008 var eiginlega svona comeback ár fyrir diskóið. Fleirri og fleirri diskó mix urðu til og hljómsveitir eins og Hercules and Love Affair komu fram á sjónarsviðið. Lagið Dance with me er diskólag sem Soundstream hefur tekið og pumpað það aðeins upp, hörkulag mæli með því

9.Sebo K – Diva
Þetta lag kom út í haust og gerði allt vitlaust. Er ennþá á topp 50 listanum hjá Resident Advisor sem er birtur mánaðarlega. Hrokinn í mér fyrir ,,the hype” hafði þau áhrif að það tók mig mjög langan tíma að byrja að fíla það.Heyrði það fyrst í mixi frá Motorcitysoul og fílaði það ekki, síðan í mixi frá Margeiri og var enn á sömu skoðun, það ver ekki fyrr en í mixi frá Jónfrí að ég loksins náði því hvað þetta var gott lag.

8.Stimming – Una Pena

Stimming ásamt félaga sínum Solomun átti besta lag ársins 2007 að mínu mati. Árið 2008 var gott ár fyrir Stimming þar sem hann mokaðu út góðum lögum. Besta lagið hans að mínu mati er Una Pena sem hluti af þessu ,,höfum spænska vocala í lögunum okkar” trendi sem virtist endast í svona viku.

7.Loco Dice – Pimp Jackson is talking now!

Loco Dice gaf ú plötun 7 Dunham Place á árinu sem er hin fínasta. Á henni er meðal annars lagið Pimp Jackson is talkin now! Pumpandi bassi og semi ghetto fílingur í þessu. Lagið er án efa eitt af fyndnari lögum ársins þar sem Pimp Jackson er hellaður á því, örugglega geðveikt að hanga með honum.

6.Ricardo Villalobos – Enfants

Langt, steikt og geðveikt, þessi orð eiga við um flest allt sem Ricardo gerir þessa dagana. Sé rosalega eftir því að hafa gefið mitt eintak frá mér.

5.Christian Burkhardt – Phay Boom

Heyrði þetta fyrst í mixi frá Sascha Dive, fílaði það og leitaði að því í 3 mánuði. Síðan komst ég að því að þetta hafði ekki verið gefið út. Stend sjálfan mig stundum að því að vera að syngja með, sem er mjög skrítið. Það er samt bara svo gaman að gera fay og svo búm, fey fey fey og búm.

4.Tim Green – Revox Justin Martin Remix

Stærsta útgáfa ársins hjá hinum unga og efnilega Tim Green eða TG. Rosalega týpiskt Dirtybird lag. Fyndin og dansvæn laglína yfir góðum trommum, hvað þarf meira til? Fílaði ekki orignalinn nógu vel, Richtie Hawtin gerði það en hann fílaði líka þessa hugmynd svo hann er ekki marktækur.

3.Audion -Billy says go

Matthew Dear a.k.a Audion býr til ótrúlegar bassatrommur.

2.Dj Koze – I want to sleep

Það er í lagi að hafa sömu loopuna í gangi í 10 min ef hún er nógu góð. Hefur einhver heyrt/spilað þetta á íslensku dansgólfi. Mæli með að fólk skoði myspacið hans Koze.

1.Johnny D -Orbitallife

Ekki hægt að hlusta á þetta lag og finnast maður vera ósmart. Jafnvel þó maður sé í engu nema sokkum og hvítum bol. Þessi vocall (sem minnir mig skugglega á BÓ) er bara of smart.  Ég dansaði við þetta í allt sumar og dansa enn þegar ég heyri það.

Endilega póstið listunum ykkar og spám í athugasemdadálkinn.

-Magnús Felix|magnusfelix@gmail.com

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: listar
Tagged: , , , , , , , ,

DansiDans hlaðvarp #1 – Asli

janúar 23, 2009 · 3 Ummæli

dansidans_podcast1_asli

DansiDans Hlaðvarp #1 – Asli

Hvers konar tónlistarblogg væri DansiDans ef við værum ekki með neitt hlaðvarp? Hlaðvarp er nýmóðins og töff, þótt að íslenska orðið sé hálf hallærislegt. Því fórum við á stúfana, höfðum samband við nokkra skemmtilega snúða og tónlistarmenn og kynnum nú til leiks fyrsta hlutan í DansiDans hlaðvarpinu sem héðan í frá verður mánaðarlegur liður á blogginu. Það er Asli eþs. Jónfrí sem ríður á vaðið með nett pumpandi techhouse syrpu. Asli ætti að vera gestum þessarar vefsíðu kunnur, smekksmaður mikill af Skaganum sem hefur getið sér gott orð fyrir tónsmíðar og plötuþeytingar undanfarin ár.

Þú getur náð í syrpuna hér og gerst áskrifandi að hlaðvarpinu hér.

1. Hvernig er syrpan sett saman? Einhverjar pælingar eða þema í gangi?
Asli: Ég fór í inniskónna mína. Það er nauðsynlegt að vera í inniskóm þegar
maður er að mixa heima hjá sér. Mjög mikilvægt. Ég hækkaði líka
duglega í monitor, einnig mjög mikilvægt. Það er ekkert sérstakt þema
í gangi, ég gróf upp lög sem ég er að skynja og reyndi að láta þau
mynda heild. Heild myndast betur ef maður er í inniskóm.

2. Hvað ertu annars að bralla þessa dagana?
Asli: Reyna að gera meiri músík, bæði frumsamið og remix. Það er að koma
 út 12″ í byrjun febrúar á Real Tone labelinu hans Franck Roger, og
 fleiri útgáfur eru í vinnslu … reyna að fylgja því eftir
 einhvernveginn.

3. Hvernig finnst þér “senan” á Íslandi?
Asli: Viðkvæmt subject. En mér finnst tónlistin aðeins of mikið whitenoise
 pingpong oft á tíðum, og skorta sál.

4.Hvað ertu að fíla?
Asli: Ansi margt, þessa síðu sem dæmi.

5. Linkar / Plögg / Lokaorð?

www.myspace.com/djjonfri
aslipod.blogspot.com/

Lagalisti:
1. M.A.R.S – Remote Area
2. Morgan Geist – Detroit (C2 Remix)
3. Move D – Heidelberg Gals
4. D Dub – Deep Blue
5. Sebo K – Diva
6. The Amberokay – The Hype (Marc Schneider & Ralf Schmidt Remix)
7. H.O.S.H. – Super Sick Bowl
8. Sis – Nesrib
9. Tigerskin – Heather
10. Dj Rolando – Where Were You
11. Radio Slave – Incognito
12. Portable – Ok Then
13. Argy & Solomun – Anemone
14. Asli – Slow Potion

Geoffrey fær miklar þakkir fyrir að hanna fyrir okkur artwork.

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: Podcast

Syrpu Syrpa # 7

janúar 21, 2009 · 4 Ummæli

Þessa vikuna hjá Resident Advisor sér Rene Breitbarth um podcastið þeirra. Mixið hans er troðfullt af lögum frá hetjum ársins 2008 eins og Guillaume & The Coutu Dumonts og MyMy. Meiri upplýsingar um kauða, mixið og tracklista má finna hér

Í vikunni rakst ég síðan á afterhour mix frá Rozzo úr Mountain People. Þetta mix sem er tekið upp á Slutfunk sem ég veit ekki alveg hvað er ,groovar svakalega og pumpar um leið. Ég hef ekki fundið lagalista þannig ef einhver þekkir þessi lög endilega látið mig vita, mikið af stöffi í þessu mixi sem ég myndi vilja eignast.

Greg Wilson, sem er sennilega einn fyrsti “alvöru” plötusnúður breta, var svo með Essential Mix um helgina, löngu komin tími á það. Greg þessi á merka sögu að baki og hann segir skemmtilega frá henni á vefsíðunni sinni, forvitnilegar greinar og frásagnir fyrir þá sem hafa áhuga á fyrstu árum raf- og danstónlistar. Mixið er í boogie funk edit fíling, mér finnst fyrri helmingurinn sérstaklega skemmtilegur. MP3 og lagalisti hér.

Flokkar: Syrpu Syrpa
Tagged: , , , ,

Lifandi danstónlist

janúar 20, 2009 · 3 Ummæli

"Allt" i gangi hjá Justice

"Allt" í gangi hjá Justice

Undanfarin ár hefur mér þótt bera meira og meira á því að klúbbar og aðrir sem halda úti danstónlistarviðburðum auglýsi Live-ökt. Á sínum tíma þótti mér þetta oft mjög spennandi og sóttist sérstaklega eftir því að mæta. Með tímanum fór ég svo oftar en ekki að verða fyrir vonbrigðum.

Danstónlist er oftast unnin af sólólistamönnum og hún er sjaldnast sköpuð á lifandi hátt. Vonbrigði mín lágu yfirleitt í því að ég var ekki að sjá neitt sem heillaði mig meira en plötusnúður gerir, sem spilar eingöngu sín eigin lög (hef ekkert á móti því ef lögin eru góð). Oft var ég líka að heyra mjög fína músík en upplifunin var ekkert sérstaklega lifandi.

Það hefur þó gerst að upplifunin hafi verið öðruvísi og þá oftast ef listamaðurinn eða hljómsveitin hafa brotist undan því að nota “Ableton-Live” eingöngu – t.d. með söngvurum, hljóðfæraleikurum (eða spila sjálfur á eitthvað) eða visjú-ölum. Mér finnst uppsetningin hjá Noze, GusGus, dOP, Trentemoller og London Elektricity sem dæmi mjög vel lukkuð. Línan er frekar þunn þegar öllu er á botninn hvolft en sjónræni hlutinn skiptir alltaf miklu máli þegar um lifandi performans er að ræða.

Því er samt sem áður ekki að neita að það að setja Live stimpilinn á plaggatið virðist virka á fjölmarga og kemur eflaust nokkrum auka krónum í kassann.

Endum þetta á skemmtilegri upptöku af frönsku hljómsveitinni dOP frá síðustu áramótum.

ótum.

-Leópold Kristjánsson

Flokkar: pælingar
Tagged: , , ,

Árslisti PZ – Pælingar

janúar 19, 2009 · 4 Ummæli

Party Zone piltarnir komnir á fullt í sínum árslista undirbúning og taka á móti árslistum hlustenda á pz@ruv.is. Ætla að setja hér niður nokkrar pælingar  tengdar listanum  en geri svo kannski tilraun til þess að púsla saman mínum árslista og smella honum inn síðar.

Skilst að þetta sé í 19. sinn sem þeir taka saman árslista, sem er afrek í sjálfu sér. Í þessum þræði hér koma upp nokkrar pælingar sem er skemmtilegt að gefa nokkurn gaum. Ég held að það sé enginn vafi um það að plötusnúðar landsins hafa orðið fjölbreyttari á árunum, þeir ná yfir víðara svið tónlistar og “plötutöskur” þeirra eiga minna og minna sameiginlegt með hverjum árslistanum sem líður (plötutöskur=geisladiskamöppur=harðir diskar).

Mér finnst pz reyndar standa sig mjög vel og fjalla um mjög vítt og breytt svið en hafa samt ákveðið sánd/stefnu. Þrátt fyrir það er fáránlegt að ætla að allir sjái samsvörun með sínum smekk og sínu “atkvæði” í 40 laga lista. Satt best að segja finnst mér “afhverju var lag x ekki á listanum / ég trúi ekki að y hafi ekki komist inn” umræður alltaf mjög fyndnar. Þetta er skiljanlegt þegar fólk er að benda á lög sem þeim fannst heima á listanum en hlægilegt þegar fólk vill meina að vöntun á lagi x/y/z geri listan minna gjaldgengan. Því þetta eru bara listar, byggðir á mati þeirra sem setja þá saman og tilraun þeirra til þess að endurspegla ákveðið tímabil. (innskot: ég varð frekar hissa þegar Archangel með Burial komst ekki á blað í fyrra, mitt topplag, en ég fór ekki að væla yfir því!)

Þessi fjölbreytti smekkur gerir það líka að verkum að það er erfiðara að spá fyrir um listan. Stundum eru samt lög sem höfða til svo margra að það er næstum víst að þau tróni á toppnum, sbr “Moss” í fyrra, “In White Rooms” 2006 og “Drop the Pressure” 2004 (og “Stardust”, “Throw”  og “I Got the Power” back in the day ábyggilega líka, ef út í það er farið). Mér finnst hins vegar ekkert þannig lag hafa komið fram í ár. Er það? Kannski eru topplögin bara alltaf augljós svona eftir á að hyggja.

Einhverjir hafa nefnt Joris Voorn remixið af Dark Flower Robert Babicz en ég kaupi það ekki að svona hart lag rati inn á lista nógu margra til þess að ná á toppinn. “Orbitalife” með Johnny D hefði ég spáð góðu gengi en mér fannst það aldrei detta inn á Íslandi jafn mikið og maður hefði búist við. Sis kom sterkur inn með “Trompeta” sem gæti slegið í gegn en er samt soldið mikið gimmick. Hercules & Love Affaire eru líka líkleg til þess að láta til sín taka. Svo kæmi mér ekki á óvart ef Aeroplane, sem eru aðalaktið á árslistakvöldinu, verði ofarlega. Hef heyrt mikið um þá en ekkert með þeim, mikið hæp í gangi.

Ef við svo aftur á móti förum í það sem ég myndi vilja sjá á lista og það sem árið 2008 stendur fyrir í mínum augum get ég romsað upp úr mér mörgun titlum. Ekki raunsætt að þetta skili sér í stórum stíl inn á pz listan en þó eru þarna ökt sem margir gætu haft gaman af, kannski skilar það sér eitthvað…

Í house og techno tónum myndi ég benda á Shed breiðskífuna og singla, Oslo labelið og þá kannski sérstaklega Guillaume & Coutu Dumonts, Ricardo Villalobos, Luciano og Cadenza, Kenny Larkin, Dave Aju og Circus Company, Noze og dOP svo eitthvað sé nefnt.

Dubstep og “wonky” finnst mér að ætti að eiga einhverja fulltrúa á svona lista og myndi ég vilja sjá Flying Lotus, Martyn og Rustie koma fyrir, Hyperdub útgáfan hans Kode9 átti frábært ár, Zomby, Ikonika, Samiyam og Kode9 sjálfur með skemmtilegar skífur, Hessle Audio crewið var með marga slagara, Ramadanman og Pangea að gera það gott.

Í drum & bass geiranum hefur þetta verið soldið breiðskífu ár, Calibre, dBridge breiðskífurnar standa uppúr ásamt Dat Music safnskífunni. Instra:Mental tvímælalaust að gera mjög spennandi hluti en einnig mætti telja til dót frá Alix Perez, Sabre, Lynx, Martsman, Marcus Intalex og Commix.

Líklegast er náttúrulega að 4/4 dót og indie-dans tónar taki bróðurpartinn af listanum enda eru það þær stefnur sem Party Zone tengist hvað sterkast og fyrir aðra geira eru aðrir listar og önnur ársuppgjör. Stemmningin er samt alltaf hvað skemmtilegust í kringum Party Zone listan, mjög skemmtileg samkennd í kringum þessa “ævafornu” hefð. Ég mun allavega fylgjast með Dansþætti Þjóðarinnar þann 31. janúar næstkomandi.

-Karl Tryggvason | ktryggvason@gmail.com

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

Flokkar: listar · íslenskt
Tagged: , , , , , , , , ,

Syrpu Syrpa #6

janúar 15, 2009 · 3 Ummæli

Vikulegur skammtur af plötusnúðasyrpum coming up, deluxe ipod fóður!

Magnús Legóson eþs hunk of a man

Á góðu kvöldi er Maggi Legó minn uppáhalds snúður á Íslandi, smekksmaður, fjölbreyttur og skemmtilegur og með ansi öfundsvert plötusafn. Um daginn setti hann upp nokkrar syrpur á internetið sem má finna hér. Hef aðallega verið að renna í gegum upptökuna frá Kaffibarnum núna í janúar, tæpir fimm tímar af tónlist og manni líður alveg eins og maður sé mættur á Bergstaðastrætið.

hin ungi og efnilegi Ramadanman

Hin stórgóða Hessle Audio er útgáfa mánaðarins hjá Resident Advisor og má lesa umfjöllun þeirra hér. Ramadanman, sem er einn af eigendum Hessle, setur svo saman syrpu í tilefni af þessu öllu saman. Lagavalið er skemmtilegt en ég er ekki alveg sjúr með mixtæknina hjá kauða en hvað um það. Þeir sem eru í Berlín eða nágrenni gætu gert margt vitlausara en að sjá Ramadanman ásamt Martyn, Scuba, Kode9 og The Bug á Substance kvöldi á Berghain á morgun.

Þá setti íslandsvinurinn Goldie Metalheadz podcastið í gang, er eflaust áskriftarinnar virði. Að lokum má ég svo til með að benda á Danny Breaks hip hop sett frá 2006 sem varð á vegi mínum.

Flokkar: Syrpu Syrpa

Aaron Carl með frítt stuff

janúar 13, 2009 · 1 ummæli

Aaron Carl er Íslandsvinur og er sennilega einn sá skemmtilegasti sem þá nafnbót hefur hlotið í gegnum árin. Hann hefur um árabil gert house og techno í anda heimaborgar sinnar Detroit og hefur heimsótt Ísland nokkrum sinnum, er að ég held góður félagi GusGus drengjanna og Tomma White.

Á Airwaves ’03 var Breakbeat.is með lokapartý á sunnudeginum á hinum vafasama stað Vídalín, steig hann óvænt á stokk með DJ Panik og tók í mæk. Frammistaðan var ekki alveg sú sem maður er vanur frá drum & bass mc’um en skemmtileg engu að síður og hann kom aftur fram á breikbít kvöldi vorið 2004.


Aaron Carl og Panik samræmdir í tauinu

Það var líka fínasta kvöld og skemmtilegt að hanga með honum, ekki mikil lognmolla í kringum hann og við getum orðað það sem svo að hann sé litríkur karakter.

En hann er líka stórskemmtilegur tónlistarmaður og þá komum við að aðalefni þessarar færslu. Aaron-Carl er með mp3 pakka gefins á vefsíðu sinni sem hefur hlotið nafnið Electrevival. Mörg góð lög þarna, en “Down Revisited” og “Come with me” eru kannski ekki fyrir viðkvæma. Tjekkið á því!

Flokkar: mp3