DansiDans.com – Raf- og danstónlist á Íslandi

Entries from mars 2009

Paris Hilton slær í gegn á WMC – Myndir

mars 29, 2009 · 10 Ummæli

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá mörgum danstónlistarunendum að WMC hátíðin fór fram nú um helgina í Miami. WMC eða Winter Music Conference er einn af stærri viðburðum danstónlistarheimsins og þá daga sem hún stendur yfir má finna öll stærstu nöfn bransans í Miami borg. Í kringum hátíðina sjálfa, sem er eins konar ráðstefna, eru haldin óteljandi partý og eru line uppin þar vægast sagt rosaleg.

.

steve Steve Angello er eitt stykki blautur teknó plötusnúður

Í dag rakst ég síðan á þessa blogfærslu frá Paris Hilton, en hún var í partýi á WMC þar sem Steve Angello var að spila, en hann er þekktastur fyrir að vera meðlimur í Swedish House Mafia sem er pæling sem ég hef ekki enn skilið.

Auðvitað er Paris Hilton “áttu ekki einhverja svona skemmtilega tónlist” týpan sem er oft í slagtogi við gríndansarann sem Kalli fjallaði um í síðustu færslu. “ I like certain techno music, but this was not even danceable and was frankly giving me a migraine”  sagði hún um tónlistina sem Angello var að spila og ákvað að taka málin í sínar hendur. “I asked the DJ if he could please play Daft Punk or Bob Sinclair and he rudely snapped at me and was like ‘I only play this kind of music.”

Restina að sögunni má nálgast hér. Steve Angello póstaði eftirfarandi commenti um atburðin “for someone who claims to make records … dont come into a booth and ask me to play hip hop and then have your doorman slap me”. Hér má svo að lokum finna úttekt Beatportal á herlegheitunum. Annars hefur dansidans almennt ekki mikin áhuga á danstónlistarslúðri, Paris Hilton eða Steve Angello, en þessi saga er eitthvað svo súrealísk og fyndin að rétt er að koma henni á framfæri.

Flokkar: fréttir
Tagged: , ,

Gríndansarar

mars 28, 2009 · 5 Ummæli

Ætla að smella hér inn hugleiðingu sem ég birti á vefsíðu minni í fyrrasumar, tímalaus pæling sem á alltaf vel við og á erindi hingað inn að mínu mati.

Ekki alls fyrir löngu kom Magnús bróðir minn með nafn og skilgreiningu á fyrirbæri sem hafði lengi farið í taugarnar á mér og mörgum öðrum. Fyrirbæri þessu gaf Magnús heitið gríndans og þeir sem stunda þetta athæfi eru þar af leiðandi gríndansarar.

Við þetta kannast allir plötusnúðar sem spila tónlist sem er frábrugðinn þeirri síbylju sem dynur á fólki hvort sem því líkar við það eður ey. Gríndansarar eiga dansspor fyrir allar tónlistarstefnur og rifja þau jafnan upp við öll tækifæri. Oft á gríndansinn sér stað í upphafi kvölds þegar fátt fólk er á ferli. Þá slæðist inn fólk sem ekki hefur vit á eða gaman af þeirri tónlist sem er á dagskrá það kvöldið, en í stað þess að leita á önnur mið af tónlist eða skemmtikvöldi sem er honum við hæfi tekur gríndansarinn upp allt aðra taktík. Hann ákveður að stíga spor sem hann heldur að fólki þyki fyndin, þau geta verið af ýmsu tagi: misheppnuð breikdans múv, æðisgenginn dans þar sem útlimir eru hristir í allar áttir, samkvæmisdansar með kaldhæðnislegu yfirbragði og svo framvegis og svo framvegis.

Með þessu framferði sínu er gríndansarinn iðulega að segja “ég skil ekki þessa músík né það að aðrir hafi gaman af henni eða vilji stíga við hana dans, ég ætla að gera grín af því sem ég ekki skil með ýmiskonar asnalátum”. Oftar en ekki fylgja svo háðsglósur um “gott flipp” og svo beiðnir um að maður spili eitthvað annað en “helvítis technó”.

Málið er hins vegar að gríndansarinn er nánast án undantekninga ekkert fyndinn heldur bara frekar hallærislegur. Hann er sjálfum sér til skammar og skapar oft slæma og vandræðalega stemningu. En kannski er ég bara einn um þá skoðun þar sem fólk virðist hafa mjög gaman af asnalegum dansi sbr. Dansatriði Napoleon Dynamite og hið mjög leiðinlega video Evolution of Dance sem er það myndband sem næst oftast hefur verið barið augum á youtube…

Ekki svo að skilja að dans geti ekki verið fyndinn, en það er oftast þegar fólk dansar ekki illa viljandi heldur bara af því að það kann ekki að dansa. En einlægur dans með innlifun er nú svo sem eitthvað sem ég ætla seint að gera grín af enda veit ég fátt betra en að komast í þann gír.

Karl Tryggvason | ktryggvason@gmail.com

Flokkar: pælingar

SyrpuSyrpa#15

mars 25, 2009 · 3 Ummæli

Alltaf finnur maður einhver skemmtileg mix á áhugamálinu danstónlist á huga.is,en í þessari viku hef ég verið að hlusta á tvö mix þaðan.

Fyrra mixið ef frá notendanum Gerald og heitir B-side of deep. Nafnið á mixinu lýsir því vel þar sem mixið er sett saman úr b-hliðum 12″ deep platna. Þrælskemmtilegt mix sem ég mæli með að fólk tékki á, en mixið, meiri upplýsingar og annað mix  frá Gerald  er hægt að nálgast hér.

Seinna mixið er frá notendanum Hreggi89. Skemmtilegt mix sem inniheldur svona deep house sem maður heyrir ekki nógu mikið af í dag. Mixið og tracklista er hægt að nálgast hér.

Á twitternum hjá Múm var svo annað íslenskt dj mix að finna, það er á allt öðrum nótum en þau tvö fyrstnefndu og var sett saman fyrir hipstera bloggið Allez Allez. Hress lagalisti, mashup stemning sem á góða spretti og slæma!

culoedesong

Suður Afríska undrabarnið Culoe de song, gerði svo mix fyrir Resident Advisor í síðustu viku. Culoe sem var uppgvötaður eftir að hann komst inn í Red Bull Music Academy í fyrra og virðist vera í miklu uppáhaldi hjá Dixon og öðrum.

Flokkar: Syrpu Syrpa
Tagged: , , , ,

Jútjúb Miksteip #6 – halfstep/half-tempo drum & bass

mars 22, 2009 · Rita ummæli

Þegar jungle kom fyrst fram á sjónarsviðið var eitt af auðkennum þess hvernig það tengdi takta og trommur sem sem voru í kringum 150-160 bpm við dub skotnar bassalínur sem virkuðu eins og þær væru um helmingi hægari. Bassinn skapaði þar einskonar jarðtengingu við hraðar taktaleikfimina.

Nokkrum árum síðar var drum & bass búið að festa sig í sessi í kringum 170 slög á mínútu. Þá fóru nokkrir tónlistarmenn að fikta við að semja lög þar sem takturinn og aðrir hlutar lagsins virtust rúlla á hálfum hraða, þ.e.a.s. í kringum 85 bpm, á svipuðu róli og mikið af dub tónlist og rólegu hip hopi. Kannski er þetta allt saman bara skilgreiningaratriði, ég er ekki nógu vel að mér í tónlistarfræðum til þess að skera úr um slíkt, en hér að neðan eru í það minnsta nokkur vel valin half tempo / halfstep drum & bass lög. Takið eftir því hvernig orkan og krafturinn í þessum lögum er allt öðruvísi heldur en í hefðbundinni kick-snare drum & bass tónlist.

.


1. Digital – Deadline (31)
Ég held að ég fari rétt með þegar ég segi að Deadline hafi verið eitt af fyrstu lögunum í þessum gír og Digital ásamt félaga sínum Spirit á mikið lof skilið fyrir að hafa komið þessu sándi á kortið. Digital tengdi saman reggeaskotinn sömpl við old skool/reif hljóðheim, allt byggt á sterkum grunni flott sem hinn massífi bassi myndar.

.


2. Amit – Immortal (Commercial Suicide)

Amit vann vel úr arfleið Digital og mætti kannski kalla hann erfðarprins halfstepsins. Hann hefur tosað og teygt þessar pælingar í ýmsar áttir og hefur sett saman grjótharða gólfatrylla en líka lög eins og Immortal, sem er epískt og fallegt lag. Mér finnst alltaf eins og þetta lag eigi heima í sándtrakki við einhverja Hollywood stórmyndina en það er að finna á Neverending breiðskífu Amit frá árinu 2006.

.


3. Breakage – Clarendon (Digital Soundboy)
Á breiðskífu Breakage, “This too shall Pass”, var heill diskur tileinkaður downtempo dub, dnb og hip hop pælingum. Clarendon kom þó út aðeins síðar, gjörsamlega fáránlegt lag, drifið áfram með bassatrommu og brútal bassa sem Breakage fléttar svo trommufill í kringum.

.


4. Kryptic Minds & Leon Switch – Minor Nine (Defcom)
Kannski ekki half-tempo lag per se, en í svipuðum gír. Tekið af breiðskífu þeirra félaga “Lost All Faith”. Núna nýlega komu út dubstep remix af “Minor Nine”, frá Headhunter og Kryptic Minds & Leon Switch sjálfum, held að það séu athyglisverðar tengingar milli halfstep pælingana í dnb og dubstep, meir um það síðar.

.


5. Instra:Mental – Sakura (Darkestral)
Eitthvert heitasta nafnið í drum & bass senunni í dag, spikfeitt analogue sánd í þessu hugljúfa elektrófílings lagi. Takið eftir hvernig percussion fillinn snúast í kringum þungan og drífandi taktinn. Ég ætlaði reyndar að setja hér inn lagið Commanche en fann það ekki á Youtube, hneyksli…

.


Bónus: Loefah – Horror Show (DMZ)

“Horror Show” ku vera fyrsta halfstep dubstep lagið og ég held að það sé óhætt að fullyrða að fáir komist með tærnar þar sem Loefah hefur hælana í þessum málum. Þungt, drungalegt og yfirþyrmandi sánd. Í dubsteppi eru halfstep pælingarnar algerlega bornar uppi af bassanum og því sem kemur á milli trommuhittana, því tempóið er komið niður í kringum 70 slög á mínútu. Það væri athyglisvert að komast að því hvort listamenn eins og Amit og Digital hafi haft áhrif á Loefah og hans líka, en ég held að óhætt sé að fullyrða að halfstep pælingar í drum & bass geiranum hafi orðið algengari eftir vinsældir dubstep tónlistarinnar.

Flokkar: Jútjúb Miksteip
Tagged: , , , , , , , , ,

313

mars 21, 2009 · Rita ummæli

Tveir Detroit tengdir linkar sem mig langar koma hér að. Stutt heimildarmynd um UR og myndasyrpa um hrörnun og rústir í Detroit borg. Fleira var það ekki í bili…

Flokkar: linkar · video

Föstudagsflagarinn #4

mars 20, 2009 · 2 Ummæli

Það er enginn annar en Marshall Jefferson sem á föstudagsflagarann þessa vikuna, en hann  er af mörgum talinn vera einn af frumkvöðlum housetónlistarinnar, þá sérstaklega jackin´housins sem er kennt við Chicago. Hann hefur gefið út mikið af frábæri tónlist, meðal annars  á hinu goðsagnakennda Trax.

Hann gerði hið ódauðlega lag Move Your body sem virðist ennþá virka hvar sem það er spilað. Það er hins vegar ekki flagari vikunar heldur lagið Mushrooms.En í laginu segir Marshall frá því þegar hann tók sveppi í fyrsta sinn. Ekki veit ég hvort þessi saga sé sönn, en lagið er að engu síður frábært. Ég komst fyrst í kynnum við lagið þegar ég heyrði remixið hans Justin Martin af laginu sem ég mæli einnig með að fólk tékki á.

Magnús Felix //magnusfelix@gmail.com

Flokkar: Föstudagsteknó
Tagged: , , ,

Plötudómur: Omar S – Fabric 45 (Fabric)

mars 18, 2009 · 3 Ummæli

Omar S
Fabric 45
Fabric
Fabric89
House / Techno
3,5 / 5

Þessi plötudómur verður í svokölluðu “live blog” formi, sem kannski mætti heimfæra á okkar ástkæra og ylhýra móðurmál sem bloggað í beinni. Þetta form er komið frá því þegar bloggarar eru að fylgjast með einhverjum stórviðburðum og segja frá upplifun sinni jafnóðum, hugleiðingar mínar um Fabric diskinn hans Omar S er að sjálfsögðu stórviðburður! Að öllu gríni slepptu þá er hugmyndin af þessari pælingu fenginn frá danstónlistar bloggaranum geðþekka Teleost og mér finnst þetta skemmtileg tilbreyting við hefðbundna plötudóma formið. Ég mun sumsé skrásetja skoðun mína á þessum mixdisk sem og aðrar hugmyndir og hugleiðingar um leið og diskurinn rúllar í gegn á forlátu Yamaha græjunum í Bruine Ruiterstraat 8B.

01. Omar S – Polycopter
02. Omar S – Flying Gorgars
Fyrsta lagið er í þyrluspaða-techno-fíling eins og nafnið bendir til, bítið kemur skemmtilega inn, vel mixað og byrjar vel. Þessi Fabric diskur Omar S hefur verið mikið á milli tannanna á fólki og vakið athygli eins og við bentum á um daginn hér á dansidans. “Flying Gorgars” er í góðu Detroit grúvi, syntha riffið filterast fram og aftur sem gefur laginu soldin live improv fíling auk þess sem takturinn er brotinn skemmtilega upp inn á milli.

03. Omar S – Strider’s World
04. Omar S – Oasis Four
Þung bassatromma tekur öll völd, áður en 8-bit tölvuleikjaleg synthalína lætur á sér kræla yfir einfaldri hljóma lúppu. Aftur byggja filter-fimleikar og hljóðstyrkur upp ákveðna spennu sem er aldrei leyst almennilega úr læðingi heldur bara byggist hún upp og leiðir hægt og sígandi inn í næsta lag. “Oasis Four” er á house skotnari nótum, klassísk trommuheilasánd byggja upp gott grúv í kringum lúmska hljómborðalúppu. Omar S hefur bæði house/soul tengt sánd sem byggir á sömplum og svo meiri techno fíling sem er elektrónískari, við fyrstu hlustun á þessari skífu fannst mér hann ekki alltaf brúa bilið á milli þessara geira nógu vel.

05. Omar S – Cruisin Conant
06. Omar S – U
“Cruisin Conant” er mónótónískt dj tool, skemmtilegt swing á taktinum og síbreytilegir hi hattar halda þó smá lífi í laginu. Syntha línan í “U” minnir mig ótrúlega mikið á bassalínuna úr klassíkernum “Energy Flash”, ripoff? Tölvukenndir vókalar mæta til leiks, “just a matter of time /  you’re going to be mine” syngur þessi óþekkti maður, “it’s on youuuuuu / what you wanna do”.  Röddin er klínísk og hrein, umfjöllunarefni söngsins contrastar þannig skemmtilega við tæknilegt og tilfinningalaust grúvið. En shit hvað þetta minnir mig á “Energy Flash”…

07. Omar S – Oasis 13-1/2
08. Omar S – 1 Out Of 853 Beats
Omar leiðir okkur yfir í aðeins léttari tóna, djúpur bassa botninn hverfur og í staðinn birtist “hendur upp í loft” synthi í elektró fíling, í kringum hann vefur Omar svo píanó grúv. Þetta er slagari, ég er farinn að dansa í stólnum. “1 Out Of 853 Beats” er hins vegar í dimmara og drungafyllra. Aftur minnir syntha línan mig á gamla klassík, “Positive Education” með Slam, sem Jónfrí póstaði hér um daginn sem föstudagsflagara.


09. Omar S – Simple Than Sorry
10. Omar S – Psychotic Photosynthesis
Ýmiskonar ásláttarhljóðfæri bergmála hér yfir drífandi bassatrommu, svo koma fleiri hljóð til sögunar sem ég kann ekki að gera skil, en þetta er grípandi. “Psychotic Photosynthesis” fær gott trommuintro áður en seyðandi laglínan birtist. Ótrúlega flott. Nú hækkar maður í græjunum og vonar að nágranninn sé ekki heima, alger klúbbatryllir. Synthalúppurnar fléttast saman og aðallaglínan dansar ofan á þeirri fléttu, dubbað grúv. Manni langar að þeysast um á hraðbrautum Michigan með þetta í græjunum, helst í kagga sem Omar S setti saman hjá Ford þar sem hann vinnur víst á daginn.

11. Omar S – The Maker
12. Omar S – A Victim
“The Maker” er hins vegar algert antiklímax, eftir alla uppbygginguna úr laginu á undan, dáleiðandi teknó væb er farið yfir í eitthvað divu house dæmi. Söngkonan er þar að auki frekar leiðinleg… Svona skyndilegt stefnuflakk er vandmeðfarið og það er ekki að ganga upp hjá Omar S hérna. Þessi tvö mix eru soldið hrá þar að auki, tóntegundirnar ekki að blússa saman. Ætli Omar S notið mixed-in-key? “A Victim” er samt töff lag, sneril-drifin techno fílingur og seyðandi söng sömpl.

13. Omar S – Oasis One
14. Omar S – Blade Runner
Ég er að verða búinn með techno-lýsingarorða forðann minn… Hljóðin í “Oasis One” minna mig soldið á UR, drungaleg en vongóð á sama tíma. Ryþminn vinnur líka skemmtilega með bassalínunni, congo trommur lífga þunglamalegan botnin við. Í “Blade Runner” koma double tempo hi hattar í staðinn fyrir congo trommurnar, læf sándið í trommunum er mótvægi við ómelódíska synthana. Það er gamal Detroit blær yfir hljóðunum sem mynda “Blade Runner”, sennilega harðasta lag disksins.

15. Omar S – Day
16. Omar S – Set Me Out
Að fara úr “Blade Runner” yfir í “Day” er algjört stílbrot, en hérna gengur það upp. “Day” er house lag í flottum diskó fíling, snýst meira eða minna í kringum tveggja takta Supremes sampl. Raddirnar færast fram og aftur í mixinu, ekki eftir kúnstarinnar reglum heldur bara geðþóttarákvörðunum Omar S á mixernum að því er virðist, sloppy læf væb. “Set Me Out” er seiðandi og melódískt og í þetta skiptið er það skemmtilegur söngvari sem þenur raddböndin. Fínt lokalag á fínum disk, á mjög góða spretti og sem eru þó slitnir í sundur með óheppilegu lagavali á tímum.

Tóndæmi
Juno Player

Kaupa

Boomkat | Juno | Fabric áskrift

Hlekkir
Omar S – Fabric 45
FXHE

Flokkar: Plötudómar
Tagged: , , , ,

Rafmögnuð Reykjavík

mars 16, 2009 · 11 Ummæli

Ég varð soldið sár þegar ég sá að heimildamyndin Rafmögnuð Reykjavík fór í sýningar í haust á RIFF og Airwaves hátíðinni. Ég var ekki á landinu og reiknaði einhvern vegin með að það yrði erfitt að berja myndina augum eftir að kvikmyndasýningum lyki. En fyrir tilviljun komst ég að því að hægt er að horfa á myndina í fullri lengd á internetinu.

Um er að ræða heimildarmynd um rafræna danstónlist á Íslandi, senuna sem hefur myndast í kringum hana og sögu hennar. Þetta er fínasta mynd, blandar saman nýjum og gömlum tíma á skemmtilegan hátt og tengir Ísland skemmtilega við það sem var að gerast út í heimi á þessum tíma.

Það er soldið erfitt að dæma um fræðslugildið þar sem að ekki kom mikið fram sem maður vissi ekki áður en eflaust veitir myndin óinnvígðum góða innsýn í heim raftónlistar. Margir skemmtilegir punktar sem koma fram,  sjónarmið ýmisra íslenskra frumkvöðla tóna skemmtilega saman og svo er alltaf gaman að sjá upptökur af því hvernig hlutirnir fóru fram í gamla daga. Frábært framtak og góð heimild um liðina tíma!

Flokkar: video
Tagged: , , , ,

Djammrýni – Breakbeat.is:Fastakvöld @ Jacobsen 05.03.09

mars 12, 2009 · 11 Ummæli

Það fór misjafnlega í fólk að Breakbeat.is hafi flutt sig yfir á Jacobsen. Margir vildu meina að staðurinn væri of stór til þess að almennileg stemning gæti myndast á þessum kvöldum, á meðan aðrir sögðu að staðurinn væri kjörinn fyrir kvöldin, þar sem hann hefur gott kerfi og stórt dansgólf.

Ég mætti um ellefuleytið á Jacobsen og þá var enginn á dansgólfinu, en staðurinn nokkuð þétt setinn. Tmus var búinn að spila og Anton var á bakvið spilarana. Anton spilaði DnB til að byrja en með smá svona dubstep keim inná milli.

n23470171266_1645225_1057017

Smám saman fór umferðin á dansgólfinu að aukast og þegar Ewok tók við  um tólf-leytið var gólfið orðið fullt. Ewok spilaði 50/50 dubstep/DnB sem fólk virtist taka vel í. Eins og í öll  dubstep sett a vegum Breakbeat.is innihélt settið hans: Spongebob, Night og Anti War dub, spurning hvenær verður hægt að sleppa þessum lögum? En settið var þrátt fyrir það mjög skemmtilegt og Gunni sannfærði mig enn einu sinni að hann er einn af mínum uppáhalds snúðum.

Klukkan 1 var stemningin svo góð að eigendur Jacobsen leyfðu partýinu að rúlla. Veit ekki endilega hvort að þetta hafi verið jákvætt fyrir mig þar sem þetta þýddi að ég gat haldið áfram að drekka sem jók líkurnar á því að hrokaMagnús myndi mæta, en partýið hélt engu að  síður áfram til klukkan að verða 2.

Gaman var að sjá hve mikið crowdið hefur breyst, mikið af ungum krökkum (en ekki  of ungum) steppuðu dub og er líkegt að ákveðinn kynslóðaskipti séu  að eiga sér stað í danstónlistarsenunni á Íslandi, sem er nátturulega frábært.

Jacobsen staðurinn er frábær, einfaldlega lang mest töff staðurinn í Reykjavík í dag. Vonandi nær hann að festa sér sess í íslensku skemmtanalífi. Þessi hornrúms pæling á neðri hæðinni massívt sniðug.

Á  heildina litið var þetta frábært kvöld og gott að sjá að breakbeatmenn eru back in the game, ég vona að komandi kvöld verði jafn góð og þessi.

Magnús Felix //magnusfelix@gmail.com

Flokkar: Djammrýni
Tagged: , , , , , ,

Helgin – 12.-15. mars

mars 12, 2009 · Rita ummæli

Fyrir fólk sem fílar raftónlist og dansiböll er sitt lítið af hverju í boði um helgina.

Í kvöld er Weirdcore á Kultura, fram koma Klive, Skurken og Sykur auk þess sem Dj Vector mun snúa skífum. Við hjá DansiDans fílum Weirdcore, þar ræður metnaður ríkjum en hjartað er á réttum stað, útkoman er fjölbreytt og skemmtileg line up og svo kostar ekki krónu inn. Allir að mæta!

Um helgina virðist Jacobsen vera teh pleis tú bí. Á föstudaginn taka Karíus & Baktus og Yamaho völdin á efri hæðinni en Asli og Siggi Kalli taka kjallara session. Sexy Lazer og Hunk of a Man taka svo á móti gestum á laugardagskvöldi. Dansidans!

Flokkar: Helgin · íslenskt
Tagged: , , , , , , , , , , ,