Það fór misjafnlega í fólk að Breakbeat.is hafi flutt sig yfir á Jacobsen. Margir vildu meina að staðurinn væri of stór til þess að almennileg stemning gæti myndast á þessum kvöldum, á meðan aðrir sögðu að staðurinn væri kjörinn fyrir kvöldin, þar sem hann hefur gott kerfi og stórt dansgólf.
Ég mætti um ellefuleytið á Jacobsen og þá var enginn á dansgólfinu, en staðurinn nokkuð þétt setinn. Tmus var búinn að spila og Anton var á bakvið spilarana. Anton spilaði DnB til að byrja en með smá svona dubstep keim inná milli.

Smám saman fór umferðin á dansgólfinu að aukast og þegar Ewok tók við um tólf-leytið var gólfið orðið fullt. Ewok spilaði 50/50 dubstep/DnB sem fólk virtist taka vel í. Eins og í öll dubstep sett a vegum Breakbeat.is innihélt settið hans: Spongebob, Night og Anti War dub, spurning hvenær verður hægt að sleppa þessum lögum? En settið var þrátt fyrir það mjög skemmtilegt og Gunni sannfærði mig enn einu sinni að hann er einn af mínum uppáhalds snúðum.
Klukkan 1 var stemningin svo góð að eigendur Jacobsen leyfðu partýinu að rúlla. Veit ekki endilega hvort að þetta hafi verið jákvætt fyrir mig þar sem þetta þýddi að ég gat haldið áfram að drekka sem jók líkurnar á því að hrokaMagnús myndi mæta, en partýið hélt engu að síður áfram til klukkan að verða 2.
Gaman var að sjá hve mikið crowdið hefur breyst, mikið af ungum krökkum (en ekki of ungum) steppuðu dub og er líkegt að ákveðinn kynslóðaskipti séu að eiga sér stað í danstónlistarsenunni á Íslandi, sem er nátturulega frábært.
Jacobsen staðurinn er frábær, einfaldlega lang mest töff staðurinn í Reykjavík í dag. Vonandi nær hann að festa sér sess í íslensku skemmtanalífi. Þessi hornrúms pæling á neðri hæðinni massívt sniðug.
Á heildina litið var þetta frábært kvöld og gott að sjá að breakbeatmenn eru back in the game, ég vona að komandi kvöld verði jafn góð og þessi.
Magnús Felix //magnusfelix@gmail.com
11 responses so far ↓
Andri Már // mars 12, 2009 kl. 4:21 pm
Fín djammrýni Maggi mús
Ewok // mars 12, 2009 kl. 8:02 pm
hmm ég get svo svarið það að fyrstu 30 min af mínu setti hafi verið tileinkaðar dnb með það í huga að splitta sirka 50/50 dubstep og dnb. en þar sem ég fékk að spila töluvert lengur en ég bjóst við varð dubsteppið ansi ráðandi og endaði í slagaragír á köflum þar sem ég bjóst við að ég væri að setja loka lag á hvejru sinni.
Uh hvar heyrðiru samt night? Ég var allavega ekki með plötuna né cdinn
En er alveg sammála með að sum lög séu orðin þreyttari en önnur þó góð séu.
Annars flott skrif og keep on keepin on.
magnusfelix // mars 12, 2009 kl. 8:14 pm
Var kannski E-trips en ekki Night sem ég heyrði. Það er samt líka ofspilað.
Gæti hafa misst af fyrstu 30 min þar sem ég var í þessum mega cosý pælingum þarna niðri.
Benga // mars 13, 2009 kl. 12:53 am
wot u saying bout my tune, bruv?
http://i109.photobucket.com/albums/n53/lloydnoise/BengasGunfingerAdventure.gif
nuff said
haters
Jeff // mars 13, 2009 kl. 10:55 am
Geðveik djammrýni…
hvaða halastjörnur eru þetta á superman linknum, fuck sko…
Halli // mars 14, 2009 kl. 2:49 pm
Enginn föstudagsflagari
magnusfelix // mars 15, 2009 kl. 6:56 pm
Nei Jónfrí er sloj
Bjarni // mars 16, 2009 kl. 1:04 am
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAAHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHA þetta Benga comment er fyndnast í heimi ..þessi mynd sko hahahahaha
En já ..leiðinlegt að hafa misst af þessu
Kalli // mars 16, 2009 kl. 11:28 am
Fleiri hittara Gunni Ewok!
Haukur Heiðar // mars 16, 2009 kl. 11:50 am
var þarna til lokunar. Afar þunnur föstudagur sem fylgdi í kjölfarið. Skemmtileg stemning sem myndaðist
Elli // mars 19, 2009 kl. 7:05 pm
Ég hef ekki hlegið svona mikið lengi eins og þegar ég sá þessa kakóbræður sem hlekkurinn hér fyrir ofan vísaði á. Greyið strákarnir… En góð gagnrýni og skemmtileg síða. Big up!!