Monthly Archives: mars 2009

Syrpu Syrpa #14

Fyrst langar benda á tvö podköst sem hafa verið fáránlega góð síðustu vikur. Írska Bodytonic batteríið stendur að skemmtilegri vefsíðu, klúbbakvöldum og öðru stússi, podkastið þeirra hefur verið spennó undanfarið með syrpur frá mönnum á borð við Daniel Wang, Dj Craze, Noze og Omar S algerlega áskriftarinnar virði. Það ætti kannski ekki að þurfa að benda lesendum þessarar síðu á Resident Advisor podcastið en við gerum það nú samt af því að tveir síðustu hlutar þess hafa verið ofsa spennó, í fyrsta lagi var DJ Koze með flotta og fjölbreytta syrpu og í öðru lagi er þar frábært live sett frá Surgeon, techno og dubstep bræðingur.

ra145-dj-koze

Að öðru leiti er rétt að velja íslenskt þessa vikuna. Mikið framboð af skemmtilegum syrpum frá íslenskum snúðum á veraldarvefnum. Árni Kristjáns gerði stórskemmtilegt boogie mix,  Jónfrí smellti í eina djúpa hús syrpu og Haukur úr fknhndsm er á öðruvísí húsnótum á blogginu sínu. Kári Hypno smellti svo fínu dubstep mixi á huga.

Að lokum ætla ég að plögga mitt eigið mix sem vitaskuld ber höfuð og herðar yfir öll hin mixin!

Warp20

Hin goðsagnakennda Warp útgáfa verður 20 ára á árinu. Þeir hafa gefið út ófáa klassíkina í gegnum árin, Warp hefur aldrei staðnað, er alltaf að þróast og takast á við nýja hluti oftast á lifandi og skemmtilegan hátt, hvort sem það er í tónlist, myndböndum, vefsmíðum eða grafískri hönnun. Á upphafsárum sínum var Warp acid house label og frumkvöðlar í hinu svokallaða bleep house sándi sem listamenn eins og LFO fullkomnuðu, þegar fram liðu stundir urðu þeir hins vegar þekktastir fyrir hið illskilgreinanlega idm sánd og voru með listamenn á borð við Aphex Twin, Squarepusher, Boards of Canada, Autechre og fleiri á sínum snærum. Frá aldamótunum hafa þeir hins vegar fært út kvíarnar og í dag er erfitt að njörva þá niður í einhvern tiltekinn flokk eða kenna þá við einhvera tiltekna tónlistarstefnu. Einfaldlega frábært label og til fyrirmyndar á margan hátt.

Þeir ætla að halda upp á afmælið sitt á margvíslegan hátt, eitt skemmtilegasta framtakið er “The Vote” þar sem aðdáendum gefst kostur á að kjósa sín uppáhalds Warp lög. Þau lög sem hljóta flest atkvæði verða svo gefin út á safnskífu seinna á árinu. Hver notandi hefur 50 atkvæði en þar sem 10 lög verða kosin á diskin (önnur 10 valin af Warp) ætla ég að smella mínum 10 uppáhalds hérna inn, væri gaman að sjá hvað lesendum finnst í athugasemda dálknum.

1. Aphex Twin – Girl/Boy Song
2. Boards of Canada – Turquoise Hexagon Sun
3. LFO – LFO
4. Nightmares on Wax – Les Nuits
5. Squarepusher – Tundra
6. DJ Mink – Hey! Hey! Can You Relate?
7. Battles – Atlas
8. Flying Lotus – Tea Leaf Dancers
9. Aphex Twin – Flim
10. Thomas – Mindsong

p.s. þetta er ekki í neinni tiltekinni röð heldur bara lög sem ég myndi vilja sjá rata á safnskífu af þessu tagi, þá áskil mér rétt til þess að endurskoða og betrumbæta þennan lista þar sem ég er viss um að ég hafi gleymt einhverju.

Jútjúb Miksteip #5 – Huldumenn

Þemað í þessu mixteipi eru tónlistarmenn sem eru nafnlausir eða andlitslausir með einhverjum hætti, t.d. með því að að hylja andlit sitt á myndum og á sviði, með því að láta raunverulegt nafn sitt hvergi tengjast tónlistinni eða með því að neita því að koma fram opinberlega.

Kannski soldið samhengislaust tónlistarlega séð, en allt er þetta góð músík engu að síður.

.

1. Drexciya – Hydro Theory
Drexciya bjuggu til goðsagnakenndan söguheim í kringum nafn sitt og undir því gáfu þeir út fyrirtaks electro og techno. Undir lokin var það orðið opinbert leyndarmál hverjir stóðu á bakvið nafnið en Drexciya leið undir lok þegar annar meðlimurinn  James Stinson lést langt fyrir aldur fram árið 2002. Get ekki sagt að ég sé ofsa vel að mér í tónlist Drexciya, eitthvað sem ég á alltaf eftir að kafa betur í (verðið á plötunum er ekki beint lokkandi samt!), en Hydro Theory er alger banger! (p.s. föttuðuð þið “kafa betur í” orðaleikinn… hö hö hö!)

.


2. Galaxy 2 Galaxy – Hi Tech Jazz

Underground Resistance hafa merkilega og töff hugmyndafræði, hluti af henni er viðhorf Mike Banks, e.þ.s. Mad Mike, til ljósmynda en hann hylur ávallt andlit sitt þegar hann er myndaður. Þegar ég var yngri hélt ég alltaf að UR hlytu að vera jafn harðir og töff og þeir líta út fyrir að vera á myndum en svo hef ég heyrt og lesið viðtöl þar sem þeir virka sem mestu ljúfmenni, fyrrnefndur Banks þjálfar til að mynda ungmenni í hafnaboltaliði.

.


3. Redshape – The Playground
Ólíkt UR hefur mér alltaf þótt hugmyndafræði Redshape hálf þvinguð og tilgerðarleg, auk þess sem gríman sem hann notar er asnaleg. En tónlistin er góð.

.



4. Burial – Broken Home
Áður enn hallærislegur og siðlaus slúðurblaðamaður setti af stað herför til þess að komast að því hver væri á bakvið tónlist Burial vissi enginn hver Will Bevan var. Tónlistinn verður auðvitað ekki verri við það að vita uppruna hennar en samt hefur hin dularfulli sjarmi horfið. Broken Home er eitt af allra bestu lögum Burial að mínu mati.

.


5. Doom – Lightworks
Doom hylur andlit sitt með fallegri grímu er hann fer með rímur sínar á sviði. Hefur alltaf þótt hann soldið hit & miss gaur sem á frábær lög inn á milli. “Lightworks” er tekið af væntanlegri breiðskífu Doom en takturinn var upphaflega á Donuts plötu J Dilla.

..


Bónus! Afefe Iku – Mirror Dance

Sumir héldu að Osunlade væri Afefe Iku en svo er víst ekki. Afefe Iku er víst bara Afefe Iku. Eða hvað? Mirror Dance er allavega rosalegt lag!

Ghostly International

Ég er staddur í norðurhluta Kaliforníuríkis í Bandaríkjunum þessa dagana. Mun njóta lífsins hér um stund og reyna í leiðinni að drekka í mig bandaríska menningu sem á vegi mínum verður. Síðastliðinn föstudag ákvað ég að bregða undir mig betri fætinum og kíkja á leibelkvöld hjá Ghostly útgáfunni á Mezzanine klúbbnum í San Francisco.

Ghostly 10 ára

Ég hef allt frá því ég heyrði fyrst um þessa útgáfu staðið í þeirri trú að hún væri Techno/House-útgáfa rekin af Matthew Dear (Audion). Svo er hinsvegar ekki. Útgáfan er stofnuð af Sam Valenti IV nokkrum sem ólst upp í nágrenni Detroit borgar. Fyrsti listamaðurinn sem hann réð til sín var hinsvegar Matthew Dear. Undirútgáfa Ghostly, Spectral Sound, er samt sem áður nánast eingöngu Techno og átti t.d. klúbbaslagarann Billy Says Go í fyrra frá títtnefndum Audion.

Listamennirnir sem boðið var upp á voru flestir eitthvað að vefjast fyrir mér – kannaðist ekki við neinn nema stelpu frá Chicago sem heitir Kate Simko og gerir fínasta House. En það er auðvitað bara meira spennandi að vita sem minnst.

Tónlistarfólkið sem ég sá var Michna, Kate Simko, Tycho og The Sight Below (missti af öðrum því ég kom svolítið seint). Allir spiluðu live sett og voru eilítið í DownTempo/IDM áttina, nema þá Kate Simko sem var með pjúra House sett frá byrjun og Michna var að spila einhverskonar skrítið raf-popp. Músíkin var hinsvegar mjög fín oftast og staðurinn og sándið gott. Ég komst líka að því að hönnun er eitt af aðalsmerkjum Ghostly og voru bæði visjúalar (með öllum öktum), bolir og pósterar sem voru til sölu alveg fyrirtak. Ég er þeirrar skoðunnar að hægt sé að blanda hönnun (grafík) og tónlist skemmtilega saman og á Ghostly fólk hrós skilið fyrir vel heppnaða blöndu.

Mæli með að fólk smelli á eitthvað af linkunum og hlusti á tóndæmi.

www.ghostly.com

- Leópold Kristjánsson

Föstudagsflagarinn #3

Ef það er eitthvað nafn í teknóinu sem hljómar gersamlega solid þá er það Slam. Segir einhvern vegin allt. Hljómar líka mun betur en Stuart McMillan & Orde Meikle. Í gegnum árin hafa þeir félagar framreitt eðal house & techno músík fyrir dansþyrsta, bæði sem pródúserar og á útgáfufyrirtæki sínu, Soma Records. Þeir uppgvötvuðu meðal annars Daft Punk, merkilegt nokk!

Ég hef alltaf borið virðingu fyrir köppunum því þeir hafa verið eins og klettur í þessum tískubylgjum sem ríða yfir danstónlistarheiminn með reglulegu millibili. Ef þú vilt solid house & techno, pumpandi og dansvænt, þá finnuru það hjá þeim. Auðvitað víðar, en þið skiljið. Þeir hljóta því þann heiður að eiga þennan föstudagsflagara! Ég spilaði þetta sl. helgi og það komu amk. tveir plötusnúðar í búrið og lýstu yfir ánægju sinni. Frá 1993 og ennþá brakandi ferskt, ‘Positive Education’…

Jón Frímannsson

Syrpu Syrpa #13

DansiDans hlaðvarpið ætti auðvitað að vera meira en nóg fyrir ykkur þessa vikuna! En hér eru linkar á aðrar góðar syrpur sem hafa barið eyru okkar undanfarið.

.

www.club-autonomic.com

Í vikunni datt inn nýr kafli í Autonomic Podcastinu, getið náð í mp3 eða gerst áskrifendur hér. Instra:Mental og dBridge setja saman þessar syrpur og blanda þar eldri áhrifavöldum úr ýmsum áttum við glænýtt drum & bass og dubstep, lagalistarnir eru ekki birtir en ef maður er klár á internetinu ætti ekki að vera mikið mál að grafa þetta upp.

Anja Schneider og félagar hennar hjá Mobilee settu á dögunum í gang podcast, þeir eiga ágætis back catalogue og ófáa hæfileikaríka snúða og listamenn á sínum snærum.

Ég veit ekki hver DJ Vorn er en hann setti saman rosalega Hacienda Classics syrpu þar sem ófáir dansklassíkerar koma við sögu. Mæli með því!

Fræðimenn og fyrirlestrar

Í framhaldi af færslunni um Simon Reynolds í síðasta mánuði langaði mig að henda hérna inn nokkrum tengdum linkum. Fyrirlesturinn sem var tilefni færslunnar var tekinn upp og á hann er hægt að horfa á vefsíðu fact.tv auk þess sem Reynolds mætti í útvarpsþáttinn Exotic Pylon þar sem rætt var um musique concrete og aðra eldri raftóna, þáttinn má nálgast á mp3 hér.

Þessu ótengt en á svipuðum hálf-fræðilegum nótum langaði mig svo að benda á Audio Poverty hátíðina sem fór fram í Berlín á dögunum, skemmtileg blanda af fyrirlestrum, tónleikum og pallborðsumræðum. Á blogginu þeirra má nálgast upptökur af fyrirlestrum og umræðum þar sem m.a. Kode9, DJ/Rupture og Gudrun Gut koma meðal annars við sögu. Forvitnilegt.

Dansidans hlaðvarp #2 – Klive


DANSIDANS FLYER KLIVE

DansiDans Hlaðvarp #2 – Klive

DansiDans er ekki einungis fyrir rafræna-danstónlist heldur fyrir raftónlist almennt, þess vegna kynnum við til sögunar DansiDans hlaðvarp #2 sem er sett saman af  Úlfi Hanssyni sem er ef til vill betur þekktur sem raftónlistarmaðurinn Klive.

Klive gaf út plötuna Sweaty Psalms í fyrra, hún vakti mikla athygli og hlaut víða lof. Hann var meðal annars tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna 2009 sem efnilegasti listamaðurinn. Í Dansidans hlaðvarpi Klive gætir ýmisra grasa, forvitnilegur kokteill af framsækinni raftónlist.

Þú getur náð í syrpuna hér og gerst áskrifandi að hlaðvarpinu hér.

1. Hvernig er syrpan sett saman? Einhverjar pælingar eða þema?
Ekkert sérstakt þema, bara það sem mér finnst vera spennandi og ferskt!

2. Hvað ertu annars að bralla þessa dagana?
Er að klára nokkur lög með swords of chaos, fyrir upptökur í vor.

3. Hvernig finnst þér “senan” á Íslandi?
Ég veit ekki alveg hvaða senu er átt við… raftónlist eða danstónlist?

4.Hvað fílarðu?
Ég fíla dauðarokk

5. Linkar / Plögg / Lokaorð?
dublab.com! tékkið á stream-inu.. eðall!!!!
www.myspace.com/kliveisklive
www.myspace.com/swordsofchaos

Lagalisti:

  1. Tusken Raiders – Bantha Trax
  2. Michel Redolfi – Envol
  3. Michel Chion – Epitre
  4. Richard Devine – Retrace Fader
  5. Terminal 11 – In place of love
  6. Team Doyobi – Choose your own adventure
  7. Matmos – Rainbow flag
  8. Diano Felipe – Slut petal
  9. Cave – Drum like devil
  10. Andrew Pekler – Arches
  11. Klive – Swoon
  12. Oren Ambarchi – Remedios the beauty

Hið glæsilega hlaðvarpsumslag er hannað af Geoffrey.