Monthly Archives: apríl 2009

Tone matrix

Hér má finna skemmtilegan internet-step-sequencer, má eiga góða stund á þessari síðu og drepa tíman. Vafalítið hefur þetta project orðið fyrir áhrifum frá Yamaha Tenori On en þetta er  skemmtileg útfærsla engu að síður.

Linkinn fékk ég af Sonic Router Twitternum.

Last.fm og Soundamus

Rakst á skemmtilegt internetfyrirbæri um helgina, hið svokallaða Soundamus. Þessi vefsíða tekur upplýsingar af tónlistartengdum samfélagsvefjum (eins og t.d. last.fm eða iLike) og tengir þær við væntanlegar útgáfur. Útfrá áhugasviði þínu bendir  Soundamus þér á plötur og geisladiska sem eru að koma út á næstunni og eru líklegar til að falla þér að skapi. Þú getur svo gerst áskrifandi af rss feedi af herlegheitunum og þannig fylgst með því hvað ratar í plötuverslanirnar á næstunni.

Hér getur að líta feedið sem smíðað var úr mínum prófílupplýsingum af last.fm. Sýnist þetta vera nokkuð nærri lagi, skemmtileg blanda af underground dóti og meira mainstream útgáfum. Getur verið skemmtileg leið til þess að fylgjast með nýrri og væntanlegri músík.

Svo er kannski rétt að benda á dansidans.com last.fm grúppuna sem við stofnuðum nýverið, endilega gangið í hana ef þið notist við Last.fm.

Myspace Rúntur #2

Ætla aftur að taka smá Myspace rúnt og benda á upprennandi tónlistarmenn. Í þetta sinn leitum við út fyrir landsteinana og er soldið elektrónískt hip hop / dubstep þema í gangi. Sumir þessara gæja eru vissulega búnir að gefa eitthvað út, en eru samt ekki á vitorði allra.

Afta-1 er Kalifornískur bítsmíður sem er að gera ansi skemmtilegt stuff. Þetta er í þessum Dilla / Madlib / Fly Lo fíling sem tröllríður öllu þessa dagana en þessi piltur býr sér til sitt eigið grúv úr áhrifavöldunum. Remixið hans af “Tiden Flyver” finnst mér sérstaklega skemmtilegt. Andri Már fær þakkir fyrir að benda á þennan dúd.

Chris Coda átti tvö frábær lög á Dat Music 2 safnskífu Soul:R útgáfunnar. Vonandi pikkar einhver upp meira stöff frá honum því efnilegur er hann, tengir dubstep, dnb og hip hop saman á skemmtilegan hátt. Hef gaman af “Liminal” og “Take a Walk” auk þess sem “U142″ og “Heading North” af fyrrnefndri safnskífu eru fyrirtak!

Skylab er Ný Sjálendingur sem er með aðeins funkaðara sánd. “Ay Hay” er frambærilegt og “The Pull” er líka gott. “Rolls Royce” er hins vegar hrikalegt, minnir mig á ónefndan íslenskan rappara.

Svo fær rapparinn Self Sez link hér en hann var að gefa mp3 breiðskífu á netinu sem á ágætis spretti og fínustu pródúserar koma þar við sögu.

Karl Tryggvason | ktryggvason@gmail.com

Dansidans hlaðvarp #3 – Oculus

oculussull1

DansiDans Hlaðvarp #3- Oculus

Undanfarin misseri hefur farið sífellt meira fyrir listamanninum Oculus í íslensku danssenunni. Hann hefur gefið út hvern singullin á fætur öðrum sem hefur fallið vel kramið hjá íslenskum og erlendum plötusnúðum auk þess sem live spilamennska hann hefur ítrekað heillað áhorfendur upp úr skónnum.

Ég sá hann fyrst live þegar að hann hitaði upp fyrir Stephan Bodzin og má segja að hann hafi gjörsamlega trylllt lýðinn. Bodzin sjálfum tókst  ekki að toppa stemninguna sem myndaðist Oculus flutti tóna sína. Það er dansidans mikill heiður að kynna til sögunar þriðja hlutan í hlaðvarpi okkar, live sett frá Oculus sem vinir og vandamenn þekkja annars betur sem Friðfinn.

Þú getur náð í syrpuna hér og gerst áskrifandi að hlaðvarpinu hér.

1. Hvernig er syrpan sett saman? Einhverjar pælingar eða þema?
Live settið er sett saman med sampler/sequencer, syntha, trommuheila, cdj, mixer og effectum. Ég tók upp settið í einu go, ekkert edit, skemmtilegra ad hafa mistökin med. Þá fær þetta smá sál.

Ég byrjaði settið á titil lagi nýrrar plötu sem heitir “Deep” og var gefin út á Communique Records. Settið byggði síðan út frá því. Einnig er þarna lag sem heitir “Heard it in a set” sem er af sömu plötu og ætti að láta húsid þitt nötra í góðu blasti. Svo er þarna líka að finna titillag nýjustu plötunnar mínnar sem heitir Awake og Uni sem er af sömu plötu, annars er mest af lögunum óútgefin og sumt bara improvisation. Þannig þetta svolítið exclusive fyrir ykkur.
 
2. Hvað ertu annars að bralla þessa dagana?
Þessa dagana er ég að reyna vera duglegur ad spila músikina mína live á skemmtistöðum, gera músik á fullu og reyna skila af mér plötum sem ég er búinn að lofa. Ég var ad klára tvær  EP plötur fyrir plötufyrirtæki sem heitir Open Concept Records og er í dreifingu hjá Clone Records.
 
Sú fyrri kom út 26 mars og ber nafnid Awake og er búin ad fá mjög gott support frá stórum díjeium sem er alltaf gott, meðal annars :Laurent Garnier, Anderson Noise, Deadbeat, F.E.X., Alexi Delano, Nick Warren, Justin Robertson, Steve Porter og  Tom Findlay úr Groove Armada.  Sú seinni verður gefin út í vor og á held ég eftir að gera góða hluti. Ég er búinn ad vera prófa að spila þau lög í live settunum mínum og þau svínvirka. Einnig eru fleiri plötur og remix væntanleg sem ættu að detta inn á Beatport á næstu 1 eða 2 mánuðum.
 
Svo er ég búinn ad vera aðeins ad gæla við dnb og dubstep sem að mér þykir yndislega skemmtilegt og er að plana að spila smá þannig á næstunni en það er annað project.
 
3. Hvernig finnst þér “senan” á Íslandi?
 Senan finnst mér helvíti góð. Það er margt að gerast og margt í uppbyggingu. Mér finnst þjóðin búinn að dansvæðast mjög og  þótt mikið af fólki hlusti á frekar gelt electro house er það okkur hinum bara til góðs því það verður til þess að  fólk verður aðeins opnara fyrir góðri dansmúsik.
 
Svo held ég að það sé að koma frekari uppsveifla í íslenskri danstónlist. Fólk er að  verða duglegra að vilja spila og koma músikinni sinni út. Músikin á helstu skemmtistödum bæjarins finnst mér vera til sóma. Þannig ég gæti eiginlega ekki verið kátari með þetta.
 
4.Hvað feelaru?
Ég fíla búmmtjicatji med feitum bassa.
 
5. Linkar / Plögg / Lokaorð?
Plögg óje.  4. apríl mun ég spila á nýjum stad sem heitir London/Reykjavík og
dj´a á kaffibarnum med Sexy Lazer. 10. april er ég á Akureyri Sjallanum ásamt  GusGus og Wolfgang Gartner. Þann 12 april er ég á Barcodekvöldinu á Jacobsen ásamt Impulce (live) og öllu Barcode Dj genginu. Endilega tjekkiði svo á Deep EP og Awake EP á Beatport.com
Lagalisti:
1.Oculus – Deep (Communique Records)
2.Oculus – Improv
3.Oculus – No name
4.Oculus – No name
5.Oculus – Heard it in a set – Oculus (Communique Records)
6.Plastic rythm – Don´t Break my Soul Oculus remix
7.Improv
8.Oculus – UNI (Open Concept Records)
9.Improv
10.Oculus – Awake (Open Concept Records)
11.Oculus – no name
12.Oculus – juno me (unreleased)
 
Hið glæsilega hlaðvarpsumslag er hannað af Geoffrey.

Ólafur Arnalds og Janus í Techno-ið

Þungarokkskrúttarinn Ólafur Arnalds og Færeyski Electropopparinn Janus Rasmussen (Bloodgroup) eru á einu máli um að Minimal Techno geti verið skemmtilegt og hafa því stofnað dúó-ið Kiosmos. Fyrsta útgáfa strákanna verður split-12″ með Rival Consoles á Ereased Tapes útgáfunni – sem er einmitt útgáfan sem gefur soloverkefni Ólafs út.

Dansidans.com er auðvitað sérstakur stuðningsaðili norðurlandasamstarfs og því verður gaman að sjá hvað úr þessu þróast hjá strákunum.

Ólafur og Janus

Helgin 2.-5. apríl

Hellingur um að vera um helgina, opnunarhelgi með spennandi line-up hjá skemmtistaðnum London/Reykjavík, Breakbeat kvöld og fleira á Jacobsen og Sexy Lazer og Oculus á Kaffibarnum.

Á föstudagskvöldinu verða Asli, Paul Moritz og Sveinar bakvið spilarana á spánýjum skemmtistað sem hefur fengið nafnið London/Reykjavík. Á laugardaginn eru það svo Danni Bigroom og Mr. Cuellar sem sjá um tónlistina á þeim bæ en ásamt þeim mun  Oculus koma fram með live sett. Oculus mun svo síðar þetta kvöld þeyta skífum með Sexy Lazer á Kaffibarnum.

.

reykjavik

Staðurinn er staðsettur  á Tryggvagötu 22 eða þar sem gamli Gaukurinn/ Tunglið var.  Gríðalegur metnaður ku hafa verið lagður í útlit staðarins og lúkkar hann vel af myndunum að dæma (sjá hér að ofan t.d) . Flexbróðirinn Kiddi Ghozt er skemmtanstjóri á staðnum svo að búast má við skemmtilegum stað. Kem með djammrýni af staðnum eftir helgi.

Á Jacobsen í kvöld verður að finna drum & bass, jungle og dubstep á fastakvöldi Breakbeat.is. Dubstep er mjög fersk og spennandi stefna og  ótrúlegasta fólk sem fílar hana. Hingað til hef ég aðeins fundið einn mann sem fílar ekki dubstep. Line up-ið fyrir kvöldið í kvöld er Árni, Tryggvi og Gunni Ewok, þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem Tryggvi er bakvið spilarana og því vel þess virði að gera sér ferð á Jacobsen til að heyra hann spila.

Á Jacobsen á laugardaginn mun Natalie aka Dj  Yamaho sjá um tónlistina á efri hæðinni en undirritaður verður á neðri hæðinni.

Magnús Felix | magnusfelix@gmail.com

Syrpu Syrpa #16

Mix, mix, mix… Hér eru nokkur góð fenginn í hressandi hlaðvarpsáskrift!

Move D

Þjóðverjinn Dave Moufang er betur þekktur sem Move D og hefur undir því nafni samið fínustu músík í hinum ýmsu stefnum og straumum. Hann spilaði sett á New York klúbbnum The Bunker um daginn og skilaði syrpan sér í hlaðvarp Bunker manna. Gott house grúv í gangi þar.

Umboðsskrifstofan Reprise Agency er líka með öflugt hlaðvarp í gangi og nýjasta syrpan í röðinni er frá Hessle Audio meðliminum Pangea. Frábært sett þar sem hann blandar saman dubstep, grime og old skool hardcore tónum.

Að lokum er rétt að benda á nýjasta kaflan í Club Autonomic podcastinu, dBridge og Instra:Mental týna til tónlist frá áhrifavöldum sínum og smella svo saman glænýju drömmenbeisi í góða sveiflu. Meðal listamanna sem eiga plötu á fón í þessari syrpu má nefna Prince, Boards of Canada, Zapp og Vangelis.