DansiDans.com – Raf- og danstónlist á Íslandi

Entries from maí 2009

Helgin 29. maí – 31. maí

maí 29, 2009 · Rita ummæli

Hellingur um að vera þessa helgi enda Hvítasunnuhelgi. Í kvöld verður hinn þýski Fritz Windish í Jacobsen kjallaranum ásamt Jack Schidt og á Kaffibarnum er svo live act frá hljómsveitinni Sykri og dj sett frá Alfons X.

.

Annað kvöld munu þeir Frímann og Arnar halda upp á 10 ára afmæli Hugarástands kvöldanna á Jacobsen. Fjörið hefst klukkan 10 með Dj setti frá BenSol, svo taka þeir Hugarástandstrákar við og spila frameftir nóttu. Eins og fram kom í færslunni hér á undan verða þeir félagar í Reyk Veek með kvöld á Nasa þar sem fram koma Asli, Orang Volante, Oculus, Karíus & Baktus og Siggi Kalli.

.

breakbeat

Á sunnudaginn verður síðan Breakbeat.is all nighter á Jacobsen. Breakbeat.is kvöldin hafa heldur betur slegið í gegn undanfarna mánuði og má því búast við hörkufjöri á á sunnudaginn. Oldskúl hetjan Agzilla verður bakvið spilarana ásamt Breakbeat.is fastasnúðnum Kalla sem er nýkominn heim frá Hollandi eftir ársdvöl með fulla tösku af plötum. Tilefni kvöldsins er opnun nýrrar vefsíðu Breakbeat.is

Flokkar: Helgin
Tagged: , , , , , , ,

Reyk Veek nýtt íslenskt label

maí 26, 2009 · 7 Ummæli

Reykveek

Þótt mikil gróska hafi verið í Íslensku tónlistarlífi undanfarin ár og upp hafi sprottið þó nokkur útgáfufyrirtæki hefur ekkert þeirra sérhæft sig í raf- eða danstónlist. Á því verður þó breyting á næstunni en nokkrir íslenskir plötusnúðar og tónlistarmenn hafa tekið sig saman og sett á laggirnar útgáfuna Reyk Veek sem mun feta í fótspór labela á borð við  Thule og Pineapple og gefa út íslenska danstónlist. Við hjá DansiDans fílum þetta framtak og ákvaðum að taka smá viðtal við strákana.

1. Hvað er Reyk-Veek?
REYK VEEK er samrýmdur hópur skipaður íslenskum neðanjarðar technolistamönnum. Lengi hefur vantað almennilega útgáfu fyrir íslenskt neðanjarðar techno.

2. Hverjir standa bakvið Reyk-Veek
Karíus & Baktus
, Oculus, Asli, Orang Volante, Siggi Kalli og Fúsi Axfjörð

3. Ætliði gefa út eigið efni á labelinu?
Það er planið. Við erum allir búnir að semja mjög mikið efni og það er kominn tími til að fólk fái að heyra ;)

4. Ætliði einungis gefa út íslenska listamenn?
Til að byrja með já en hver veit hvernig þetta gæti þróast.

5.Verður það vinyl,mp3 eða bæði?
Við urðum allir ástfangnir af vínyl á einhverju tímabili svo við getum ekki annað en gefið út á vínyl og svo verðum við út um allt netið líka.

6. Hver er hugmyndin bakvið nafnið?
Reyk Veek er fyrsta útgáfan fyrir neðanjarðar techno á Íslandi (innskot ritstjóra: það má nú deila um það) og auðvitað elskum við allir Reykjavík en nafnið virkar líka vel á erlendri grundu þar sem við gefum út undir nafninu VEEK.

7. Mun Reyk Veek reyna að standa fyrir atburðum, með erlendum listamönnum?
Í augnablikinu erum við að einbeita okkur af því að kynna íslenska techno tónlist en hugmyndin um að flytja inn einhvern töffara er freistandi og mun sjálfsagt gerast með tímanum.

8.Eitthvað plögg að lokum?
Fyrsta Reyk Veek kvöldið verður haldið á Nasa 30.maí. Fyrstu 300 gestirnir fá fyrstu skífa Reyk Veek (VEEK 001) sem er safndiskur með frumsömdu efni frá Reyk Veek gefins. Þar koma fram flestir meðlimir Reyk Veek með hljóðræna og sjónræna upplifun svo ekki láta þig vanta. Kvöldið byrjar á miðnætti og heldur áfram inn í nóttina. Leitið að okkur á facebook til að fá frekari upplýsingar.

pís

RV
———–

Flokkar: Umfjöllun · íslenskt
Tagged: , , , , ,

Red Bull Music Academy

maí 24, 2009 · 3 Ummæli

Orkudrykkjaframleiðandinn Red Bull stendur fyrir fróðlegri og spennandi tónlistarakademíu, sem gengur undir hinu frumlega nafni Red Bull Music Academy. Þar safnast saman tónlistarmenn, plötusnúðar og annað bransalið hvaðanæva að úr heiminum. Þátttakendur dveljast í tvær vikur í akademíunni og eyða dögunum í tónsmíðar, smiðjur, fyrirlestra og viðtöl við heimsfrægt tónlistarfólk (hægt er að horfa á mörg frábær viðtöl hér).

rbmalogotk0

Akademían flakkar heimshornanna á milli og hefur átt höfuðstöðvar sínar í Barcelona, Sao Paulo og Melbourne en næsta útgáfa hennar verður haldin árið 2010 í London. Fyrir skemmstu opnuðu Red Bull liðar fyrir umsóknir fyrir London akademíuna en ótal áhugasamir einstaklingar sækja um á ári hverju enda til mikils að vinna (Red Bull borgar brúsann). DansiDans hvetur efnilegt og áhugasamt íslenskt tónlistarfólk til þess að sækja um. Jafnvel þótt maður hreppi ekki hnossið er umsóknarferlið sjálft gagnlegt og skemmtilegt og getur skerpt á áætlunum manns og áherslum í tónlistargrúski.

Þátttakendur fyrri ára hafa sumir hverjir gert mjög góða hluti eftir akademíudvöl sína (en meðal þeirra má nefna Aloe Blacc, Flying Lotus, TRG, Hudson Mohawke og Culoe De Song).

Flokkar: Umfjöllun · fréttir · linkar

Jútjúb Miksteip #7 – Them summer tracks maður

maí 21, 2009 · 5 Ummæli

Sólin hefur aldeilið leikið við okkur íslendinga undanfarna daga og er þá fátt betra að gera en að njóta hennar á meðan maður hlustar á eðalgroove. Í þessu mixteipi ætla ég að benda á nokkur sem ég af einhverjum ástæðum tengi við sumar og sól.


1.Nuyorican Soul – Runaway

Nuyorican Soul er hliðarverkefni þeirra Louie Vega og Kenny Dope, en þeir félagar eru betur þekktir sem Masters At Work. Sem Nuyorican Soul fá þeir hljóðfæraleikara með sér í lið og semja soul tónlist. Í þessu lagi fá þeir söngkonuna India til að syngja en lagið er upprunanlega eftir Lolleata Holloway.


2.Johnny D – Walkman

Etríski Þjóðverjin Johannes Debese aka Johnny D átti lag ársins í fyrra að mínu mati. “Walkman” er frá árinu 2007, hann hefur búið sér til einskonar signature sound með því að syngja yfir lögin sín. Af einhverjum ástæðum minnir þessi söngur mig á BÓ sem mér finnst “smart” og líður þess vegna “smart” þegar ég hlusta á þetta lag. Að vera smart í sólinni er mikilvægt, því er gott að hafa þetta lag við hendina.


3.Shaun Escoffrey – Days like these (Dj Spinna rmx)

Ef laglínan er kominn inn og þú ert ekki farinn út að grilla þá ganga hlutirnir ekki upp.


4.Inner City – Good Life

“No more rainy days,the sun will chase the clouds away.” Kevin Saunderson kom house á kortið í Bandaríkjunum með þessu lagi. Mér finnst allt vera sumarlegt við þetta lag, syntharnir, hljómagangurinn og textinn. Myndbandið hér fyrir ofan er tekið í London 1989, tékkið á gæjanum á trommudótinu hann er á fleygiferð.


5.Hardsoul feat.Ron Carrol -Back together

Þetta lag er að finna á Party Zone summer disknum. Ron Carrol sem síðar söng lagið “Lucky Star” sem komst í spilun á Popp Tívi syngur hér rosalega cheesy texta og er lagið sjálft frekar cheesy, samt alveg geðveikt.

Flokkar: Jútjúb Miksteip
Tagged: , , , , , , , , ,

SyrpuSyrpa #19

maí 21, 2009 · 2 Ummæli

Eins og venjulega er hellingur af skemmtilegum plötusnúðum að deila mixum á netinu og ætla ég að benda á nokkur mix sem ég hef verið að hlusta á.

Andri Már betur þekktur sem AnDre , hefur undanfarnar vikur verið að moka inn gæða mixum á Soundcloud síðuna sína. Mixin hans er fjölbreytt og skemmtileg allt frá hip hoppi í  minimal teknó. Þá mæli ég með mixinu Summer Nights því það groovar vel, sérstaklega í því veðri sem hefur verið undanfarið. Mixin getið fundið hér.

bypass

Plötusnúða tvíeykið Bypass hefur verið að gera það gott þrátt fyrir ungan aldur, strákarnir gerðu maí mix um daginn og sem inniheldur og Track 1 með Kerry Chandler. Hér má finna þetta skemmtilega mix og einnig er vert að tékka á myspace-inu hjá þeim félögum, því þeir luma á fleiri skemmtilegum mixum.

Að lokum vil ég svo ráðleggja fólki að gerast áskrifendur af hlaðvarpinu okkar því við eigum von á mixum frá alveg frábærum plötusnúðum á næstunni.

Flokkar: Syrpu Syrpa
Tagged: , , ,

Þrjú góð viðtöl

maí 18, 2009 · 1 ummæli

Viðtöl við raftónlistarmenn eru oft hundleiðinleg, jafnvel þegar um er að ræða frábært tónlistarfólk falla viðtöl við þá alltof oft í gamlar klisjugryfjur auk þess sem fólk er of dipló og pólitískt eða upptekið í markaðssetningu. Auðvitað eru til undantekningar á þessu og á síðustu dögum hef ég rekist á þrjú forvitnileg og skemmtileg viðtöl við ólíka en skemmtilega tónlistarmenn. Fyrst er það ýtarlegt og langt viðtal við Kode9 á vefsíðu tímaritsins The Wire og svo eru það tvö viðtöl sem bloggarinn og blaðamaðurinn Martin Clark tók við Silkie annars vegar og hins vegar við Loefah og Kryptic Minds.

Allt eru þetta löng og ýtarleg viðtöl sem ekki er hægt að reyfa í stuttu máli, en mig langar samt að drepa niður á nokkrum puntkum þarna, forvitnilegar hugmyndir sem eiga ekki bara við um dubstep:

Kode9: It’s following the flow but constantly trying to engineer the flow into something that’s going to work in the present. And I suppose this is a general, it’s not just my orientation it’s a maybe general orientation. Which is why futurism isn’t so big these days. Because it’s very hard to come with these big pronouncements about building new things, because you mght actually manage to pull it off, but bloggers, brand consultatants, futurologists, marketing experts, journalists, other musicians will make sure that gets over exposed very quickly. The time gap of doing something new and it not being new any more is so small, to the point where it’s almost flipped over where everything is being pre-empted. That’s the downside of Web 2.0 isn’t it, that everything essentially becomes a text, you just Google something, play around with the words a bit and you’ve pre-empted five, 15 different genres. I remember MP3.com used to have this genre generator. And it would come up some random conbination of words. Like ‘Hyperdub’ for example [laughs]. But everything has already been pre-empted. And that allows people to be so cynical when something actually does happen, because they think they foresaw it.

Loefah: Bruv, I’m writing 138bpm 808 beats right now but it’s nothing to do with funky. But you know what, I wanna do some club shit? I still want to make people dance, not force them to dance.

Blackdown: Ask them to dance!

Loefah: That’s exactly it, offer them your hand!

Silkie: The way I look that me, Quest and Anti Social make is it’s music to dance to, not music to bang your head to. You can do your own dance, your shoulder dance or nod your head – you don’t have to go all out. And that’s why I like to do long sets. I’ve been getting two hours sets recently, I feel like it really represents me, I want to go everywhere. I’ll play the hard aggressive tune at the right time but at the same time I’ll bring it all the way down to something else that’s nice and mellow. The way I see it is a banger is only a banger if the last tune wasn’t. You have to go harder and harder and harder. It’s like heroin: in the end you don’t feel it.

Góðar pælingar…

Flokkar: Umfjöllun · linkar · pælingar

Hvað er hlaðvarp?

maí 12, 2009 · 2 Ummæli

Nokkrar fyrirspurnir hafa borist til síðuhaldara um hlaðvarpið okkar og um hlaðvörp almennt, sem við erum duglegir að linka á í færslum hér á dansidans. Virðast ekki allir hafa skilið hvernig þessi tækni virkar, þannig að hér kemur tilraun til þess að útskýra hvernig þetta þetta gengur fyrir sig allt saman.

Enska orðið podcast er nýyrðasmíð sett saman úr orðunum pod (ipod) og broadcast, á íslensku hefur þetta verið kallað hlaðvarp sem að sama skapi er samsett úr því að hlaða (hlaða niður / hala niður) og varpa (útvarp, sjónvarp, netvarp). Í stuttu máli sagt er hlaðvarp leið til þess að miðla ýmis konar tölvuskrám til netnotenda í gegnum áskrift.

Tæknin virkar þannig að eigandi hlaðvarpsins býr til svokallað “feed” sem samanstendur af upplýsingum um hlaðvarpið auk einstakra færslna sem innihalda hlekki á efnið sem miðla á (hvort sem það eru myndbönd, útvarpsþættir eða önnur skjöl). Netverjar sem hafa áhuga á því að gerast áskrifendur að hlaðvarpinu taka slóðina á “feedið” og setja hana inn í þar til gert forrit sem athugar svo með reglulegu millibili hvort ný færsla og þar af leiðandi nýr hlaðvarpsþáttur hafi dottið inn. Þegar svo er nær forritið sjálfkrafa í nýja þætti, hleður þeim niður á harða diskinn og setur þá jafnvel á mp3 spilara sem eru tengdir tölvunni. Svo getur tölvueigandinn hlustað/horft á/lesið herlegheitin þegar þér hentar.

iTunes forritið frá Apple er sennilega langvinsælasta hlaðvarps forritið en þó eru til mörg önnur forrit sem nýtast má við í sama tilgangi. Winamp, Doppler, Juice og Bloglines bjóða öll upp á hlaðvarpsáskrift en fleiri leiðir eru til. Prófið t.d. að leita að podcast client, podcast application eða öðru slíku á Google.

Það sem að þú, lesandi góður, þarft að gera ef hafir þú áhuga á að stofna til netvarps áskriftar er að setja eftirfarandi slóð: http://feeds2.feedburner.com/dansidans

inn í hlaðvarpsforritið sem þú notar. Í iTunes fer maður í advanced valmyndina, velur þar subscribe to podcast, límir inn slóðina í þartilgerðan glugga og smellir á ok. Önnur forrit ættu að vera með svipaða valmöguleika, t.d. “add podcast” eða “subscribe to podcast”. Ef þú ert með itunes uppsett á tölvunni geturðu líka einfaldlega prófað að smella hér. Þar með ert þú kominn í áskrifendahóp DansiDans hlaðvarpsins, fríður flokkur smekksmanna og kvenna sem mánaðarlega fá nýtt mix frá flottustu plötusnúðum og tónlistarmönnum þjóðarinnar.

Nánari upplýsingar um hlaðvarp má finna á vef RÚV, á mbl.is og Wikipedia

Að lokum eru hér hlekkir á önnur danstónlistarhlaðvörp sem DansiDans mælir með:

Resident Advisor
Bodytonic

Autonomic Podcast

XLR8R
Metalheadz Podcast

Úrvalið er þó nánast endalaust og má finna ótal skemmtileg hlaðvörp um alla heima og geima. Eins og skáldið sagði leitið og þér munuð finna.

Flokkar: Umfjöllun · íslenskt

Dansidans hlaðvarp #4 – Leópold Kristjánsson

maí 8, 2009 · 9 Ummæli

DANSIDANSLESBOPOLD1DansiDans Hlaðvarp #4- Leópold
Leópold Kristjánsson er kannski þekktastur íslenskri danstónlistarsenu fyrir að hlutverk sitt í Breakbeat.is samsteypunni en ófáir hafa þó kynnst öðrum hliðum á kappanum t.d. skemmtilegum plötusnúningum og tónsmíðum í hás og teknó geirunum. Fjórða hlaðvarp DansiDans.com er einmitt á þeim buxunum en Leópold setti saman fyrir okkur fjölbreytt og frábært sett með fullt af glænýju efni.
Leópold býr um þessar mundir í Berlín og nú á dögunum gaf hann út ep hjá útgáfufyrirtæki þar í bæ, Deepeel Records.
.
Þú getur náð í syrpuna hér og gerst áskrifandi að hlaðvarpinu okkar hér.
,
1. Hvernig er syrpan sett saman? Einhverjar pælingar eða þema?
Syrpan er tekin upp gegnum Rane mixer, tvo SL-1200 spilara og einn CDJ-1000. Var svo með Kaos Pad 2 fyrir effekta en notaði tækið lítið. Lögin í syrpunni eru flest ný eða nýleg og frekar dæmigerð fyrir það sem ég er mest að spila núna. Kemur auðvitað fyrir að maður spilar eitthvað allt annað – en þetta er frekar standard hljómur.
.
2. Hvað ertu annars að bralla þessa dagana?
Var að gefa út mína fyrstu EP-plötu á lítilli þýskri útgáfu sem heitir Deepeel. Lögin ættu að vera komin í allar helstu plötu- og mp3-verslanir (fyrir utan Beatport, verður þar um miðjan maí).  Platan hefur gengið vel finnst mér og verið að fá stuðning manna eins og Dave Ellesmere/Microfunk (Remote Area), Jeff Samuel (Poker Flat) og Someone Else (Foundsound). Er svo búinn að vera að vinna í nýrri músík undanfarið. Vonandi að eitthvað af því lendi í útgáfu seinna á þessu ári. Fyrir utan þetta er ég bara að njóta lífsins og reyna að tengja saman tónlist og arkitektúr.
.
3. Hvernig finnst þér “senan” á Íslandi?
Ég hef búið í Berlín í rúm 2 ár núna og senan hér er góð. Ótrúlega margir spennandi
hlutir í gangi sem vel er að staðið. Ég hef svo auðvitað átt margar að mínum bestu danstónlistarstundum á íslenskum stöðum þannig að senan heima er sömuleiðis mjög flott. Gaman að sjá hvað Breakbeat.is kvöldin ganga vel og skemmtilegt að fólk sé að taka vel í nýjungar í Breakbeat geiranum. Líka fullt af góðum dansmúsíkköntum heima! Er að heyra frábært stöff mjög reglulega. Eiginlega of margir til að telja upp að gera góða músík, myndi skammast mín ef ég skildi einhvern útundan í upptalningu – svo ég sleppi því bara.
.
4.Hvað fílarðu?
Heilmargt og fjölbreytt, en í Techno og House tónlist er ég t.d. að fíla allt það sem eru í mixinu mínu. Hef undanfarið verið mjög hrifinn af fyrirtækjum eins og LoMidHigh, Circus Company, Oslo og mörgum mörgum fleirum. Hef ekki ekki viljað hafa hlutina of hreina upp á síðkastið, en kannski breytist það. Deepeel verður svo dúndur leibel á komandi mánuðum og árum! Svo er ég líka áhugamaður um almennileg hljóðkerfi á klúbbum, dansmúsík undir berum himni og plötusnúða sem taka starfi sínu alvarlega.
.
5. Linkar / Plögg / Lokaorð?
Langar að plögga Ep-inn minn og hlaðvarpið mitt (sjá hlekk á myspace síðuna mína). Svo er ég að fíla nokkra tónlistarmenn og útgáfur sem eru að koma undir sig fótunum. Þar má nefna Dom Haywood (myspace.com/domhaywood), Keinemusik útgáfuna (myspace.com/keinemusik) og Adam Port (myspace.com/adamport) t.d..
.
.

Lagalisti:
1. Leopold Kristjansson – 22:55 (CDR)
2. Frank Leicher – Lazy Weather (Christian Burkhardt Remix) (Einmaleins Musik)
3. Vera – Hooked up with the drums (Moon Harbour)
4. Leopold Kristjansson – Tail Feathers (Deepeel)
5. Ryo Murakami – Java (Poker Flat)
6. Tiefschwarz – Best Inn (Souvenir)
7. Steven Beyer – Ecuna Me Pasa (Extra Smart)
8. Ricardo Villalobos – Baila sin Petit (Sei es Drum)
9. Dan Drastic – Slice of Life (Moon Harbour)
10. Boola & Demos – Thirst Duub (LoMidHigh Organic)
11. Leopold Kristjansson – Canned Heat (CDR)
12. Minimono – Ratman (Tuning Spork)
13. Daniel Steinberg – Pay for me (Lauhaus remix) (Style Rockets)
14. Serafin – Syndroma Liguria (Sushitech Purple)
15. Till von Sein – Ovas (Catz n’ Dogz Ohne FX remix) (Dirt Crew)

Hið glæsilega hlaðvarpsumslag er hannað af Geoffrey.

Flokkar: Podcast
Tagged: , , ,

SyrpuSyrpa # 18 Party Zone special

maí 6, 2009 · 5 Ummæli

mynd_0125564

Þeir Helgi Már og Kristján Helgi hafa staðið fyrir Dansþætti þjóðarinnar í tæp 20 ár. Á þessum tíma hefur þátturinn spilað stórt hlutverk í íslensku senunni og hafa þeir félagar einnig verið duglegir að halda danstengda viðburði.

Ég byrjaði að hlusta á danstónlist árið 2004 og var mér þá bent á Party Zone. Síðan  hef ég reynt að vera duglegur að fylgjast með og hlusta á þáttinn. Ég á mér nokkra uppáhalds þætti og ætla að benda á þá í þessari færslu.

Party Zone  all time top 40
1.nóv 2003

Þessi þáttur kom mér í kynni við alveg æðisleg lög. Enda var listi með 40 bestu danslögum allra tíma frumfluttur í þættinum. Ég kynntist lögum eins og Good Love, Muzik X-press, Gypsy Woman, Purple (lang besta lag GusGus), Red one og All night Long. Listan er hægt að sjá hér og þáttinn má ná í  hér. Mæli sérstaklega með að þeir sem þekkja aðeins nýmóðins teknó hlusti á þennan þátt, skemmtileg sögukennsla.

Tommi White Party Zone
5.mars 2005

Alveg síðan ég byrjaði að hlusta á danstónlist, hef ég  verið mikill aðdáandi Tomma White. Paradise var ein af fyrstu plötunum sem ég keypti mér og ég hlustaði á eitthvað Kahlúa mix eftir hann í gríð og erg. Ég man sérstaklega eftir þessum þætti vegna þess að ég fílaði settið hans svo vel. Þáttinn má nálgast hér.

Party Zone 1995 special
15.apríl 2006

Þeir félagar stóðu fyrir könnun um hvaða þema þeir ættu að velja fyrir þema þáttin sinn og varð 95 fyrir valinu, enda oft talað um að 95 hafi verið árið sem senan ,,peakaði” á Íslandi. Þátturinn er fullur að klassikerum frá þessu ári og hægt er að nálgast hann hér.

Party Zone Old skúl house
22.mars 2008

Þema-ið var tónlist frá árunum 84-91  eins og Acid House, Italo og Chicago House. Dj Shaft  var gestur í þættinum og lög eins og Big fun voru spiluð. Þáttinn má nálgast hér.

Árslisti Party Zone 2008

31.janúar 2008

Ég var einstaklega ánægður með þennan lista. Nokkur lög af mínum lista rötuðu þarna inn og var listinn almennt skemmtilegri og fjölbreyttari en hann hafði verið áður, minna af proggi og electroi sem hafði einkennt lista fyrri ára. Árslistapartýið var síðan mjög skemmtilegt. Þáttinn má nálgast hér og listan sjálfan hér.

Auðvitað mætti lengi telja til frábæra þætti og mp3 safn PZ.is spannar svo ekki alla sögu þáttarins (þeir Party Zone piltar hafa gefið því undir fótinn nýlega að setja gamlar spólur á stafrænt form, það væri frábært framtak!). Endilega bendið á ykkar uppáhalds þætti í athugasemdum.

Magnús Felix |magnusfelix@gmail.com

Flokkar: Syrpu Syrpa · íslenskt
Tagged: , , , ,

Topp 10 – Maí 2009

maí 2, 2009 · 7 Ummæli

Magnús Felix

1. LoSoul – GridLock (Playhouse)
2. 2020 Soundsystem – Sliding Away(Johnny D dub mix) (2020 Vision)
3. Til Von Sein – Ovas(Catz ´n dogz rmx) (Dirt Crew)
4. Leopold – Bring me champagne when I´m thirsty (Deepeel records)
5. Aaron Carl – Down (Submerge records)
6. La Pena – Going down (La Pena)
7. Ryo Murikam – Doep(Poker Flat digital)
8. Global Communications – The Way (NRK)
9. Ernesto Ferreyra – Hunted (Cadenza)
10. Donk Boys – The By Blow (Dirty Bird)

Karl Tryggvason
1. Martyn – Great Lengths LP (3024)
2. Joe – Rut / Grimelight (Hessle Audio)
3. Leópold – Bring me champagne when Im thirsty (Deepeel)
4. Tim Exile – Family Galaxy (Warp)
5. Instra:Mental & dBridge – Sepia Tones EP (Darkestral)
6. Detroit Experiment – Think Twice Remixes (Juno)
7. Bop – Song About My Dog (Med School)
8. Hudson Mohawke – Polyfolk Dance EP (Warp)
9. Zombie Disco Squad – The Dance (Dirty Bird)
10.Santé – White (Souvenir)

Tryggvi
1 .Bill Callahan – Sometimes I Wish We Were an Eagle LP (Drag City)
2. Jamie Vex’d – “In System Travel” (Planet Mu)
3. Joe – “Rut” (Hessle Audio)
4. Joker – Do It/Psychedelic Runway 12″ (Kapsize)
5. Starkey – “Gutter Music VIP” (Keysound)
6. William Basinski – 92982 (2062)
7. Young Dro – “Clean With It”

Flokkar: Topp 10