Monthly Archives: júní 2009

Where’s my moneymaster (Erlendar skuldir óreiðumanna Mix)

Einhver prakkari hefur tekið sig til og smellt saman í breskt-íslenskt mashup í tilefni Icesave samninganna. Í laginu “Where’s my moneymaster (Erlendar skuldir óreiðumanna Mix)” er skeitt saman tónum og tali frá TC & Caspa, Ghostigital & GusGus og Davíði Oddssyni. MP3 fæll af herlegheitunum gengur nú eins og eldur í sinu um veraldarvefinn, DansiDans kann að meta svona grín og smellum við því hlekk á mp3 af herlegheitunum í fullum gæðum.

Thule komið á Beatport

Lög  hinnar goðsagnakenndu, íslensku útgáfu Thule records er kominn á stafrænt form og er til sölu á Beatport. Á sínum tíma (og umdeilanlega ennþá) var Thule fánaberi íslenskar danstónlistar og gaf út listamenn eins og Exoz, Ozy, Thor(eigandi thule),Sanasol og Octal.  Útgáfur Thule þykja dub-kenndar og minimal og hefur útgáfan notið mikillar virðingar bæði erlendir og hérna heima, t.d. fór Michael Mayer eigandi Kompakt ,fögrum orðum um Thule þegar hann spilað á Airwaves 2008.

thule

Thule var að vísu uppi aðeins áður en ég öðlaðist vit, en það sem ég hef heyrt þykir mér geðveikt og ég mæli með að fólk þekkir ekki mikið til Thule skoði þetta nánar. Útgáfur Thule á Beatport má skoða hér

Magnús Felix|magnusfelix@gmail.com

Dansidans hlaðvarp #5 – FKNHNDSM

fkc

DansiDans Hlaðvarp #5- FKNHNDSM

Dj dúóið FKNHNDSM ætti að vera dansglöðum íslendingum kunnugt en þeir félagar, Haukur Heiðar og Símon Ragnar, hafa boðað fagnaðarerindi grúvsins á skemmtistöðum bæjarins og á öldum ljósvakans. Tónlistarlega séð eru Fknhndsm í góðum house og diskó fíling og flétta skemmtilega saman stefnur og strauma.

Fimmti kaflinn í hlaðvarpi DansiDans var settur af þessu skemmtilega tvíeyki en hér er á ferðinni sumar syrpa sem mun hljóma vel í sólskininu næstu vikurnar.

Þú getur náð í syrpuna hér og gerst áskrifandi að hlaðvarpinu okkar hér.

1. Hvernig er syrpan sett saman? Einhverjar pælingar eða þema?
Settið er sett saman í einu go, bara vínill og Rane rotary mixer. Hef alltaf verið fan að því að ofpæla ekki mixin og skiptingar, alltaf gaman að hafa smá mistök með, og vera með bæði stuttar og langar skiptingar (og stundum engar skiptingar!) 3 fyrstu lögin voru ákveðin og hitt var bara leikið af fingrum fram. Erum nokkuð sáttir með þetta, góð mixtúra af diskó og house tónlist.

2. Hvað ertu annars að bralla þessa dagana?
Þessa daganna hef ég tekið mér smá pásu frá senunni. Við (fknhndsm) höfum verið frekar öflugir síðustu 2 ár en aðeins núna verið að slaka á. Ég hef verið að einbeita mér að mínu námi í Háskólanum og heimilislífinu og því hætt helgargiggum í bili, ekki nema að það sé eitthvað sérstakt um að vera. Hinsavegar er margt í bígerð. Okkur hefur lengi staðið til boða gigg í Belgrad, Berlín og New York og munum eflaust púsla því prógrammi saman þegar við höfum tíma til. Svo er frekari samvinna með norskum húslúðum á dagskrá en Luna Flicks teymið eru miklir vinir okkar. Það er vegleg dagskrá í undirbúning með þeim og Full Pupp teyminu á haustdögum.

3. Hvernig finnst þér “senan” á Íslandi?
Viðkvæm spurning. Yfirhöfuð góð, REYK VEEK teymið með Jón og Atla innanborðs er afar spennandi project. Fullt af skemmtilegum snúðum sem við höfum, og vonandi verður framhald á því.

4.Hvað feelaru?
Allt gott groove. Diskó og house. Label eins og DFA, Rong, RVNG, Environ og fleiri í New York. Full Pupp, Smalltown Supersound og Luna Flicks í Noregi. Running Back, Permanent Vacation og Innervisions í Þýskalandi. Get alveg tekið heilan dag í upptalningu. Er líka disco nörd, að upplifa gott disco á klúbb í myrkruðum kjallara í East Village í New York eru engu líkast. Svo er ekkert skemmtilegra en að grúska í tónlist!

5. Linkar / Plögg / Lokaorð?
Vínill að eilífu!

haukurrr.blogspot.com,

myspace.com/fknhndsm,

myspace.com/lunaflicks

Lagalisti

1. Chagrin D’Amour – S S (Barcley)
2. Casinoby – Jobsagoodun (Jiscomusic)
3. Nick Chacona & Anthony Mansfield – Slow N’Low (Redux)
4. Capracara – King Of The Witches (rub-n-tug Mix) (DFA)
5. John Talabot – Afrika (Permanent Vacation)
6. Lee Douglas – Midnite (Blackdisco)
7. King Sporty & The Root Rockers – Fire (C.O.M.B.I. edit) (c.o.m.b.i. japan)
8. Baris K – unknown (Disco Hamman)
9. Black Cock – Bermuda Triangle (Black Cock Records)
10. Rogue Cat – Magic Journey (Todd Terje miks) (Tiny Sticks)
11. Peter Visti – Late Night Baleric Monster (Eskimo)
12. House of House – Rusing To Paradise (Walking These Streets) (Whatever We Want)
13.Áme – Setsa [Innervisions]

SyrpuSyrpa #20

Mikið af skemmtilegum mixum á netinu þessa dagana. Mix eftir Yamaho birtist á Soundcloud-inu hennar í gær. Fílingurinn í mixinu er svona deep/tech og í því má finna lög eftir Holger Zilske og Lee Van Dowski.

Pjúristarnir og töffararnir hjá Little White Earbuds voru að koma með nýtt podcast, að þessu sinni er það Frakkin Le K sem sér um það. Mikið party mix,enda gert fyrir frekar fyrir fullt fólk heldur en fólk á eiturlyfjum eins og Le K segir. Mæli með að fólk lesi viðtalið við hann líka. Viðtalið og mixið má finna hér.

LaFleur

TFA sem stóðu fyrir Stephan Bodzin kvöldinu eftirminnilega fyrr á þessu, eru nú að flytja inn sænsku teknó dívuna La Fleur. Við hjá DansiDans mælum með að fólk athugi þetta mix eftir hana og tjekki líka á Jacobsen í kvöld. En þar kemur hún fram ásamt Oculus, Sexy laser og Karius & Baktus. Miðaverð er 2500 kr í hurð og 2000 krónur í forsölu, forsalan er í Spútnik.

Bíræfnir breskir plötusnúðar

Nokkrir breskir plötusnúðar nýttu stolin kreditkort með sérkennilegum hætti þegar þeir nýttu þau í að kaupa sína eigin tónlist á itunes. New York Post segir frá þessu á vefsíðu sinni. Frekar fyndið…

20 ára afmælispakki frá Warp

Við höfum áður sagt frá afmælisfagnaði Warp útgáfunnar sem verður 20 ára í ár. Nú hafa Warp liðar svipt hulunni af rosalegum afmælispakka sem þeir hyggjast gefa út undir nafninu Warp 20.

Á upphafsárum sínum gaf Warp fyrst og fremst út acid house t.d. frá mönnum á borð við LFO og Forgemasters. Smám saman breytti útgáfan um stefnu, varð leiðandi merki í tilraunakenndri raftónlist og voru listamenn eins og Aphex Twin, Autechre, Boards of Canada, Squarepusher og Jimi Tenor á hennar snærum. Warp hefur haldið áfram að þróast og þroskast og á undanförnum árum hafa listamenn eins og Flying Lotus, Hudson Mohawke, Jamie Lidell og Battles gefið út undir merkjum þessara goðsagnakenndu útgáfu.

warp

Með þessa miklu og merkilegu sögu að baki var við því við miklu að búast af 20 ára afmælispakka og stendur hann heldur betur undir væntingum. Warp 20 samanstendur af bók yfir allar útgáfur Warp frá árinu 1989, tveimur 10 laga “best of Warp” diskum, Steve Beckett stofnandi Warp valdi lögin á annan þeirra en  kosið var um lagalistan á hinum af aðdáendum útgáfunnar, tvöfaldur diskur með þar sem Warp listamenn “covera” lög eftir aðra Warp listamenn, þreföld 10″  af óútgefnu efni ásamt loop-um og re-editum bæði á vinyl og cd. Nánari upplýsingar og forpantanir á þessum pakka hér

Plötudómur: Untold – I can’t stop this feeling / Anaconda

Untold
Can’t stop this feeling / Anaconda

Hessle Audio

HES08

Dubstep
3,5 / 5

Bretlandseyjar eru sem áður tónlistarlegur suðupottur, þar takast á ólíkir menningarheimar og samfélagshópar. Upp úr þessum fjölbreytileika spretta sífellt nýjar hugmyndir og stefnum og straumum ægir saman. Á stundum verða mörk hinna mismunandi tónlistarstefna óskýr og erfitt að segja til um hvar línurnar liggja. Nýjasta útgáfa Hessle Audio pilta, tólf tomma frá listamanninum Untold, er dæmi um slíka samsuðu, en um þessar mundir er mikil gerjun á milli neðanjarðargeira á borð við techno, house, dubstep og grime, drum & bass, hip hop og svo mætti lengi telja. Erfitt er að koma orðum að hljóðheimi þessara laga en þar ægir saman hinum ólíklegustu hugmyndum, pælingum og hljóðnotkunum.

Í “I can’t stop this feeling” er techno ættuð synthalúppa sem fetar upp og niður hljómstigan  í aðalhlutverki. Þessi techno keyrsla er byggð á takti sem er blekkjandi einfaldur við fyrstu áheyrn en fínleg smáatriði koma í ljós þegar líður á lagið sem þróast með eðlilegum en óvæntum hætti.

“Anaconda” hefst á pitchuðu melódísku trommu solói sem er hvolft ofan í hvellar og hálf barnalegar syntha lúppur. Undir niðri er svo djúpur rúllandi bassi sem Untold vefur tribal-skotnum töktum í kringum. Lagið allt er í suðrænum tribal gír en óræður framtíðar fönk fílingur sveipar það framandi dulúð.

Bassalínur og bpm laganna skipar þeim í dubstep geirann en það væri einföldun að njörva þau þar niður. Lífræn og rafræn hljóð spila skemmtilega saman og mynda skemmtilegt klúbba væb þrátt fyrir að því fari fjarri að hér sé um einfalda gólfatrylla að ræða.

Karl Tryggvason | kalli@breakbeat.is

Tóndæmi:
I can’t stop this feeling
Anaconda

Kaupa:
Juno | Boomkat | Beatport

Topp 10 – júni 2009

Karl Tryggvason
1. Lynx & Kemo – The Raw Truth (Soul:R)
2. Untold – Anaconda (Hessle)
3. Efdemin – Acid Bells (Martyn Remix) (Curle)
4. Milton Bradley – Don´t Phonk (Do not resist the beat!)
5. Ray Okpara – Brothers (Oslo)
6. dOP – I’m Just a Man Remixes (Eklo)
7. Pinch -  Attack Of The Giant Killer Robot Spiders (Planet Mu)
8. D Bridge – Wonder Where (Nonplus +)
9. Calibre – Stolen Shadow (Deep Medi)
10. Animal Collective – Summertime Clothes (Dam Funk Remix) (MPFree)

Leópold Kristjánsson
1. Dj Koze – Mrs. Bojangels (Circus Company)
2. Jamy Wing – Only Me (Sonido)
3. Leopold Kristjansson – Bring Me Champagne When I’m Thirsty (Deepeel)
4. Stimming – Una Pena feat. Paulo Olarte (Diynamic)
5. Donk Boys – The By Blow (Dirtybird)
6. Ryo Murakami – Deop (Poker Flat)
7. Audion – Look at the moon (Spectral Audio)
8. Milton Bradley – Don´t Phonk (Do not resist the beat!)
9. Deepgroove & Jamie Anderson – The Clock (Ben Clock’s Timepiece mix)
10. DJ Aakmael – Headknop (Rugged mix) (Earthrumental Music)

Magnús Felix

1. Kenlou – Moonshine (Strictly Rhythm Records)
2. Ame – Ensor (Innervisions)
3. Floating Points – Love me like this (Nonsense dub mix) (R2 records limited)
4. Emiliana Torrini – Jungle Drum (Asli & Tarkin rmx) (bootleg)
5.  Motor City Drum Ensemble – Raw Cuts 3
6. Logic – The Warning (Planet Pacific)
7. Martinez – Blue Lagoon (Moon Harbour rec.)
8.Dj Koze – Mrs.Bojangles(Circus Company)
9. Culoe De Song – The Bright Forest (Innervisions)
10. Milton Bradley – Don´t Phonk (Do not resist the beat!)

Plötudómur:Dj Koze – Mrs. Bojangles***

mrs.bojangles

Dj Koze
Mrs. Bojangles
Dr.Fuck
Circus Company
Deep House / electro
3/5

Undanfarna mánuði hef ég mikið verið að fíla Dj Koze. Kauði býr til frumlegt og skemmtilegt dót, er góður remixari og hefur skemmtilega sýn á danstónlistina (hann segist t.d. í viðtölum ekki nenna að hlusta á lög sem byrja bara á bassatrommu,  sem ég efast um að sé rétt, því það hlýtur að útiloka svona 70% af allri danstónlist)). Circus Company er líka stórskemmtilegt label sem ég hef fylgst svolítið með  síðan þeir gáfu “Open Wide”, stórgóða breiðskífu Dave Aju, í fyrra.

Því var ég frekar spenntur þegar ég rakst á “Mrs. Bojangles”. Fyrra lag plötunar , “Mrs.Bojangles”,  byrjar á skemmtilegum takti þar sem kúabjöllur mynda laglínuna. Þetta heldur síðan áfram í 3 mínutur, en eftir það fara hlutirnir að gerast, svo birtist hver steikt pælingin á fætur annari og á endanum  finnst mér Koze missa það svolítið, þó svo að takturinn komi aftur inn á fullri ferð er lagið orðið frekar súrt. Í heildina er lagið fínt en heldur súrt, kúabjöllu línan er samt geðveik.

Hitt lagið á plötuni ber hið merkilega nafn “Dr.Fuck (The drunken preacher)”.  Yfir skemmtilegri bassalínu gerast stórfurðulegir hlutir, djúpur bull vókall, kjánaleg sílafónslína og skrítin umhverfis hljóð. Held að það væri vel hægt að pulla þetta lag snemma á sunnudagsmorgni en alls ekki fyrr…

Í heildina litið er þetta ágætis skífa, þótt lögin á henni komist ekki nálægt hittara Koze frá 2008, “I want to sleep” eru þau engu að síður skemmtileg tilbreyting frá öllu fjöldaframleidda deep/tech housinu sem ræður ríkjum í dag.

Tóndæmi:
DJ Koze – Mrs.Bojangles
DJ Koze – Dr Fuck

Kaupa
plötu: Juno
mp3: Beatport