DansiDans.com – Raf- og danstónlist á Íslandi

Entries from júlí 2009

Linus – Hotelroom Turntable

júlí 26, 2009 · 2 Ummæli

linosao

Afhverju þarf maður iPod þegar maður getur verið með ultra Portable plötuspilara og plötutösku. Því miður  þessi spilari sem ber nafnið Linos ekki til, heldur aðeins hugmynd Charlie Pyott. Töff pæling engu að síður, mæli með að fólk skoði heimasíðu kauða.

linosdet

Flokkar: linkar
Tagged: ,

Reif í Bretlandi árið 1989

júlí 24, 2009 · 1 ummæli

Raving '89

Bræðurnir Neville & Gavin Watson settu fyrir skemmstu saman þessa frekar fyndnu mynda- og endurminningabók um reif-menninguna í Bretlandi árið 1989. Hér er hægt að nálgast PDF demo af bókinni. Jólagjöfin í ár!

Flokkar: Umfjöllun
Tagged: , , ,

RJDJ.ME

júlí 23, 2009 · 1 ummæli

Fyrst Magnús byrjaði á tónlistartengdum iphone forritum má ég til með að benda á rjdj.me sem er skemmtilegasta svona app sem ég hef séð. Í stuttu máli gengur forritið út á að smíða tónlist úr því hvernig notandinn beitir tækinu, þ.e. með hreyfiskynjaranum, hljóðnemanum og þar fram eftir götunum. Myndband segir meira en þúsund orð:

RJDJ menn kalla þetta reactive music sem er vídd í raftónlist / listagjörningum sem ég held að eigi eftir að springa á næstu árum. Nú þegar allir eru með síma/myndavélar/mp3 spilara/osfrv. með bluetooth/wifi/3g eru endalausir möguleikar í því að skapa gagnvirkni í tónlistarsköpun og flutningi (sem er spennó svo lengi sem menn missa sig ekki í Star Trek leik).

Flokkar: linkar · video
Tagged: , ,

Af iPhone og danstónlist

júlí 22, 2009 · 1 ummæli

Mikið breyttist með því að Apple kynnti iPhone í byrjun árs 2007. iPhone býr yfir þeim skemmtilegu möguleikum að hægt er að forrita alls konar “apps” sem nýta sér multy touch eiginleika símans. Þetta hefur heillað margar tónlistarmenn og kemur nú út hvert app á fætur öðru sem er annað hvort midi controller, synthi eða trommuheili. Til að lesa meira um þetta bendi ég fólki á www.createdigitalmusic.com þar sem fréttir af slíkum forritum berast vikulega.

Þýska útgáfan Mobilee gaf út á dögunum iPhone app sem gerir notandanum kleift að mixa saman lög sem gefinn hafa verið út á Mobilee. Forritið virkar eins og myndbandið hér að neðan sýnir.

Þetta þykir mér frekar hallærisleg pæling og tilgangslaus. Sé þó fyrir mér að í framtíðini verði fólk að spila símann og það eigi eftir að fá grínspurninguna “Ertu að dj´a eða senda sms”.

Bandaríska útgáfan Ghostly gaf hinsvega út sniðugra forrit. Ghostly sem átti 10 afmæli um daginn hefur gefið útt gríðarlega mikið af tónlist og gerir forritið, sem  heitir Ghostly Discovery manni kleift að finna tónlist á Ghostly sem eftir því í hvernig skapi maður er í.

Annars er ég orðinn frekar þreyttur á iPhone og fréttum um hann. Ég vona innilega að hann muni ekki hafa of mikil áhrif á  danstónlistarsenuna.

Flokkar: pælingar
Tagged: , , , ,

Djammrýni – Weirdcore á Jacobsen 16.07.09

júlí 17, 2009 · 3 Ummæli

Bjössi Biogen og co. hjá Weirdcore hafa verið að halda raftónlistarkvöld undir Weirdcore nafninu í þó nokkurn tíma, fjölbreytt og skemmtileg kvöld sem sýna þá grósku sem er í gangi í raftónlistinni á Íslandi. Í gær, fimmtudag, var Weirdcore viðburður á Jacobsen og þar stigu á stokk Ruxpin, Hypno og Futuregrapher voru með live sett en DJ Vector sá um plötusnúninga.

Eftir að hafa sleikt sólina á Arnarhóli fór ég á Jacobsen upp úr tíu, þá voru ljúfir raftónar í gangi, techno og idm frá mönnum eins og Carl Craig og Sabres of Paradise auk fleirri listamanna sem ég kann ekki að nefna. Staðurinn var þó ekki þétt setinn og dagskrá kvöldsins hófst ekki fyrr en upp úr ellefu þegar fólk var loks farið að láta sjá sig, það ætlar að reynast erfitt verk að uppræta þann vítahring sem sein mæting landans á tónlistarviðburði orsakar.

En hvað um það, fyrstur á svið var listamaðurinn Futuregrapher sem kom skemmtilega á óvart. Þessi ungi piltur spilaði idm skotna raftónlist, brotnir taktar og syntha-hljómar komu víða við sögu auk þess sem inn á milli örlaði á acid línum, útgáfur eins og Warp og Skam komu óneitanlega upp í hugan við hlustun á tónsmíðar Futuregrapher og er það er nú ekki leiðum að líkjast. Settið hans fór sérstaklega vel af stað, grípandi melódíur og flottir taktar, en missti soldið flugið þegar á leið að mínu mati. Á heildina litið skemmtilegt sett og þar sem ég hafði ekki heyrt af kauða áður kom þetta mér skemmtilega á óvart, alltaf gaman þegar það gerist á litla Íslandi.

Næstur steig á stokk maður sem er þó engu íslensku raftónlistarfólki ókunnugur, Ruxpin. Settið hans hófst á svipuðum nótum og Futuregrapher var í, synthar og strengir rúlluðu ofan á glitchy rafrænum töktum sem tókust á við lífrænni trommupælingar inn á milli. Ruxpin var þó ekki við eina fjölina felldur þetta kvöldið, flakkaði á skemmtilegan hátt á milli stefna, hugljúfir hljóðgerflar breyttust í acid keyrslu sem þróaðist yfir í framtíðar dancehall (með acapellum og öllu tilheyrandi) sem aftur varð að einskonar techstep fíling og þar fram eftir götum.

Stemningin var orðin nokkuð fín á þessum tímapunkti, góð mæting og ungar stúlkur sem voru einhvers staðar mitt á milli þess að vera go-go dansarar, klappstýrur og gríndansarar höfðu hvatt mannskapinn í það að stíga nokkur spor á gólfinu. Hljómgæðin settu þó strik í reikningin en sándið var skítugt hjá öllum atriðum kvöldsins, tíðnir og hljóðfæri runnu saman í eitt og á tímum varð þetta allt að einum graut. Mig grunar að þar hafi ekki endilega verið við listamennina að sakast, þótt ekki hafi þetta alltaf verið fullmasteruð stykki hjá þeim öllum, heldur hafi stillingar á kerfinu sjálfu ekki verið með besta móti.

Eftir að Ruxpin lauk sér af breyttist krádið soldið, en þegar unglambið Hypno var kynntur til leiks af samverkamanni sínum MC Sore Throat urðu head-noddandi hip hop hausar áberandi í stað dansandi technogesta. Hypno fór vel af stað, með uptempo dubstep-leg lög skreytt kunnulegum sömplum. Þegar leið á settið þróaðist tónlistin þó í öllu óeftirminnilegri wobble-gleði sem þar að auki leið fyrir rapparan hálsauma sem var engan vegin skiljanlegur í kerfi Jacobsen. Í lok settsins skipti Hypno þó aftur um gír, funky og hip hop fílingur tók við á ný og var það vel. Nýstárlegar hljóðblandanir Hypno gripu gesti og eru til marks um hæfileika þessa pilts.

Þessu ágæta kvöldi lauk svo um eitt (þótt sögur hermi að dansinn hafi verið stigin í kjallaranum eftir það). Listamennirnir stóðu sig allir vel og eiga ásamt Weirdcore hrós skilið fyrir kvöldið.

Flokkar: Djammrýni

Myspace Rúntur#3

júlí 14, 2009 · 2 Ummæli

Enn einn Myspace rúnturinn, þar sem Dansidans bendir ykkur á upprennandi hæfileikafólk. Að þessu sinni erum við í drum & bass og dubstep fíling.

Joy Orbison
Í fyrsta lagi er Joy Orbison með ótrúlega fyndið listamannsnafn og í öðru lagi gerir hann mjög skemmtilega tónlist. Plötusnúðurinn Skipple, sem lék á síðasta Breakbeat.is kvöldi,  benti mér fyrst á Orbison þennan enda er fyrsta útgáfa kauða signuð á Hotflush útgáfuna sem Skipple vinnur fyrir. Margir virðast þó vera spenntir fyrir kauða og menn eins og Blackdown og Gilles Peterson eru heitir fyrir tónsmíðum hans. Þá virðist Orbison líka vera skemmtilegur plötusnúður og hér má finna fyrirtaks mix úr herbúðum hans en hans eigin tónsmíðar má finna á myspace.com/joyorbison

Reactiv
Það var á fyrstu Dat Music safnskífunni sem maður heyrði fyrst af Reactiv og sá maður strax að þar var á ferðinni hæfileikaríkur tónlistarmaður. Á síðustu misserum hefur svo kauði heldur betur látið á sér kræla en hann stundar  nýstárlega synta-skotna taktaleikfimi. Vel þess virði að tjekka á nýlegum ep frá honum á hollenska útgáfufyrirtækinu Break-Fast Audio.
.

Escher?E?

Escher
Escher er annar drömmari með nýtt sánd í gömlum fíling. Lagasmíðar hans minna mig á Metalheadz, skemmtilegur broddur í sándinu hans og töff væb í gangi.

.

Muted

Muted
Síðast, en alls ekki síst, vil ég benda á íslenska sveita-strákinn Muted (aka Bjarni Rafn), eða undrið að austan eins og gárungarnir kalla Bjarna eftir að hann heillaði borgarbörnin upp úr skónum á Jacobsen um daginn. Bjarni elur manninn á Egilstöðum og semur draumkennda drum & bass tónlist sem hefur náð eyrum ýmissra spámanna. Sérstaklega er rétt að benda á “Izanami” hugljúf og heillandi drömmen ballaða.

Flokkar: Rúntur

Tvær skemmtilegar umræður

júlí 11, 2009 · 5 Ummæli

innervisions

Á vefsíðu Innervisions er að finna spjallborð sem innheldur of skemmtilega pósta. Mér datt í hug að benda á tvo pósta til þess að skapa smá umræðu. En umræðurnar á spjallinu er líka skemmtileg lesning og gaman að sjá hvernig Dixon, Frank(Ame) og Kristian(Ame) taka þátt og hver skoðunn þeirra er, á þessum málum.

Fyrri umræðan fjallar um hið klassíska mál mp3 vs. vinyl, en það koma fram ýmis skemmtilega sjónarhorn, sem ég hafði ekki pælt mikið í áður. Umræðuna má nálgast hér.

Seinni umræðan er að vísu svolítið gömul en á að engu síður vð í dag. En eftir að Ame sló í gegn með laginu Rej myndaðist einskonar deep house æði og hvert rej wannabe lagið kom út á fætur öðru. Ég vil meina að þetta æði eigi ennþá stað í dag, eða allavega virðist koma svo mikið út af deep house sem er svo ófjölbreytt að maður er hættur að þekkja lögin í sundur. Umræðuna má nálgast hér.

Gaman væri að heyra hvað ykkur finnst um þessi mál.

Flokkar: Umfjöllun
Tagged: , , , ,

Topp 10 – júlí 2009

júlí 7, 2009 · 5 Ummæli

Kalli
1. Ramadanman – Revenue (Untold Remix) (2nd Drop)
2. Falty DL – To London (Ramp)
3. Starkey – Creature (Planet Mu)
4. Data – Causeway (Influence)
5. Muted – Izanami (Dub)
6. Einum Of – Drama Llama (Dub)
7. Joker – Psychedelic Runway (Kapsize)
8. Escher – Austere (Future Thinkin)
9. Floating Points – K&G Beat (Planet Mu)
10. Sa-Ra feat. Erykah Badu – Dirty Beauty (Ubiquity)

Leópold Kristjánsson:
1. Wareika – Kings Child (Ricardo Villalobos Remix) (Motivbank)
2. Feygin – Budva (dOP Remix) (Diynamic Music)
3. Jeff Samuel – Lip Service (Trapez)
4. Isolée – Albacares (Mule Electronic)
5. Sean Danke – My New Rulez (Bleep Bloop)
6. Claude VonStroke – Aundy (Dirtybird)
7. Humate – Love Stimulation (Radio Slave Rmx)
8. Christian Burkhardt – Powder (Raum… Musik)
9. Goldwill – Matikal (Liebe Detail)
10. Luciano & Guy Gerber – Arcencial (Cadenza)

Magnús Felix

1. Adam Port – Boogie Bass (Souvenir)
2. Tony Lionni – Found A Place (Ostgut Ton)
3. Norma Jean Bell – Late Night Show(Theo Parrish remix) (Funky Chocolate Records)
4. Radio Slave – Neverending… (Ostgut Ton)
5. Patatas Madras – Western Spaghetti (Freerange)
6. JKamata,2000F – You don´t  Know what love is (Hyperdub)
7. Sanasol – Hlýleg (Hey Babe!)
8. Reggie Dokes – I Wear The Mask (Clone Loft Supreme Series)
9. Le K – Black Botique (Thema)
10. Luciano & Guy Gerber – Arcencial (Cadenza)

Flokkar: Topp 10

Um rekstur dansklúbba

júlí 5, 2009 · 4 Ummæli

Hinn sögufrægi skemmtistaður Robert Johnson (Mannheim/Frankfurt í Þýskalandi) varð 10 ára fyrir skemmstu. Staðurinn er rekinn af Ata einum af stofnendum Playhouse útgáfunnar og í þessum pistli sem ég rakst á í Electronic Beats fer hann í saumana á því hvernig reka skal klúbb. Smellið á myndina til að fá stærri mynd.

Hvernig reka skal dansstað í nokkrum skrefum

Flokkar: Uncategorized