Með minimal teknóinu sem hefur tröllriðið öllu mynduðust ýmsar tískur og ýmiss hype. Rakst á nokkuð skemmtilega pælingu sem á þó að vera nokkura ára gömul, Biblía minimalsins kennir manni hvernig maður á að vera og hvað manni á að finnast ef maður ætlar að hlusta á þessa tónlinst. Það sem er fyndnast(sorglegast) við þetta er hversu mikið af fólki virðist lifa nokkurn vegin eftir þessu, ef marka má spjallborð og viðtöl.
The Minimal Bible
From the Machines are Funky blog, which credits John Hassay (apparently the Managing Director for Colonel Blimp Video and the producer of many fine music videos) for the original:
1. If you have some money to spend, feel free to bring lots of cocaine and ketamine. Don’t splurge it all on the actual party , as the after party is where you drugs count – expect to be feeding your favourite minimal DJ’s with tons of nose candy until late the next day. Be sure you can hang.
2. If you have a nice big flat and don’t mind it being temporarily used as a crack house, be sure to offer it to your favourite minimal DJ before he or she leaves their respected party – be aware that you will most likely have no say on who actually attends the after party, but rest assure you are on your way to becoming a minimal hypster.
3. The haircut is very important, although it is very important – you must not let this be the DEFINING aspect. For tips on hypster haircuts, check on the internet for the latest pictures of Magda – be sure the photo is hot and up to date, as this commandment rotates about every 2 weeks – by that time there is thousands with the same haircut.
4. Underrated but very serious in your quest to minimal hyperstardom is the minimal scarf. Normally used by French artists say to the world “hey I am an artist, shuchameblah” this is now a sure-fire way to let everyone else know – hey I am down with the minimal sound. Current minimal hypsters who sport the minimal scarf include Luciano, Ricardo, Richie, Magda, Troy and Marc Houle.
5. If you ever have the chance to meet Rich Hawtin, when talking with him – make sure you agree with everything he says and most importantly REPEAT. If you do not have the pleasure of meeting him personally, but have a friend who has – just repeat to everyone what your friend has told you he said. If they are a true minimal hypster they will surely repeat their whole conversation anyway. With people such as Troy Pierce, Magda, Ricardo Villalobos, Luciano, this same rule applies to a lesser degree, but still enough to get you on your way.
6. This one is very important, forget about your health and live for the moment. You must be willing to take as many drugs as your favourite minimal superstar DJ. As long as your are willing to party until the last moment on a broad combination of drugs all at the same time, such as Ketamine, Mdma, lots and lots of cocaine, speed, LSD and the occasional mushrooms you will surely be accepted and furthermore run the possibility of being admired. You can never imagine the power of totally ruining your body and mind in the conquest to being a minimal hype star.
7. This one is simple! Keep it superficial. Under no circumstances should you have a conversation with some depth or meaning. Recommended topics of discussion are haircuts, the newest minus record, how cool magda is, how much drugs Ricardo took the night before, how cool the current party is, and how amazing of a musician Luciano is. Just tell yourself over and over, this is not actually being superficial – it’s just being minimal.
8. Sex, Sex, Sex – in the minimal hypster world you should never expect to get laid before 48 hours of straight partying. Even if you have a special liking for that certain someone, keep in mind that if they too are an aspiring minimal hypster like yourself they will most definitely be at that after-hours, and where better place to get down to sexual business. (This is the time when taste, memory and morals are all flushed down the toilet) if you are a female, this is the time where you chances are highest of scoring with your favourite minimal superstar DJ, therefore immediately catapulting yourself into minimal stardom. (most of the time you will just settle for someone who knows Rich Hawtin).
9. Be sure to constantly read the writing of PHILIP SHERBURNE – he is the man who will always keep you informed on the newest and best hype on the internet. DO NOT EVER QUESTION HIS INTENTIONS OR MENTION THE FACT THAT ALL HE WRITES ABOUT IS HOW COOL RICARDO, RICH HAWTIN, MAGDA, LUCIANO, ROBAG WRUHME AND MUTEK CREW IS. He is literally the man to go to if you want to be fed with the minimal hype. Although it seems as if he is desperately trying to fit in and be accepted, everyone should realize HE HAS ALREADY BEEN ACCEPTED. He just loves his role as minimal hypster so much that he wants to spread the love. As with Rich Hawtin the same rule applies to Mr. Sherburne, everything he writes or says AKNOWLEDGE, AGREE AND REPEAT.
10. THE MINIMAL CAPITAL OF THE WORLD BERLIN! If you wish to be a minimal hypestar, one of the easiest ways is to come to Berlin with no plan and frequent places such as the famous drug spots like bar25, club der visionäre and panoramabar. It is these locations in which your minimal fantasies become realities – expect to see people like Rich Hawtin, Matt John, Konrad Black, Troy Pierce and Magda totally out of their minds and much more easy to approach. It is here that you can forge those life long, superficial – I mean minimal relationships.
These rules are meant in no specific order – ONE MORE GOLDEN RULE! Don’t forget minus is the best label to surface in the last decade with its revolutionary stance on music. Almost as if they coined the term minimal.
Fáir tónlistarmenn eru í jafn miklu uppáhaldi hjá Dansidans eins og Ricardo Villalobos eða Kardó, eins og við köllum hann í daglegu tali. Því vakti það mikla lukku í herbúðum okkar að heyra af væntanlegri heimildarmynd um þennan merka tónlistarmann en leikstjórinn Romuald Karmakar stendur að baki þeirri mynd sem hefur einfaldlega hlotið nafnið Villalobos
Trailer þessi er í sjálfu sér ekki ýkja spennandi en þó merkilegt að Karmakar hafi fengið að taka upp efni á Panoramabar sem er alræmdur fyrir harða dyravörslu og algert myndavélabann. Með eins litríkan karakter og Kardó sem umfjöllunarefni er þó ekki við öðru að búast en að mynd þessi verði nokkuð forvitnileg.
Plötusnúðar verða vart mikið fjölbreyttari en Gunni Ewok, víðfemt plötusafn hans spannar ýmsar stefnur og stíla og tvinnar hann saman syrpum bakvið spilarana af miklum móð. Kunnastur er Ewokinn sennilega fyrir starf sitt með Breakbeat.is en ófáir hafa þó einnig séð kappann spila hip hop, house, techno, diskó og fönk af miklum móð.
DansiDans hlaðvarpið sem Ewok setti saman er þó í breakbeat fíling, drum & bass og dubstep enda löngu kominn tími á þannig syrpu í hlaðvarpið!
Þú getur náð í syrpuna hér og gerst áskrifandi að hlaðvarpinu okkar hér.
1. Hvernig er syrpan sett saman? Einhverjar pælingar eða þema í gangi?
Var búinn að gera nokkur útpæld mix sem voru bara ekki að gera sig(urðu full geld). Ákvað því bara að hafa stafla af plötum og nokkra diska setja upptöku í gang og sjá hvað myndi gerast. Varð smá furðulegt þetta mix og var oft tæpur að finna næsta lag en það reddaðist og gerir þetta bara skemmtilegra. Eina sem ég svo sem stefndi á var að leggja áherslu á dubstep og drum & bass. Síðan gleymdi ég mér aðeins og varð því mixið næstum 2x lengra en það átti upphaflega að vera.
2. Hvað ertu annars að bralla þessa dagana?
Alltof margt í rauninni. Vinna, skóli, hljómsveit, Breakbeat.is, flytja, stinger og sinna vinum og vandamönnum bara.
3. Hvernig finnst þér “senan” á Íslandi?
Ja stórt er spurt. Verð nú að lýsa yfir ánægju með senuna í kringum Breakbeat.is og frábært að vera partur af því batteríi. Maður hefur soldið þurft að taka upp hanskann fyrir stefnur sem hafa átt undir högg að sækja en mér finnst það betra en að vera að hoppa á milli stefna endalaust eftir hvað er vinsælast á tónlistarbloggum. Held að við séum soldið að uppskera núna fyrir þá staðfestu í rauninni. Síðan verður maður að taka tillit til þess að við erum í raun bara smábær en engin stórborg og því í raun frábært að það sé sena hérna yfirhöfuð.
Hinsvegar myndi ég persónulega vilja hafa hana fjölbreyttari oft á tíðum. Finnst oft að menn séu að spila alltof líkt dót og vanta oft meira krydd í settin. Þó vill ég hrósa Jacobsen og Kaffibarnum fyrir að sinna danstónlistinni vel. Svo má ekki gleyma öllum þessum íslensku tónlistarmönnum sem eru að gera frábæra hluti.
4.Hvað ertu að fíla?
Skal nefna nokkra bara Oculus, Einum Of, Muted, D-Bridge, Lynx, Instra:mental, Untold, Silkie, Mala, Hypno, Republic of Noice, Subminimal, Raychem, Omar S, Ricardo Villalobos, Hudson Mohawk, Blue Daisey, ilo, Zomby, Mount Kimbie, Modeselektor, Martyn, Pangaea, Commix gæti eiginlega haldið áfram endalaust.
5. Linkar / Plögg / Lokaorð?
Endilega grafa eftir tónlist ekki bara éta upp topp lista og tónlistar blogg þó það sé um að gera að fylgjast líka með því. Kynnið ykkur líka rætur tónlistarinnar en ekki bara til að geta vitnað í einhver gömul nöfn og hittara.
www.breakbeat.is
Lagalisti:
01. Bop – Tears Of A Lonely Metaphysician (Med School)
02. MúM – The Ballad Of The Broken Birdie Records (Ruxpin Remix 1) (TMT)
03. Muted & Justice – Lite Star (MJazz Dub)
04. Instra:mental – Hunter (Soul:R)
05. D-Bridge – Wonder Where (Nonplus)
06. Instra:mental – Thugtronika (Exit)
07. Amit – Propaganda (Commercial Suicide)
08. Tertius – Structure (Deep Blue Remix) (Partisan)
09. Special Forces – Something Els (Bleeps Tune) (Photek Productions)
10. Hidden Agenda – Channel (Metalheadz)
11. Commix – Belleview (Metalheadz)
12. D-Bridge – On Your Mind (Soul:R)
13. Dj Crystal – Warpdrive (Lucky Spin)
14. Ed Rush & Nico – Guncheck (No U Turn)
15. Trace & Ed Rush – Clean Gun (Lucky Spin)
16. Sully Shanks – Give Me Up (2nd Drop)
17. Ramadanman – Revenue (Untold Remix) (2nd Drop)
18. Mala – Lean Forward (DMZ)
19. Oculus – Make It Fast (Dub)
20. Matty G – 50.000 Watts (Loefah Remix) (Argon)
21. Zomby – Kaliko (Hyperdub)
22. Modeselektor – The Black Block (Rustie Remix) (Bpitch Control)
23. Mark Pritchard feat Om’mas Keith – Wind It Up (Hyperdub)
24. Joker – Digidesign (Hyperdub)
25. Martyn – Vancouver (3024)
26. Untold – Just For You (Applepips)
27. Ramadanman – Offal (Soul Jazz)
28. Moderat – Rusty Nails (Bpitch Control)
Að þessu sinni er það eitt af mínum uppáhalds house lögum sem hlýtur þennan heiður. En þetta lag hefði líklega aldrei orðið til nema fyrir a.) samplera og b.) Philadelphia soul.
Flagarinn samplar nefnilega Philadelphia soul lag frá 1979, eftir Dexter Wansel. Sá er hljómborðsleikari og spilaði með mörgum stæðstu soul artistum þessarar senu. Reyndar er það nokkuð algengt að house listamenn líti 30 ár aftur í tímann og til Philadelphiu í leit að sömplum. Eftir að ég fór að grúska í þessari músík kenni ég house sömpl þaðan hægri vinstri. Dexter er sjálfur enn í fullu fjöri, og við myndbandið á Youtube eru yfir 100 ummæli, mörg frá honum sjálfum.
Dexter Wansel – Sweetest Pain
Nú að flagaranum. Hann er öllu nýlegri – frá árinu 1996, og eru það þeir Tom Middleton og Mark Pritchard sem eiga heiðurinn af honum. Tíu mínútur af seyðandi hús grúvi, þar sem þeir tína sömplin inn af mikilli kostgæfni. Afar smekklegt. Fyrir plötusnúða hentar lagið afar vel þegar þeir eru að grúva bakvið spilara, en þurfa nauðsynlega að skreppa á salernið og vilja helst ekki að dansgólfið tæmist á meðan. Lagið hentar í raun alltaf vel fyrir plötusnúða, sem og hlustendur, ef út í það er farið …
Ég hef spilað þetta lag töluvert í gegnum árin, en mig minnir að ég hafi fyrst heyrt það í Party Zone syrpu hjá Bjössa, stundum kenndum við Brunahana. Ég fletti tólf tommunni upp á Discogs og þar voru yfir 500 manns sem vildu eignast plötuna, sem er illfáanleg í dag. Góðu fréttirnar eru þær að flagarinn var nýlega endurútgefinn af NRK, og er því fáanlegur í fullum gæðum á Beatport. Þannig er fólki ekkert að vanbúnaði vilji það eignast þessa klassík!
Global Communication – The Way (Secret Ingredients Mix)
Motor City Drum Ensemble er einn af mínum uppáhalds próducerum þessa dagana, honum tekst að búa til deep house eins og allir aðrir eru að gera en samt einhvern veginn öðruvísi og ég mæli með að fólk tékki myspace-inu hjá kauða. Um daginn spilaði hann í New York á Sunday Best, settið hans þaðan má finna hér.
Íslandsvinurinn og “Stepnó” kóngurinn Martyn gerði síðan mix fyrir síðuna Brainfeeder sem hefur fengið nafnið ”The Count’s Secret Planet”. Eins og búast má við er mixið fjölbreytt og skemmtilegt eins og flest sem hann gerir. Í mixinu hoppar Martyn á milli hip hops og dubsteps og minnir mig semi á Essential mixið hjá Flying Lotus sem er án efa eitt af betri mixum síðari ára. Mixið má finna hér.
Síðustu viku setti plötusnúðatvíeikið Bypass svo nýtt mix á Soundcloudið sitt. Mixið er skemmtilega fjölbreytt fer frá Electro-i í Deep house og indi stöff. Skemmtilegt mix sem ég mæli með.
Menningarnótt í henni Reykjavík þessa helgina og því nóg um að vera í höfuðborginni, hér eru þeir viðburðir sem hafa vakið athygli Dansidans.
Fimmtudagurinn 20. ágúst
198X á Kaffibarnum
Kalli og Árni Kristjánsson með danstónlist frá 9. áratug síðustu aldar, boogie, funk, house, electro og techno. Mikið partý og ófáir klassíkerar frá upphafsárum nútíma danstónlistar væntanlegir á fón
Weirdcore á Jacobsen
Lifandi raftónlist hjá Weirdcore á Jacobsen. Ávallt forvitnileg lineup á þessum bæ, að þessu sinni stíga á stokk Anonymous, Biogen og Skyage en DJ 3D leikur skífur á milli atriða.
Laugardagurinn 22. ágúst
Ghettoblaster í Grófarportinu
Óli Ofur og félagar blása til hátíðar í Grófarporti (við hliðina á Borgarbókasafninu) þar sem gætir ýmisra grasa í raf- og danstónlist, dagskráin byrjar kl. 15:00 á léttari dubskotnum nótum en svo verður róðurinn smám saman hertur og farið yfir í house, techno, dubstep og fleira. Meðal þeirra sem koma fram má live nefna Panoramix, Gnúsi Yones & the Crackers, Captain Fufanu, Axfjörð og Oculus (live) en Óli Ofur og Ewok munu snúa skífum. Frábær viðburður og alltaf gaman þegar danstónlistin er færð úr sínu venjulega næturklúbbaumhverfi
Jón Jónsson kynnir Kompakt á Jacobsen
Kompakt kvöld Jóns Jónssonar er hins vegar pjúra næturklúbbatjútt og frábært sem slíkt. Frá Kölnarútgáfunni goðsagnarkenndu koma þeir Pan / Tone og Shumi en fulltrúar íslenska lýðveldisins verða þeir Jack Schidt og Sexy Lazer.
Grimmt og óforskammað plögg í gangi hér, en ég er ásamt Árna Kristjáns að standa að 80s danstónlistarkvöldi undir nafninu 198X á Kaffibarnum á fimmtudaginn kemur. Þar ætlum við að spila boogie, house, electro, techno og sitt lítið fleira frá níunda áratugnum. En svo sem löngu kominn tími á smá 80s house og hér er ætlunin að tína til þekkt og góð lög sem eru þó kannski ekki á allra vitorði.
.
Frankie Knuckles & Satoshie Tomiie – Tears Frankie Knuckles er oft kallaður guðfaðir house tónlistar en nafn stefnunnar er sagt hafa komið frá Warehouse klúbbnum þar sem Knuckles var fastasnúður. “Tears” var unnið með Satoshie Tomiie árið 1989 að ég held og í vókal útgáfunni sem við heyrum hér er það rödd house tónlistar, Robert Owens, sem að þenur raddböndin.
.
Plez – I Can’t Stop Þekki ekki mikið til Plez en “I Can’t Stop” er algert killer lag, var meðal annars að finna á Ame Fabric disknum sem kom út í fyrra enda hljómar þetta eins og þetta gæti verið að koma út í dag. .
Mr. Fingers – Beyond the Clouds
Í hverri einustu upptalningu af klassískum house lögum má finna “Can You Feel It” með Mr. Fingers, enda á maður það orðið í 15 mismunandi útgáfum á 30 mismunandi safnskífum. Larry Heard e.þ.s. Mr. Fingers hefur þó gert óteljandi aðra klassíkera í gegnum tíðina og “Beyond the Clouds” er einn þeirra, ljúfur og svífandi acid fílingur í gangi.
.
JM Silk – Music Is The Key Smellum hér inn einu hip house lagi enn eins og nafnið bendir til var hip house tilraun til þess að blanda saman hip hop og house tónlist, þetta var skammlíft trend sem þó hafði mikil áhrif á eurodance dót næstu ára/áratuga. Sum þessara laga eru þó stórskemmtileg og ekki síst vókalarnir, finnur t.a.m. varla betri línu en “I am a dj man / and Music is my plan” eins og er sönglað hér í upphafi.
.
KC Flightt – Let’s get Jazzy
Smá jack fílingur í gangi hér, fáránlega góð bassalína og voxarnir og percussionið í kring er gott partý.
Svona mætti auðvitað lengi telja og væri gaman að fá fleiri linka í athugasemdir. En ef þið viljið tjútta við svona stöff sjáumst við vonandi á Kaffibarnum á morgun.
Síðsumarshelgi með öllu tilheyrandi í uppsiglingu. Fyrir þá sem vilja kíkja út á lífið er úr ýmsu að velja.
Fimmtudagurinn 13. ágúst
Coxbutter piltarnir eru með kvöld á Jacobsen á fimmtudaginn, flott line up: Forgotten Lores, Mighty Jukebox, Steve Sampling og DJ Kocoon bjóða upp á hip hop af ýmsu tagi. Rétt að benda einnig á Coxbutter síðuna þar sem má nálgast fínasta stuff á mp3 formi endurgjaldslaust.
Föstudagurinn 14. ágúst
Breakbeat.is með svokallaðan All Nighter á Jacobsen, næturlangt tjútt á báðum hæðum. Á efri hæðinni ráða léttari tónar ríkjum, töffarabandið The Zuckakis Mondeyano Project verða með hljómleika auk þess sem Ewok og Leópold snúa skífum í house og groove fíling. Í kjallaranum verða svo bumbur, bassar og brotnir taktar frá fastasnúðum Breakbeat.is og vel völdum gestum.
Laugardagurinn 15. ágúst
Laugardaginn má taka með öðruvísi sniði ef menn svo lystir, hlusta á plötusnúða í Bláa Lóninu eða á hljómsveitir út á Snæfellsnesi. Margeir heldur útgáfupartý fyrir nýjan Bláa Lóns mixdisk í Bláa Lóninu, þeir sem hafa farið á Airwaves partýin þar þekkja fílingin sem getur myndast á “tjútti” í lóninu, töff pæling.
Önnur töff pæling eru svo tónleikar Stereo Hypnosis á Hellisandi á Snæfellsnesi en feðgarnir í Stereo Hypnosis ætla þar að fagna útgáfu nýrrar skífu sem hefur hlotið nafnið Hypnogogia, þeim til trausts og halds verða svo Project 8, Snorri Ásmundsson og AnDre.
Fyrir miðbæjarrrottur er hins vegar líka gott geim í bænum, fknhndsm dúóið tekur á móti New York búanum Love Fingers á Kaffibarnum. Deladiskófílingur og dólgagrúv af bestu gerð.
Kalli
1. Joy Orbison – Hph Mongo (Hotflush Dub)
2. Bop – Clear Your Mind LP (Med School)
3. Pearson Sound – Wad (Hessle Audio)
4. Dan HabarNam – Zoom Back Camera (Santorin)
5. James Blake – Air and Lack There Of (Hemlock)
6. Reactiv – Badlands EP (Break Fast Audio)
7. Randomer – Synth Geek (Hospital)
8. Hypno – Stay (Dub)
9. Dam Funk – Toeachizown (Stones Throw)
10. Noze – Meet me in the Toilet (Circus Company)
Magnús Felix
1. Sometime – Optimal Ending (Leopold & Steinunn rmx)
2. Norm Talley – The Journey (Third ear records)
3. Dousk – Serenata Deluxe (Klik Recrods)
4. Caro – My Little Pony (Beckett and Taylor rmx)
5. Claude Von Stroke – Aundy (DirtyBird)
6. Audio Verner – Ditto (Minibar Music)
7. Non Fiction – I Remember (Wally Callerio remix) (Motion Music)
8. Luna City Express – Rough Neck (Matthias Tanzmann remix) (Moon Harbour records)
9. DJ T – Bateria (Get Physical)
10. Shlomy Aber,Kenny Larkin – Sketches (Be as one)
Í september munu tjalladúóið Italoboyz senda frá sér sína fyrstu breiðskífu. Platan mun heita BlaBlaBla og kemur út á San Francisco leibelinu Mothership (Claude VonStroke). Claude VonStroke gaf á sínum tíma út fyrstu smáskífu strákanna (Viktor Casanova) en þeir hafa sömuleiðis verið á leibelum á borð við Treibstoff og Trapez. Að sögn verður platan fjölbreytt blanda Technotónlistar við Jazz, Tango og Óperur. Lagalistinn er eftirfarandi:
1. Where is London?
2. Taka Taka Tashhh
3. Chinese
4. Edo Breiss
5. Techno Tower
6. L’anagramme
7. Bahia
8. Oh Mio Dio
9. The Pink Unicorn