DansiDans.com – Raf- og danstónlist á Íslandi

Entries from nóvember 2009

DansiDans eins árs!

nóvember 26, 2009 · 18 Ummæli

DansiDans fagnaði eins árs afmæli í kyrrþey í gær en fyrsta færslan á þessari síðu fór upp 25. nóvember 2008. Síðan þá hafa svo dottið inn 156 færslur í 21 flokka með 494 töggum og gestir síðunnar hafa skilið eftir 518 athugasemdir (þar af 8 spam). Gestafjöldin hleypur á tugum þúsunda á árinu og eru vinsælustu færslurnar um væntanlega svínaplötu Matthew Herbert og Oculus hlaðvarpið. Annars eru 8 hlutar komnir í hlaðvarpið okkar, hvor öðrum betri og sennilega sá hluti síðunar sem ég persónulega er ánægðastur með. Ef miða má við viðbrögð áskrifenda og annnarra eru fleiri sáttir við DansiDans hlaðvarpið. Fylgist vel með því í vændum eru fjölbreytt og stórskemmtileg mix frá nokkrum af skemmtilegri snúðum lýðveldisins.

Annars er DansiDans skilgetið afkvæmi og hugmynd Magnúsar Felix, en honum þótti vöntun á vitrænni umfjöllun um rafræna danstónlist á Íslandi. Hér hefur verið gerð tilraun til þess að fylla í það skarð með skrifum og ábendingum Magnúsar og annarra vel valinna aðila. Við þökkum fínar móttökur og vonum að þið fylgist áfram með DansiDans.com því við höldum ótrauðir áfram. Ábendingar um efni og umfjallanir eru að vanda vel þegnar og sömuleiðis hlekkir á síðuna og athugasemdir á einstakar færslur.

Karl Tryggvason | ktryggvason@gmail.com

Flokkar: Umfjöllun
Tagged: , , ,

Jútjúb Miksteip #9 Þegar remixið er vinsælla en orginal-inn

nóvember 19, 2009 · 3 Ummæli

Nú fyrir skemmstu kom út smáskífa með laginu “You got the love” í flutningi Florence + the Machine (ásamt ófáum endurhljóðblöndunum) og hefur skífan gert góða hluti um víðan völl. Eins og flestir vita er þetta lag aðeins endurflutningur af lagi sem var upprunarlega samið af Candi Staton.

Það sem er sérstakt við “You got the love” er að remix af laginu er þekktara heldur en upprunarlega lagið. Það kemur stundum fyrir að remix verðir vinsælli en orginalarnir og geta ástæður þess verið margar, t.d. þegar remixarinn er frægari heldur en artistinn sem gerir lagið, þegar upphaflega lagið er komið til ára sinna eða þegar remixið er einfaldlega betra. Í þessu Jútjúb mixteipi verður farið yfir “You Got the love” í ýmsum útgáfum.


The Source Feat. Candi Staton – You got the love
“You got the love” er soul lag frá 1986. Óhætt er að  fullyrða að lagið er rosalega funky ,gott groove, syntharnir klassískir og lagið eðall. Þrátt fyrir gæði þessa lags þekkja mun fleirri acapelluna í annari útgáfu, það er í einhvers konar sambræðingi við næsta lag.



Frankie Knuckles – Your love
Eins og áður hefur komið fram á Dansidans er Frankie Knuckles talinn vera  einn af upphafsmönnum house tónlistar. “Your love” sem er frá 1989 er líklega eitt af vinsælustu lögum kappans  og eitt af mínum uppháhalds lögum. Uppbyggingin í byrjun lagsins er stórskemmtileg og synthalínan algjör classic. En árið 1991 kom út annað lag eða bootleg sem ég held að hafi haft stór áhrif á vinsældir lagsins.



Candi Staton feat. The Source – You got the love
Þessi sambræðingur af fyrrnefndum lögum er vægast sagt algjör bomba á dansgólfinu og gerði bæði lögin ódauðleg. Ég tel að þessi útgáfa sé mun meira spiluð heldur en báðir orginalarnir sem eru notaðir. Þessi útgáfa er jafnvel svo þekkt að fólk heldur að hinar útgáfurnar séu endurhljóðblandanir en ekki öfugt. Hef heyrt sögur af hörkurifrildum milli Gunna Ewoks og hóp af stelpum um hvort lagið væri nú betra. Hvað finnst ykkur? Annars er forvitnilegt að lesa um tilurð þessa lags á Wikipedia.


Candi Staton feat. The Source – You Got the Love
Hér er svo önnur útgáfa sem líka er skrifuð á The Source,  lakara lag að mínu mati, minnir mig  þar að auki alltaf á “Clubbed To Death“… Kannski þekktast fyrir að hljóma undir lokaatriðinu í Sex and the City (DansiDans er metrósexúal og mikil aðdáandi Beðmálanna).


Florence & The Machine – You got the Love (Jamie XX remix)
Hér er þetta svo farið að verða virkilega póst-módernískt, remix af coveri af mashuppi, skemmtileg pæling! Jamie XX úr hipster hljómsveitinni vélar um endurhljóðblöndun af trendý kollega sínum Florence & The Machine. Garage bræðingur einhvers konar og vókalaleikfimi, lag sem er heldur betur að slá í gegn þessa dagana, enda frábært lag (slær seint upphaflega lagið út, eða þið vitið, remixið af upphaflega laginu sem var sett saman úr tveim öðrum lögum eða þannig…)

Flokkar: Jútjúb Miksteip
Tagged: , , , ,

Touch DJ

nóvember 19, 2009 · Rita ummæli

Komið “plötusnúða” forrit fyrir iphone/ipod touch, Touch DJ. Sýnist þetta nú vera soldið mikið gimmick en kannski soldil ógnun fyrir Pacemaker græjuna. Lýst annars ekki á svona fyrirbæri nema bara sem leikfang eða partýtrylli, sé ekki fyrir mér að það sé hægt að setja saman góðar syrpur með þessu, kannski bara fordómar í mér.

-Karl Tryggvason | ktryggvason@gmail.com

Flokkar: Uncategorized
Tagged: ,

Verndaðu heyrnina

nóvember 17, 2009 · 8 Ummæli

Flestir sem þessa síðu lesa kannast eflaust við ýmsa fylgifiska þess að hlusta of hátt á tónlist í lengri eða styttri tíma. Hver hefur ekki vaknað “daginn-eftir” með ýlfur eða suð í eyrunum eða bara hálf heyrnarlaus. Öll ættum við auðvitað að vita að þetta er ekki gott fyrir heyrnina né eyrun, og sömuleiðis ættum við að muna að þegar þessi viðkvæmu skynfæri okkar skaddast er sá skaði oftast óendurkvæmur.

Í nafni lýðheilsu danstónlistarunnenda og annara hafði DansiDans því samband við Ellisif Katrínu Björnsdóttur heyrnarfræðing og eigenda Heyrnar sem sérhæfir sig í þjónustu til þess að bæta úr heyrnarskerðingu. Spurðum við Ellisif út í ýmsar sögur og sögusagnir um heyrnarskaða og hvernig maður mætti varðveita heyrnina fram á elli árin.

Farðu vel með eyrun þín (Mynd: Banlon1964)

DansiDans[DD]: Hvað er heyrn?
Ellisif Katrín [EKB]: Heyrn er skynjun en við gleymum oft mikilvægi hennar. Að heyra hljóð eins og tónlist, mal kattar, suð í flugu eða hjal smábarns hefur tilfinningalegt gildi. Að geta haft samskipti við annað fólk er grunnþörf flestra og það sem við lifum fyrir. Án heyrnar er lífið allt annað. Því er mikilvægt að passa vel og vernda þessa fullkomnu en viðkvæmu skynjun.

DD: Hvað er hávaði og hvernig skaðar hann heyrnina?
EKB: Hljóðstyrkur er kallaður hávaði ef hann er það mikill að hann getur skemmt heyrnina. Heyrnarskerðing er einn algengasti atvinnusjúkdómurinn í okkar iðnvæddu veröld.

Verði einstaklingur fyrir miklum hávaða getur hin viðkvæma bygging innra eyrans skemmst. Ef það gerist hefur hann orðið fyrir varanlegri heyrnarskerðingu sem getur bæði orðið af völdum mikils hvells, s.s. sprengingar, og viðvarandi hávaða.

Fólk í dag er mjög ómeðvitað um þær hættur sem of mikill hljóðstyrkur getur valdið á heyrninni. Rangmæli eru á kreik um að ef maður fílar tónlistina þá geti hún ekki valdið neinum skaða. Þetta er alrangt, er svipað og að segja að ef manni finnst eitthvað gott á bragðið að þá sé það ekki óholt.

Hávaði skemmir fyrst skynhárin neðst í kuðunginum en þar er hátíðni greind, efst uppi er lágtíðnin/bassinn greindur og skemmist hann síðast.

Í um 90% tilfella er um skynheyrnarskerðingu að ræða. Orsakir hennar eru oftast þær að hin örfínu skynhár í innra eyranu hafa annaðhvort brotnað eða skaddast. Skynhárin nema hljóðbylgjur og breyta þeim í rafboð sem berast til heilans um heyrnartaugina en heilinn túlkar rafboðin sem hljóð.

DD: Hefur hávaði einhver önnur áhrif á heilsu?
EKB: Hávaði er slæmur heilsunni, líkaminn spennist upp og fer í varnarstöðu, blóðþrýstingur hækkar og að vera í hávaða í lengri tíma veldur mikilli þreytu og minnkar einbeitningu.

Það getur verið háð erfðum hversu mikinn hávaða einstaklingar þola, sumir eru mjög viðkvæmir og hafa lægri sársaukamörk en aðrir. Ekki er hægt að dæma um það fyrirfram hversu mikinn hávaða maður þolir.

Rangmæli eru á kreik um að ef maður fílar tónlistina þá geti hún ekki valdið neinum skaða. Þetta er alrangt, er svipað og að segja að ef manni finnst eitthvað gott á bragðið að þá sé það ekki óholt.

DD: En tinnitus? Hvað er tinnitus og er hægt að lækna það?
EKB: Eyrnasuð/tinnitus er oft fylgikvilli heyrnarskerðingar en það er ýlfur eða sónn í eyrum eða höfði. Eyrnasuðið getur horfið, en er oft sleitulaust eða kemur og fer tímabundið alla ævi.

Hvernig má verjast þessum fylgikvillum hávaðans?
Til eru nokkrar gerðir af búnaði, sem velja má um, til að hlífa heyrninni. Þessi búnaður er mismunandi allt frá hefðbundnum frauð- eða silíkontöppum og heyrnarhlífum, sem loka næstum á allt hljóð, til heyrnarsía sem dempa skaðlegan hávaða án þess að breyta blöndun og tónblæ hljóðsins, þær dempa allar tíðnir hljóðs álíka mikið.

Hjá Heyrn er boðið upp á bæði sérsmíðaðar síur og staðalsíur en báðar gerðirnar er þægilegt að nota. Heyrnarsíur henta vel fyrir þá sem þurfa að verjast hávaða svo sem fyrir stóriðjustarfsmenn, atvinnutónlistarfólk, hljóðmenn, tannlækna, hljómleikagesti, vélhjólamenn, iðnaðarmenn, vélstjóra, flugmenn o.fl.

(Mynd Vísindavefurinn)

DD: Hvaða hlutverk spilar notkun heyrnartóla og vasadiskóa/ipodda?
EKB: Hægt er að finna á netinu rannsóknir sem gerðar hafa verið á heyrn þeirra sem nota Ipod og MP3. Niðurstöðurnar eru ætið þær að heyrnin skemmist við notkun á þessum tækjum. Viðvaranir hafa verið gefnar út allt frá árinu 1980 um skaðsemi heyrnartóla og sérstaklega litlu inn í eyra heyrnartólanna.

Langvarandi notkun spilara og hár hljóðstyrkur skemmir heyrnina. Hlustendur eiga það til að stilla spilara of hátt þegar einhver bakgrunnshljóð eru og geta við það náð sársaukamörkum. Það er betra að nota heyrnartól með spöngum heldur en þau sem fara inn í eyrun. Gallinn er að hlustendurnir eru að hugsa meira um útlitið heldur en heyrnina sína.

Ipod sem seldur er í Evrópu á að hafa innbyggt hámark í spilurunum en gallinn er sá að margir taka það af til að geta spilað hærra. Slíkt ætti engin/nn sem vill halda heyrninni óskemmdri að gera.

DD: Hvaða ráð myndir þú gefa tónlistarfólki og plötusnúðum til þess að forðast þær hættur sem starfsumhverfi þeirra býður heim?

EKB: Þau ráð sem tónlistarfólk og plötusnúðar ættu að hafa í huga er að halda hljóðstyrknum í hófi og vera með heyrnarsíur. Það er mikil ábyrgð sem hvílir á stjórnendum tónlistar og mikilvægt að verða ekki valdur að því að aðrir verði heyrnarskertir. Mikil lífsgæði tapast þegar maður missir heyrnina.

Verndaðu heyrnina á meðan þú hefur hana!

DansiDans þakkar Ellisif fyrir upplýsingarnar. Því má svo að lokum við bæta að undirritaður fjárfesti í sérsniðnum heyrnarsíum/eyrnartöppum hjá Heyrn fyrir um tveim árum og er það einhver besta tónlistartengda fjárfesting hans undanfarin ár. Allt annað líf að fara á tónleika og skemmtistaði þegar maður hefur þann valkost að “lækka” örlítið í tónlistinni. Mæli hiklaust með því að skoða slíkt fyrir þá sem kenna sér meins vegna hávaða.

-Karl Tryggvason | ktryggvason@gmail.com

Flokkar: Umfjöllun · Viðtal
Tagged: , , , ,

Matthew Herbert gerir plötu með svíni

nóvember 16, 2009 · 2 Ummæli

Ég las nýverið um nýjasta uppátæki hins ágæta en sérvitra tónlistarmanns Matthew Herbert. Matthew hyggst ala upp svín sem síðan skal slátra, borða og smíða úr hljóðfæri. Hausinn verður matreiddur af stjörnukokkinum Heston Blumenthal en beinin verða notuð í flautu sem notuð verður á næstu plötu Matthew, ásamt upptökum af svíninu á meðan það er á lífi. Hugsanlega verður skinnið svo notað í trommu en hann telur það skildu sína sem tónlistarmanns að gera tilraunir með hljóð og nýstárleg hljóðfæri.

Svínið hans Matthew Herbert

„Um þetta snýst vinna mín – það er á ábyrgð listamannsins að búa til tengingar, sama hve skrítnar þær kunna að reynast og hvert þær taka okkur.“

Svínið hans er víst um 8-9 vikna gamalt sem stendur og eru upptökur í fullum gangi.

Svínið hans Matthew Herbert

Þetta verkefni, sem kallast One Pig, er partur af þríleik þar sem listamaðurinn gerir plötur sem allar samanstanda af einum hlut hver. Hinar tvær plöturnar eru One One, þar sem Matthew mun spila á allt sjálfur og syngja – og svo One Club þar sem Matthew tók upp gesti Robert Johnson klúbbsins í nágrenni Frankfurt og munu þeir sem þar voru skapa allan efnivið í þá plötu.

Matthew Herbert við upptökur

Það er svo hægt að lesa meira um ævintýri svínsins hér.

Ég rakst svo á þetta skemmtilega plagg. Það er ótengt umræddu verkefni, en engu að síður skemmtilegt.

Jáhá…

Flokkar: Umfjöllun · fréttir
Tagged: , ,

House/Techno frumkvöðlar áratugsins

nóvember 12, 2009 · Rita ummæli

Á næstu árum mun eflaust verða sprenging í “best of… 2000-2010″ listum þegar fólk fer að reyna að gera upp áratuginn sem á ekkert gott nafn á íslenskri tungu (“noughties”?). Sumir hafa tekið sér forskot á sæluna t.d. birti Pitchfork umdeildann lista yfir bestu lög áratugarins um daginn. Fact Magazine, sem eru duglegir við listasmíð af ýmsu tagi, eru líka byrjaðir að gera upp síðustu 10 ár eða svo og ríða á vaðið með 10 tónlistarmönnum sem breyttu house og techno tónlistinni síðustu 10 árin. Þetta er góð samantekt. Þótt maður sé,  eins og við var að búast, ekki sammála í einu og öllu er höfundurinn vel að sér og fer yfir þróun danstónlistar síðustu 10 ár eða svo á skemmtilegan en skilmerkilegan hátt.

Persónulega finnst mér vanta einhvern sterkan fulltrúa minimal sándsins, stefna sem tröllreið þessum áratug þótt hún hafi dottið úr tísku á undanförnum árum. Sömuleiðis hefði kannski mátt hafa einhverja fulltrúa fyrir elektrófílinginn sem var svo sterkur á árum áður. Hafið þið einhverja skoðun á þessum lista?

Karl Tryggvason | ktryggvason@gmail..com

Flokkar: linkar · pælingar
Tagged: , , ,

Plötusnúðaheyrn

nóvember 11, 2009 · 7 Ummæli

Einn af leiðinlegri fylgifiskum þess að vera plötusnúður eða pródúsent er að þróa með sér það sem ég kýs að kalla plötusnúðaheyrn eða plötusnúðaeyra. Fyrir fólk með plötusnúðaheyrn gegnir tónlist öðru hlutverki en fyrir fólk almennt, hlutverki sem tengist starfi eða áhugamáli plötusnúðsins.

Tónlist hættir að vera list sem er einungis til upplýsingar, yndisauka eða skemmtunar og sætir í stað þessi sífelldri greiningu og gegnir öllu hagnýtara hlutverki. Einstaklingur með plötusnúðaheyrn yfirheyrir því sem næst alla tónlist sem hann kemst í kynni við, í hugarskoti hans leynast óteljandi spurningar um tónlistina sem er í gangi.

Þannig spyr plötusnúðaheyrandinn sig hvort það mætti lúppa eða sampla þessu lagi? Á hvaða tempói/bpm er tónlistin? Myndi þetta virka á dansgólf? Ætli það sé hægt að nálgast hana á vínyl? Í hvaða tóntegund er þetta lag? Mætti mixa þetta við aðra tónlist? Og svo mætti lengi telja.


Hlustaðu (mynd e. Alex//Berlin as photography)

Sá sem er með plötusnúðaheyrn er því ávallt að máta tónlistina við plötusnúðahlutverkið, þannig er hætta á því að önnur svið tónlistarnautnarinnar víki og er það miður. Geri ég mér í hugarlund að svipaðar hlutir geti komið fyrir annað “alvöru” tónlistarfólk.

Athugið að ég er ekki að halda því fram að plötusnúðar njóti ekki tónlistar, að þeir hafi ekki gaman af henni eða þyki ekki vænt um hana. Heldur að starf þeirra geti gert það að verkum að þeir nálgist og hlusti á tónlist með öðrum og minna “hreinum” hætti. Að það hvernig plötusnúðar “hagnýta” tónlistina hafi varanleg áhrif á hvernig þeir neyti hennar. Því held ég að það sé verðug áminning til plötusnúða að skilja plötusnúðaeyrun stundum eftir, að reyna að setja minna funktíónal þætti tónlistarinnar í fyrsta sæti og njóta hennar á hreinni hátt. Spyrja sig frekar að því hver hafi verið ætlun tónskálds, hvaða tilfinningar er verið að tjá og hvaða tilfinningar vakna í brjósti manns sem hlustanda. Nú eða að sleppa spurningum og greiningum og hlusta bara. Það er gott að hlusta.

-Karl Tryggavson | ktryggvason@gmail.com

Flokkar: pælingar · íslenskt
Tagged: , ,

Dansidans Hlaðvarp#8 – Óli Ofur

nóvember 5, 2009 · 6 Ummæli

ofur

DansiDans Hlaðvarp #8 – Óli Ofur

Óli hefur spilað um víðan völl og er þar að auki hljóðkerfagutti, hann sleit barnsskóm plötusnúðamennskunar í drum & bass tónlistinni en sneri sér síðar að electro/house/techno.

Óli sem er gjarnan kenndur við “ofur”  kvöldin á hans Akranesi ,hefur  ekki aðeins verið duglegur að standa fyrir klúbbakvöldum og rave-um síðustu ár heldur hefur hann líka komið á fót Ofur Hljóðkerfum.

Óli Ofur er á bakvið spilarana í áttunda hlaðvarpi Dansdans og býður upp á djúpt hús og eðal grúv sem ætti að fá fólk til að dansa í skammdeginu.

Þú getur náð í syrpuna hér og gerst áskrifandi að hlaðvarpinu okkar hér.

1.Hvernig er syrpan sett saman? Einhverjar pælingar eða þema í gangi?
Fyrsta pæling með mixinu var að þetta átti ekki að vera dansgólfs,
heldur meira hlustunarmix. Jafnvel sunnudagshlustunarmix á góðum degi
án þynnku. Önnur pæling var að gera lo-fi, notaði tvo geislaspilara og
mixer með serato og tók upp á kasettu, yfirfærði það svo yfir á
tölvutækt og bætti við effekt þannig að maður fengi svona oldskúl
walkman fíling.. pælingarnar komu soldið uppúr hugsunum um hvort það
ættu að vera einhverjar pælingar.. ef þið skiljið hvað ég á við.

2.Hvað ertu annars að bralla þessa dagana?
Bara alltaf á kafi í vinnu og spilamensku, var brjáluð törn í kringum
Réttir og Airwaves og er strax kominn á kaf í önnur verkefni

3.Hvernig finnst þér “senan” á Íslandi?

Stundum fynnst mér hún alveg tryllt. Allt að gerast og gengur vel
allstaðar, en það er sennilega hægt að segja að hún sé helvíti óstabíl
samt. Það er í rauninni ekki stór hópur sem við myndum kalla senu
(fólk sem veit og hefur gaman af því að dansa) en það er slatti af
liði sem hefur gaman af því að skemmta sér sem rambar oft inn í
senuna og þá er oft gaman. Má bæta því við að mér finnst magnað hvað
við erum með mikið af talentum á Íslandi (plötusnúðar og artistar)

4.Hvað ertu að fíla?
Joris Voorn, Chicago, Diynamic labelið, André Crom, 2000 and one,
upbeat tech-house, deep house, prog, techno með oldskúl fíling svo
eitthvað sé nefnt

5.Linkar/Plögg/Lokaorð?
Maður ætti náttúrulega að vera kominn með ofur.is fyrir svona
spurningar, en allavega, sóló í kjallara Jacobsen 7. nóv. Það verður
tryllt, upphitun fyrir Umek á Nasa 14. nóv og svo er ég að spila einn
mín liðs á Nasa 16. janúar. En ég held að svona gigg hafi ekki verið
sett upp á Íslandi áður.

lagalisti:
1. Claude VonStroke – Jasper’s Baby Robot
2. Hot Toddy – I Need Love feat Ron Basejam (Morgan Geist Love Dub)
3. Spectral Empire – Innerfearence (Chateu Flight remix)
4. Natural Self – Believer
5. Luke Hess – Reel Life (CV313 Dimensional Space mix)
6. WhoMadeWho – Keep Me In My Plane (Dj Koze Hudson River Dub)
7. Cloud – Sakta
8. Steve Bug – You Make Me Feel (version 2)
9. Claude VonStroke – Aundy (Dj version)
10. Stimming – Funk With Me
11. Motor City Drum Ensemble – Raw Cuts #6
12. Andre Crom & Luca Doobie – Attica (Makam remix)
13. Soundstream – Good Soul
14. Rone – Belleville (Clara Moto & Tyler Pope remix)
15. Joris Voorn – Blank

 

Artworkið setti Geoffrey saman fyrir Dansidans

Flokkar: Podcast
Tagged: ,

Topp tíu – nóvember

nóvember 3, 2009 · 4 Ummæli

Leópold Kristjánsson

1. Die Vögel – Petardo – Pampa
2. 2562 – Flashback – Tectonic Recordings
3. Seth Troxler feat. Matthew Dear – Hurt – Spectral Sound
4. Asli – Like the wind – Stripped Digital
5. Fever Ray – Seven (Marcel Dettman’s Voice In My Head Mix) – Rabid Records
6. Thodoris Triantafillou & Cj Jeff – Got to be – Souvenir Music
7. Gus Gus – Take Me Baby feat. Jimi Tenor – Kompakt
8. Masomenos – G – Third Eye – Welcome to Masomenos
9. Luciano – Pierre for Anni – Cadenza Records
10. René Breitbarth – Swing – Deep Data

Kalli

1. Untold – Gonna Work Out Fine EP (Hemlock)
2. Darkstar – Aidy’s Girl is a Computer (Original & Kyle Hall Remix) (Hyperdub)
3. Fever Ray – Seven (Martyn’s Seventh Remix) (Rabid)
4. Ýmsir – Metalheadz 15 (Metalheadz)
5. Levon Vincent / Steffi – Panorama Bar 02 Part II (Ostgut Ton Germany)
6. Ýmsir – Snuggle & Slap (Circus Company France)
7. Instra:mental – Leave it all behind (Apple Pips)
8. Silkie – Head Butt Da Deck (Deep Medi Musik)
9. Mount Kimbie – Sketch On Glass (Hotflush Recordings)
10. Kryptic Minds – 768 (Tectonic)

Magnús Felix / Moff & Tarkin

1.Animal Collective – Brother Sport(Domino)
2.Endangered Species – Endangered Species (Strictly Rhythm)
3.Motor Bass – Flying Fingers (Different Recordings)
4.Precious Soundsystem – Voice from planet Love (Running Back)
5.Mendo Everybody I got him(Cadenza)
6.Efdemin -The Pulse (John Beltran rmx) (Curle records)
7.Vodeux – The Paranormal (Wolf +Lamb rmx)(Mothership)
8.Asli – All The Love(Stripped Digital)
9.Hypno – Telescope(Dub)
10.Ellen Allien – Go(Marcel Dettman rmx) (Bpitch Control)

 

 

Flokkar: Topp 10 · listar
Tagged: , , ,