DansiDans.com – Raf- og danstónlist á Íslandi

Entries from desember 2009

Weirdcore með nýja safnskífu

desember 25, 2009 · Rita ummæli

Biogen, Tanya og félagar hjá Weirdcore bjóða upp á skemmtilega jólagjöf á vefsíðu sinni, fyrirtaks mpfrír safnskífu með íslenskri raftónlist. Meðal listamanna sem koma við sögu má nefna Yagya, Steve Sampling, Ruxpin, Hypno, Einum Of, Biogen og Skurken.

Flokkar: linkar · mp3 · íslenskt
Tagged: , ,

SyrpuSyrpa #21

desember 15, 2009 · 3 Ummæli

Langt síðan að við mældum með mixum en það hefur verið nóg af þeim á internetinu undanfarið.

Viktor Birgisson setti upp mixið Saturday Tea Party, ég læt lýsinguna hans á þessu skemmtilega mixi duga. Hún er eftirfarandi:
“Me and Pimp Jackson went into the jungle with Ramon Tapia and danced our asses off….. “. Mixið má nálgast hér

Fyrir u.þ.b mánuði síðan gerði Breakbeat boltinn Gunni Ewok  hús mix. Eins og við höfum áður sagt   þá eru fáir plötusnúðar sem eru jafn fjölbreyttir og Ewok. Mixið  samanstendur af mestu leyti af gömlu eðalsmeðal dóti sem Ewok fann í plötu hillunni sinni.Frábært mix.

Á árinu hefur veirð mikið um sambræðing á milli house og dubstep. Þetta þykir mér skemmtilega pæling þar sem mikið af dubsteppi er good stuff. Nýjasta promo mixið hans Kára Hypno er dæmi um slíkan sambræðing og ég mæli með að fólk tékki á því.

182. Resident Advisor mixið kom út í gær. RA mixin hafa verið frekar einsleit(allir að spila svífandi deep house) þó með nokkrum undartekningum. Mix nr. 182 er eitt að þessum undartekningum en það er enginn annar er en Guillaume and the Coutu Dumonts sem sér um það. Hann er í miklu uppáhaldi hjá undirrituðum og veldur þetta mix hans mér ekki vonbrigðum.

Dj Shaft bætti nýlega við 11 hlutanum í Adult Music mix seríuna sína. Soulful vocal house ræður þar ríkjum eins og í fyrri hlutunum. Ég mæli með að fólk tékki á þessu mixi og restinni af sériunni. Mixið má nálgast hér og tracklisti og önnur mix eftir Shaft má finna hér

Að lokum ætla ég að benda fólki á live settið mitt frá Airwaves, þar sem ég spilaði á Reyk Veek kvöldinu á Jacobsen.

Magnús Felix|magnusfelix@gmail.com

Flokkar: Syrpu Syrpa
Tagged: , , ,

Ársuppgjör 2009

desember 14, 2009 · 3 Ummæli

Það er komin árslistatíð (og þar að auki áratugalistatíð…). Hér eru linkar á uppgjör nokkura vefmiðla í danstónlistargeiranum:

Resident Advisor
dubstepforum tilnefningar
Fact Magazine
Boomkat

Einhvern vegin er það svo hefðin á íslandi að gera tónlistarárið upp á nýja árinu (amk í dansgeiranum). Árslisti Breakbeat.is verður á sínum stað í janúar (og býst við því að sama sé upp á teningnum hjá PZ og fleirum). Hins vegar ekki seinna vænna að fara að pæla í þessu.  Hvað stóð upp úr hjá ykkur? Listamenn ársins? Breiðskífur ársins? Lög / smáskífur ársins? Tjútt ársins? Endilega segið frá í athugasemdunum.

Flokkar: linkar · listar · mp3
Tagged: , , , ,

Topp 10 – desember

desember 10, 2009 · 9 Ummæli

Karl Tryggvason
1. Peverelist – Jarvik Mindstate (Punch Drunk)
2. Florence & The Machine – You Got The Love (Jamie XX rework feat The XX) (?)
3. Robot koch – Death Star Droid LP (Robots Don’t Sleep)
4. Kyle Hall – The Dirty Thouz (Wild Oats)
5. 2562 – Unbalance (Tectonic)
6. Breakage feat. Roots Manuva – Run’em Out (Digital Soundboy)
7. Claude Speed – Don’t Ever Antagonize The Horn (Lucky Me Freep3)
8. Icicle – Cold Fear EP (Shogun)
9. ASC – Porcelain (Nonplus +)
10. Danuel Tate – Doesn’t Like You Back (Wagon Repair)

Tryggvi Þór Pálsson
1. Converge – Axe to Fall (Epitaph)
2. Crookers – No Security (Zomby Mix) (Southern Fried Records)
3. Edward Williams – Life On Earth – Music From the 1979 BBC TV Series (Trunk)
4. Ghosts On Tape – Predator Mode (Roska Remix) (Wireblock)
5. Ikonika – Fish (Hyperdub)
6. Kyle Hall – I’m Kyle MFN Hall Girl (Wild Oats)
7. Naptha – Soundclash 1 (Grievous Angel Mix) (Keysound Recordings)
8. Peverelist – Bluez (Tectonic)
9. SP & MC Joker D – Taiko Dub (Tempa)
10. Untold – Stop What You’re Doing (James Blake Remix) (Hemlock)

Flokkar: Topp 10 · listar
Tagged: , ,

100 bestu plötusnúðar ársins að mati RA

desember 7, 2009 · 6 Ummæli

Veftímaritið Resident Advisor birti í dag listann sinn yfir 100 bestu plötusnúða heims. Þessi listi er mun skemmtilegri og fjölbreyttari heldur en listi DjMag þó svo að úrslitin séu full fyrirsjáanleg. Ég ætla ekki að segja frá úrslitum en mæli með að fólk kíkji á listann sem má finna hér.

Flokkar: Uncategorized
Tagged: ,

Technics Sl 1200 R.I.P

desember 2, 2009 · 8 Ummæli

Skv. fréttasíðunni www.inthemix.com ætla Panasonic að hætta framleiðslu á Technics Sl 1200 og 1210 í febrúar á næsta ári. Þetta þykjar mér leiðinlegar fréttir þar sem spilararnir hafa gengt mikilvægu hlutverki í tónlist í langan tíma. Spilararnir sem fyrst vory kynntir til sögunnar 1972  og hafa síðan þá verið “the industry standard” fyrir alla plötusnúða. Þó að fyrirtæki eins og Vestax og Numark hafi komið með fjöldann allan af seguldrifnum spilurum með endalaust mörgum misgáfulegum  fídusum hefur þeim ekki tekist að velta Sl spilurunum úr sessi.

Eigendur slíkra spilara þurfa þó ekki að örvænta því Sl´arnir eru þekktir fyrir að vera stálið og eiga að virkar rosalega lengi. Spurningin er samt hvað gerist, hvort að einhver önnur tegund taki við eða fólk fari bara að skipta þeim út fyrir  geislaspilar. Eitt er þó víst að notuðu spilararni munu rjúka í verði og er fólk farið að hamstra þeim.

Flokkar: fréttir
Tagged: ,