DansiDans.com – Raf- og danstónlist á Íslandi

Entries from febrúar 2010

Hliðrænt í Stafrænt – Plötuupptökur Bjögga Nightshock

febrúar 15, 2010 · 9 Ummæli

Síðustu færslur hér á DansiDans hafa fjallað um vínylást og plötusöfnun en því verður ekki neitað að þrátt fyrir alla sína kosti er vínyllinn ekki jafn handhægur og hin ýmsu stafrænu skráarsnið sem hafa rutt sér til rúms á undanförnum árum. Af þeirri ástæðu og ýmsum öðrum hafa margir lagst í það verkefni að koma skífum sínum á stafrænt form á síðustu árum; plötusnúðurinn Bjöggi Nightshock er í þeim hópi. Bjöggi hefur á undanförnum árum lagt mikinn tíma og vinnu í slíkar upptökur og er fróðari en margur um málefni þessu tengt. DansiDans fór á stúfana og spurði Bjögga spjörunum úr um plötuupptökur.

Hvernig kom það til að þú fórst að taka upp plöturnar þínar (og annarra) í stórum stíl?
Það er svo langt síðan ég byrjaði að taka upp plötur að ég man ekki lengur af hverju ég byrjaði. Það er auðvitað mjög þægilegt að geta sett saman playlista með fullt af lögum og hlustað í stað þess að vera kannski með 20 plötur á gólfinu og svo setja hverja plötu á fóninn.

En einhvern veginn varð þetta að risa stóru áhugamáli og maður hreinlega festist í þessu. Svo þegar maður er kominn með plötusafn upp á 1500 plötur þá er þetta einnig mjög fín leið til að “kynnast” plötunum.

Hvaða græjur ertu að nota í augnablikinu?
Ég nota “moddaðan” Technics 1200MK2 spilara. Fyrst var vökvadempari sem er fylltur af sílikoni settur á tónarminn. Hugmyndin bakvið það er að nálin helst betur í grúvinu þó svo að platan sé ekki endilega slétt (sem fæstar plötur eru) og minnkar alla mótstöðu sem er mjög mikilvægt þegar nálin er stillt á rétta þyngd.

Svo var settur mjög fínn koparvír inn í tónarminn sem er svo leiddur út á plötu bakvið spilarann og tengt svo í Ecler Nuo 2.0 mixer sem er svo tengdur í Lynx L22 hljóðkort í tölvunni.

Allt er svo rétt stillt eftir leiðbeiningum. Tónarmurinn þarf að vera í réttri hæð, nálin þarf að vera í réttri lengd frá tónarminum, anti-skate þarf að vera stillt í samanburði við þyngdina á tónarminum og svo framvegis. Þetta er allt breytilegt miðað við hvað maður er með.

Ég hlusta á allar upptökur í Sennheiser HD650 heyrnartólum sem eru keyrð af Creek OBH-11 headphone magnara.

Hvernig pickupp notarðu?
Ortofon 2m Bronze. Mjög fínn pickupp sem er með mjög mjórri nál sem er til þess að hún komist dýpra í plötuna og þar af leiðandi í svæði sem eru kannski alveg ósnert af öðrum nálum. Ég valdi hann þar sem að mig vantaði mjög góðan pickupp í upptökur sem myndi einnig endast mjög lengi.

Hvernig geymirðu upptökurnar? Mp3? Wav? Flac? Ertu með backup?
Fyrst voru upptökurnar geymdar sem 64kbit Mp3 skrár og voru teknar upp á +6 eða +8 svo lögin væru styttri. Svo eftir því sem diskapláss stækkaði þá stækkuðu gæðin líka. Í dag geymi ég upptökurnar sem 96khz 24bit Flac skrár og finnst það vera í raun meira en nóg! Ég hef stóran hluta af safninu á 320 Mp3 formi á flakkara en stefni á að skipta því yfir í Flac á endanum.

Hvernig er ferlið í kringum upptökur hjá þér?
Fyrst er platan hreinsuð, ef það er eitthvað um puttaför eða platan er augljóslega drullug þá er hún þrifin í köldu vatni með sápu og látin þorna í nokkra klukkutíma eftir að búið er að þurrka plötuna. Ef mikið af stöðurafmagni á plötunni þá nota ég sérstakan vökva til að losna við það. Ef ég þarf ekki að þvo plötuna þá nota ég límbandsrúllu sem ég fann á Chemical Records til að “rífa” rykið af plötunum, svínvirkar! Ég hef prófað svona vökvasprey sem á að leysa upp drullu af plötum en hef ekki fengið neitt voðalega góðar niðurstöður af þeirri notkun.

Nálin á pickuppnum er hreinsuð fyrir og eftir hverja plötu með bursta sem fylgdi með honum. Það safnast alltaf eitthvað af ryki og drullu á nálina alveg sama hversu hrein platan er og ef þetta er ekki fjarlægt þá bæði dreyfir þetta meiri drullu á næstu plötur og festist á nálinni sem gerir það að verkum að hún fer að hljóma verr. Það eru til vökvalausnir sem hreinsa skítugar nálar en ég er ekki mikið hrifinn af því.

Hvert lag er svo tekið upp í Adobe Audition eins hátt og hægt er án þess að hljóðið fari að bjagast. Eftir að lagið er tekið upp skoða ég lagið með frequency analyzer til að finna út hvort að það sé mikill hávaði frá plötunni sjálfri í upptökunni og svo lagið bútað niður í kafla og hent í forritið DenoiseLF sem fjarlægir tíðnir á bilinu 20-220hz, það fer allt eftir laginu hversu mikið er fjarlægt og á nýjum plötum er nánast ekkert fjarlægt þar sem að þetta er mest áberandi á gömlum mjög spiluðum plötum og picture diskum. Eftir að búið er að fjarlægja lágtíðnir sem eru ekki hluti af laginu þá er lagið sett í gegnum Clickrepair ef það er eitthvað um rispur í laginu. Eftir það er lagið sett saman aftur og svo hlustað á það til að gá hvort að ég hafi misst af einhverju og hvort þetta hljómi ekki bara ásættanlega.

Hvað ertu búinn að taka upp mikið af tónlist?
Ég held að ég hafi byrjað að taka upp árið 2000. Ef ég tel með öll skiptin sem ég hef tekið upp frá grunni þá hef ég tekið upp alveg mörg þúsund lög (kannski hátt í 10.000). Það er alveg gríðarlegur tími sem er búinn að fara í þetta.

Fyndist þér svindl að stela bara upptökunum (t.d. torrent eða eitthvað slíkt)
Það hjálpar mér mjög lítið þar sem ég veit ekkert um gæðin á þeim og ég vill hafa lögin í sömu gæðum. 320 mp3 passar ekki alveg inni í safn af 96khz 24bit Flac skrám. Ef það væri einhver þarna úti sem væri með nákvæmlega eins setup og ég og væri búinn að taka upp allar plöturnar í safninu mínu þá myndi ég sennilega “stela” þeim.

Hvað notarðu til þess að halda utan um upptökurnar, einhvern gagnagrunn? iTunes? Winamp?
Hver plata fær möppu sem er geymd í möppu fyrir hvert og eitt útgáfufyrirtæki. Fyrir stærri label eins og moving shadow sem eru með mörg mismunandi catalog númer þá eru sér möppur til að halda utan um það líka (t.d. MSX, ASHADOW, SHADOWR). Hver mappa byrjar á ártali, svo catalog númeri, listamanni og svo loks titli skífunnar.

Hvaða fylgigögn (metadata) eru með lögunum? Titlar, útgáfur, bpm, artwork?
Titlar, ártal og catalog númer. Fyrir mér er það allar þær upplýsingar sem ég þarf.

Flokkar: Umfjöllun · Viðtal · íslenskt
Tagged: , , ,

Góð Kaup?

febrúar 12, 2010 · 4 Ummæli

Forvitnilegur hlekkur í framhaldi af færslunni um plötusöfnun. Hver myndi ekki borga 4143 bandaríkjadali  (eða 536.477,07 íslenskar krónur á gengi dagsins) fyrir hip hop 12″ frá 1980…

Hvað er það mesta sem DansiDans lesendur hafa borgað fyrir plötu? Notaða eða nýja.

Flokkar: linkar
Tagged: , , ,

Útlitsbreytingar og Viðburðadagatal

febrúar 11, 2010 · 3 Ummæli

Glöggir lesendur DansiDans hafa tekið eftir smávægilegum útlitsbreytingum á síðunni, hér fyrir ofan getur nú að líta vísi að valmynd þar sem hægt er að komast beint á ýmsar undirsíður eða flokka DansiDans. Þá smelltum við inn DansiDans Viðburðadagatali á Google Calander, þar munum við setja inn raf- og danstónlistartengda viðburði á Íslandi. Smellið á hlekkinn “Á Döfinni” hér að ofan til þess að skoða það nánar eða kíkið á RSS áskriftina hér til hægri.

Ef þú stendur að viðburði sem þú heldur að við gætum haft áhuga á skaltu láta okkur vita með tölvupósti eða í athugasemdum hér á síðunni.

Flokkar: íslenskt

Plötusöfnun

febrúar 4, 2010 · 16 Ummæli

Ekki alls fyrir löngu lagði ég leið mína til sænska húsgagnarisans í Garðabæ til þess að versla forláta expedit hillu undir plötusafnið mitt. Í þessa verslunarferð, í það að setja hilluna saman og loks í það að færa plöturnar í nýju hilluna fór næstum hálf helgi. Hillan sjálf er hin ágætasta enda algeng sjón hjá þeim sem hafa plötusöfnun sem hobbí. En þetta ferli allt saman fékk mig til þess að velta vöngum yfir ýmsum plötutengdum málum og varð því kveikja að nördalegum pósti þessum.

Mynd: Mediaeater

Skipulag
Eins og allt hugsandi fólk raða ég í stafrófsröð eftir útgáfufyrirtækjum. Reyndar flokka ég fyrst gróflega eftir stefnum: drum & bass, hardcore og jungle plötur fara saman, house og techno skipa sér í einn flokk, dubstep, garage og grime heyra undir eitt og restin (hip hop, popp, rokk, jazz, pönk, diskó o.s.frv.) er saman í belg og biðu.

Að flokka eftir útgáfum meikar sense, í það minnsta í danstónlist. Ef farið er eftir listamönnum getur verið erfitt að ákveða (og þ.a.l. að finna plötur aftur síðar meir ) undir hvorn listamanninn samvinnuverkefni eða annað slíkt ætti að heyra, auk þess sem margir vinna undir mörgum nöfnum. Þá er, að mínu mati, auðveldara að muna og sjá útgáfu heldur en útgáfuár eða eitthvað slíkt. Þess vegna raða ég eftir útgáfum, white label plötur fyrst, þá label sem byrja á tölustöfum og loks a, b, c, d….

Ef ég á mikið af plötum frá tiltekinni útgáfu raða ég stundum gróflega eftir útgáfunúmer (catalogue no.), en oftast er nógu auðvelt að finna það sem maður leitar af eftir labelinu sjálfu. Hjá spilurunum mínum geymi ég svo tvo kassa sem ég nota undir nýtt dót, plötur sem ég er mikið að spila þá stundina og plötur sem ég er með í láni. Auk þess eru plötutöskurnar oft við höndina og fullar af stuffi sem er í umferð. Mikilvægt er að reyna að taka úr kössum og töskum og raða í hillurnar reglulega.

Umhirða
Persónulega er ég alger böðull, sést það á ófáum skífum mínum og þá sérstaklega á hulstrunum. Er þetta hvimleitt en stundum soldið gaman þar sem minningar tengjast sumum óförunum (sbr frægar partýrispur og minningar á borð við”ah þetta er platan sem að sullaðist á þegar ég var að spila á…” eða “þetta er coverið sem beyglaðist í flutningunum um árið”).

Maður er þó auðvitað að verða eldri og vitrari auk þess sem batnandi manni er best að lifa. Ætla ég að reyna að ganga betur um vínylinn og er t.d. byrjaður að versla plastumslög utan um plöturnar. Ef einhver veit um góðan stað til þess að versla slíkt eru ábendingar vel þegnar. Það er eins og mig minni að Múlalundur eða Blindravinnustofan hafi einhvern tíman framleitt svona stuff? Annars kosta 50 plastvasar það sama og ein 12″ á Juno og er það verðugt verkefni að koma safninu smám saman í plast.

Reglulega þarf að þurka af eða ryksuga hillurnar sem hýsa vínylinn svo að ryk setjist ekki á skífurnar. Til þess af þurka af plötum nota ég sjálfur bara raka fína tusku eða bara bol eða peysu þá sem maður klæðist þegar platan er sett á fón. Stöðurafmagn er leiðinlegur fylgifiskur plötunnar en mér finnst öll þessi sprey, klútar og burstar sem seldir eru dýrum dómum ekki leysa vandan nógu vel miðað við kostnað.

Yfirsýn
Ég mæli með að eiga einhvers konar gagnagrunn yfir safnið sitt, t.d. fyrir tryggingarmál ef eitthvað kemur upp á. Vefir eins og Discogs og Roll da Beats eru kjörnir fyrir slíkan gagnagrunn, þeir bjóða upp á ýmis konar nördalega tölfræði um safnið þitt auk þess sem maður getur deilt safninu með öðrum söfnurum. Sjálfur á ég úrelt excel skjal með safninu mínu en er alltaf á leiðinni að setja safnið inn á Discogs.

Eitthvert hvimleiðasta vandamálið sem plötunum fylgir er þegar maður setur plötu í misförum í rangt cover, þá getur platan endað hvar sem er í hillunni en upprunalegt og tómt umslagið verður að sorglegum minnisvarða um plötuna týndu. Þegar safnið er orðið meira en nokkur hundruð skífur er leit að týndum plötum leiðindaverkefni, slys af þessu tagi ætti að forðast eftir bestu getu.

Mynd: fensterbme


Sala og kaup

Þegar ég byrjaði að versla vínyl var safnið mitt heilagt, mér fannst eins og þetta tiltekna samansafn platna skilgreindi mig einhvern veginn og væri hluti af mér. Að selja plötur hefði verið eins og að selja börnin sín.

Í dag hef ég skipt um skoðun, mér finnst mikilvægt að grisja úr safninu öðru hverju og eiga frekar fáar góðar plötur en margar ágætar. Það er engin dyggð í því að eiga risasafn sem er fullt af fillerum. Ef þú átt plötur sem þú hefur ekki spilað í mörg ár og sérð ekki fram á að spila á næstu árum, hví ekki að selja þær? Kannski er einhver að leita að nákvæmlega þeirri skífu sem þú vilt losna við og myndi gleðja hann/hana mikið að komast yfir plötuna. Það er svo annað mál að það er eflaust enginn leikur að losna við sumt af því drasli sem maður hefur sankað að sér í gegnum árin… Discogs kemur aftur sterk inn í þessu tilliti, sem og second hand safnarabúðir um víða veröld.

Þessa punkta ætti maður líka að reyna að hafa í huga þegar maður verslar vínyl, sérstaklega á þessum einnota mp3 tímum þar sem lög koma og fara á augnabliki og þegar gengið gerir það að verkum að ein 12″ kostar hátt í 2000 krónur! Þá er mikilvægt að kaupa það sem maður heldur að standist tímans tönn, að versla sígilda klassíkera en ekki dægurflugur. Einnig er rétt að hafa í huga að það er þessi sérstaka blanda af canon efni og sjaldgæfari eða einstakari plötum sem að skapa safn með karakter. Auðvitað eru til essential plötur í hverjum geira sem allir aðdáendur ættu að eiga en það eru þessar minna þekktu skífur sem að skapa manni sérkenni sem plötusnúði og sem safnara.

Athugasemdir?
Auðvitað eru fleiri pælingar tengdar hobbíi af þessu tagi, en ekki dettur mér meira í hug að sinni. Líkt og endranær væri gaman að heyra hugleiðingar lesenda um þessi málefni og þeir sem hafa lagt skónna á hilluna hvað varðar plötusöfnun geta rætt skipulagið á mp3 og geisladiskasöfnun (eða ekki…).

Flokkar: pælingar
Tagged: , , ,