Stutt og skemmtileg umfjöllun um pirate-radio stöðvar í Bretlandi, merkileg menning og saga tengd þessu fyrirbæri. Veit einhver hvort útvarps sjóræningjar hafa einhvern tíman spreytt sig á Íslandi?
Entries from mars 2010
Sjóræningjaútvarp
mars 28, 2010 · 2 Ummæli
Flokkar: linkar · video
Tagged: Útvarp, heimildarmynd, pirateradio, video
Sasha á Hacienda… þegar ég var 6 ára.
mars 25, 2010 · 2 Ummæli
Sasha hefur reyndar aldrei verið í neinu uppáhaldi hjá mér, en hann er óumdeilanlega merkilegur plötusnúður og brautryðjandi í raftónlist. Þetta sett frá 1989, sem tekið var upp á Hacienda klúbbnum í Manchester, verður að teljast þokkalega merkilegur mp3 fæll. Upptakann er í boði Rico Passerini sem virðist komast í ótrúlegustu upptökur. Mæli með honum.

Hér er lagalistinn. Mikið “hip house“.
Doug Lazy – Let The Rhythm Pump
MC Buzz B – How Sleep The Brave (Hiphouse Track) “House Music”
KC Flightt – Planet E
Toni Scott – Thats How Im Living
Armando – 100% Of Dissin You
Wood Allen – Airport 89
Renegade Soundwave – The Phantom
Bizz-Nizz – Don’t Miss The Party Line
DJ Atomico Herbie – Amour Suave (Remix)
Young MC – Know How
Phuture Pfantasy Club – Slam
Concrete Beat – Thats Not The Way To Do It
KLF – What Time Is Love
Rhythm Device – Acid Rock
FPI Project – Rich In Paradise
Jazz & The Brothers Grimm – Casanova
Musto & Bones – Just As Long As I Got You I Got Love
Stone Roses – Fools Gold
Guru Josh – Infinity
49ers – Touch Me
The Machenzie – Party People
Reese – Rock To The Beat
Kid N Play – 2 Hype
Gino Latino – Welcome
Raul Orellana – The Real Wild House
Julian Jumpin Perez – Stand By Me (Valentino) Sounds Like Kraze – The Party
Sueno Latino – Sueno Latino (Cutmaster G Mix)
Búnaðurinn á myndinni er líklega ekki lýsandi fyrir set-uppið á Hacienda.
- Leópold Kristjánsson
Flokkar: Dj mix
Tagged: Hacienda, England, 1989, Sasha, Manchester
Red Bull Music Academy
mars 20, 2010 · 1 ummæli
Eins og við höfum áður bent á er Red Bull Music Academy eitthvað sem allir tónlistarmenn og plötusnúðar ættu að tjékka á. Síðasta námskeið þeirra Red Bull manna var haldið í London í febrúar mánuði, eins og búast mátti við fór fram fjöldinn allur af skemmtilegum tónleikum og fyrirlestrum frá spennandi listamönnum. Meðal þessara listamanna má nefna Moodyman, Kode 9, Martyn og Modeselektor.
Ef maður var ekki svo heppinn að hafa komist inn í skólann, getur huggað sig við það að horfa má á fyrirlestrana á netinu. Ég mæli sérstaklega með að fólk tékki á Moodymann fyrirlestrinum. Moodymann veitir sjaldan viðtöl og er svolítið skemmtilegur karakter, svo er tónlistin hans líka frábær. Lista yfir fyrirlestra árið 2010 má finna hér.
Flokkar: Umfjöllun · video
Tagged: Moodyman, Kode 9, Red Bull, Martyn
Föstudagsflagari
mars 19, 2010 · 5 Ummæli
Árið 2000 jaðraði ég enn við að vera unglingur. Ég var aðeins farinn að grúska í danstónlist og fór stundum í Þrumuna sálugu. Sagði Grétari hvað ég væri að skynja og hann skildi hvað ég átti við. Einhverntíma fór ég heim með Slam – Past Lessons Future Theories.
Þegar heim var komið smellti ég honum í gang og á svona fimmtu mínútu er hreinlega allt að frétta. Bassalínan úr Heavenly dettur inn. Ég var nýbúinn að smíða Þrumujálk og allt var stillt í botn. Það var rómantískt techno augnablik. E Dancer er eitt af listamannsnöfnum Kevin Saunderson. Þau lóð sem hann hefur lagt á vogarskálar techno’sins verða seint öll upptalin.
Kevin fær hér töframannin Juan Atkins til að endurhljóðblanda, og úr verður föstudagsflagarinn 19. mars 2010. Slíkir eru töfrarnir.
Jón Frímannsson
Flokkar: Föstudagsteknó
Tagged: E Dancer, Juan Atkins, Kevin Saundersson, Slam
Pioneer DJM-2000
mars 18, 2010 · 3 Ummæli
Stutt græjurúnkara færsla, hafa væntanlega flestir heyrt af þessari græju núna en Pioneer menn eru líka komnir með video sem sýna gripinn in action.
Sjálfur er ég semi skeptískur á þennan mixer, er þetta ekki að verða komið gott? Eru Pioneer menn ekki bara að reyna að gera of mikið með einni græju? Finnst snertiskjárinn hafa full takmarkaða virkni en kannski er það bara spurning um hvernig maður notar hann. Vona einnig að sándið hjá þeim haldi áfram að batna. Verður í það minnsta gaman að fá að prufa þetta einhvern tíman á næstunni, bara spurning hvað herlegheitin muni kosta í íslenskum krónum…
Flokkar: fréttir · linkar
Tagged: djm2000, græjur, mixer, pioneer
Að byrja kvöldið
mars 11, 2010 · 11 Ummæli
Síðustu helgi spilaði ég á mínu fyrsta giggi í Danmörku en ég flutti þangað síðasta sumar. Giggið var að hita upp fyrir hinn þýska Manuel Tur og skemmtistaðnum Dunkel. Ég átti að byrja kvöldið klukkan 23 og spila til klukkan 01. Ég myndi seint kallast reyndur plötusnúður og í aðdraganda að þessu fór ég mjög mikið að spá í því hvernig maður hitar upp fyrir aðra og hvernig maður byrjar kvöld yfirhöfuð og langar mig að skapa smá umræður um það hér. Ég hafði áður lesið greinar um að hita upp á Beatportal og Resident Advisor og út frá þessum greinum og fyrri reynslu hef ég myndað mér ákveðinn gildi.
Passaðu hraðann á lögunum þínum.
Notaðu bpm mælinn sem er að finna á flestum mixerum og settu eitthvað hámark á hvað þú mátt vera að spila hratt. Ég reyni yfirleitt að halda mig undir 120 bpm til miðnættis og svo halda mig á bilinu 120-124 til klukkan 1. Ástæðan fyrir því að ég geri þetta er, að þó að ég geti hlustað á pumpandi teknó klukkan 14 á daginn á það alls ekki við um alla. Flestir sem eru á skemmtistað fyrir miðnætti eru þar ekki til að dansa heldur bara til að fá sér drykk.S kemmtistaður með tómt gólf og pumpandi tónlist þykir mér fráhrindandi
Forðastu stór breakdown.
Flest lög innihalda einhvers konar breakdown en stærðin á þeim er mismunandi. Þó svo að mér þykir stór breakdown oft mjög skemmtileg, finnst mér þau svolítið spari og reyni að fara pent með þau. Dansgólfið þarf að vera orðið nægilega sterkt til þess að breakdown virki.
Ég reyni yfirhöfuð að forðast stór og sterk lög með of mikilli uppbyggingu. Mér finnst þau gera dansgólfið vandræðalegt og sjálfur er ég lítið fyrir stórt sound snemma kvölds.
Go Deep but not to deep
Síðast liðinn misseri hafa allir verið að missa sig í vera deep og Detroit á því, þó að flest af þessu “neu deep” sé drasl má finna ýmsar svoleiðis plötur í töskunni minni. Ég reyni þó að forðast það að nota þær snemma um kvöld.
Mínar upplifanir á skemmtistöðum hafa alltaf verið þannig að það er groovið sem grípur mig og dregur mig út á dansgólf og svo seinna (ef ekki mun seinna) er ég tilbúinn til að hlusta á eitthvað deep. Ég reyni samt alltaf að spila eitthvað óhefðbundið sem ég fíla á á milli 23-01.
Á ég að eltast við dansgólfið?
Fyrstu skiptinn sem ég spilaði var þetta svolítill stressfaktor. Ef fólk bað mig um óskalög átti ég þá að spila þau? Það fer auðvitað alveg eftir því hvað manneskjan er að biðja um. Ef hún er að biðja um tónlist sem maður fílar þá gæti verið gaman að spila óskalagið. En maður á ekki að ekki að þurfa að spila dót sem maður fílar ekki til að fylla dansgólfi. Ef maður fílar góða tónlist og spilar það sem maður fílar myndast yfirleitt stemmning. Sá sem ræður þig í vinnu á að vita hvernig tónlist þú spilar og promota kvöldið eftir því.
Óskalög?
“Hérna geturu kannski spilað eitthvað sem hægt er að dansa við”,”áttu ekki eitthvað með ABBA”. Ég hef mjög oft verið spurður að þessu og hef ekki ennþá fundið gott svar þannig að ég set yfirleitt bara með heyrnatól á hausinn og þykist ekki heyra í fólkinu. Hér má finna mjög góð svör við flestum heimskulegum spurningum sem fólk kann að hafa.
Í raun skiptir mestu máli að skynja stemmninguna. Mínar reglur nota ég meira sem viðmiðun en ekki fasta reglur. Ef það er kominn mega stemmning snemma þá spila ég auðvitað með því.
Það væri gaman að hvernig aðrir plötusnúðar tækla þetta verkefni.
Magnús Felix|magnusfelix@gmail.com
Topp tíu – mars
mars 2, 2010 · 8 Ummæli
Kalli
1. Mark Pritchard – Elephant Dub (Deep Medi)
2. DVA – Natty (Hyperdub)
3. Actress – Loomin (Nonplus)
4. I.D. & Baobinga – Bass Music Sessions LP (Bass Music)
5. The XX – Islands (Faltydl Remix)
6. C Kret – Fiendish (Future Thinkin’)
7. Martyn – Is this Insanity feat. SpaceApe (Ben Klock Remix) (3024)
8. Beem – Peel (Self Released)
9. Marcus Visionary – My Sound (Lion Dubs)
10. Oneohtrix Point Never – Physical Memories (No Fun Productions)
Magnús / Moff & Tarkin
1. Motor City Drum Ensemble – Stuttgart Nights (Quintessentials)
2. Pezzner – Chapter Two (OM)
3. Levon Vincent – Late night jam (Ostgut ton)
4. A made up sound – On and On (Clone Basement Series)
5. Damian Schwartz – Holloway (Oslo)
6. Point G – Headache (Innervisions)
7. Mood II Swing – All night long (Defected)
8. Die Vögel – Blaue Moschee (Pampa)
9. Kyle Hall – Dunk jiggla (Wild Oats)
10. Jayson Brothers – All my life (MCDE)
Leópold Kristjánsson
1. Anthony & the Johnsons – Epilepsy is dancing (Rough Trade)
2. Cave Sedem – Boptari Top (Los Updates remix) (Fairlads)
3. Marcel Knopf – Holpergeist 2.0 (Mo’s Ferry)
4. Laverne Radix – Deep moves (Raum…musik)
5. Johnny D – Point Of No Return (Oslo Records)
6. Voodeux – Just a Spoonful (Mothership)
7. Zed Bias – Neighbourhood 09 (Roska remix) (Biasphere)
8. Adam Port – No Pain (Keinemusik)
9. Om’Mas Keith & Mark Pritchard – Wind it Up (Hyperdub)
10. Jin Choi – Basilisk (Archipel)
