Monthly Archives: apríl 2010

Jútjúb Miksteip #10 Klassix

Eins og ég hef áður minnst á hafði All-Time-Top-40 listi Party Zone árið 2003 mikil áhrif á mig þegar ég var að byrja að hafa áhuga á danstónlist. Ég mæli með því að fólk skoði þennan lista vel því af honum er hægt að læra ýmislegt um sögu danstónlistar og heyra alveg æðisleg lög. Þetta mixteip inniheldur 5 vel valin lög af listanum.


1.Crystal Waters – Gypsy woman(Mercury)
Þessi banger  virkar enn á dansgólfinu í dag þótt það séu liðin tæp 20 ár frá því að hann kom út. Orgelið mega flott og alltaf jafn gaman þegar kickið kemur og svo þegar hún byrjar að syngja “la da de, la de da”. Því miður á ég bara eitthvað gelt remix af laginu á vínyl sem er ekki alveg jafn gott. Lagið komst í 21. sæti á PZ all time listanum.


2.K Scope – Planet K(Tribal)
Eðal deep house hér a ferð. Seiðandi panflautur yfir synthalínu sem virðist aldrei ætla enda. Eric Kupper sem er maðurinn bakvið K Scope er enn að og gerði meðal annars þetta lag sem er alveg skuggalega líkt Mandarin girl meða Booka Shade.


3.Mood II Swing- All night long(Groove on)
Uppáhalds lagið mitt með house hetjunum í Mood II Swing. Temmilega væminn vokall en samt eitthvað svo fínn.


4.Layo & Bushwacka – Love story(XL recordings)
Þetta lag er talsvert yngra en hin, var topplagið árið 2002. Síðan þá hefur það verið remixað ótal sinnum. Ég held að frægasta remix útgafan af þessu lagi sé mashupið “Final Story” þar sem vokalnum úr Finally með Kings of Tomorrow er splæst saman við lagið. Hvað heyrist ykkur gaurinn vera að segja í breakdowinu? Ég held að hann sé að segja “all he was trying was to get the love he was buying”.


5.Gus Gus – Purple(4AD)
Elska þessa bassalínu og þetta rosaleag dramantíska breakdown. Í það eina skipti sem ég hef séð Gus Gus spila þá spiluðu þeir það ekki. Hafið þið séð þetta live?

þrífðu gamlar plötur…. með trélími!

Það eru til mixtúrur, klútar, burstar og meira að segja vélar til þess að þrífa óhreinindi af plötum. En svo er líka hægt að fara óhefðbundnari leiðir og nota trélím!

Enn af umboðsmanni plötusnúða

Í framhaldi af síðustu færslu hér á DansiDans tel ég rétt að upplýsa um svör Ástu Ragnheiðar við bréfi mínu. Í stuttu máli var þetta mjög dipló svar þar sem Ásta upplýsti um fjölbreyttan starfsferil sinn og lýsti því yfir að hún teldi sig vera fulltrúa allra þeirra starfstétta og Íslendinga almennt. Það er því auðsýnt að plötusnúðar þurfa að leita á aðrar slóðir að umboðsmanni. En örvæntið þó ekki, í ljósi þessarar fréttar hef ég ákveðið að hafa samband við Bjarna Benediktsson og spyrja hvort hann hafi áhuga á þessu embætti.

Reynist ættarlaukur Engeyjarættarinnar hafa áhuga á að vinna að hagsmunum plötusnúða mun ég bjóðast til þess að kenna honum á þartilgerð tæki og tól og kenna honum að beatmixa, heimili mitt er steinsnar frá Alþingishúsinu og getur Bjarni litið við í þinghléum og lært plötusnúðalexíur.

Karl Tryggvason

viðbót 23.04.2010
tölvupóstur sem undirritaður sendi á Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur og Bjarna Benediktsson

from: Karl Tryggvason ktryggvason@gmail.com
to:Ásta R. Jóhannesdóttir” – arj@althingi.is
cc: bjarniben@althingi.is
date: Fri, Apr 23, 2010 at 12:11 PM

subject: Re: Íslenskir plötusnúðar

Sæl Ásta

Þakka þér fyrir skjót svör og sömuleiðis fyrir óeigingjarnt starf í þágu landsmanna allra. Þótt það hryggi mig að þú sjáir þér ekki hag í að gerast sérstakur málsvari plötusnúða. Enn leikur mér þó hugur á að vita hvort hægt væri að fá þig aftur bakvið spilarana og snúa skífum?

Leyfi mér að setja hér internet-krækju á nýja færslu sem ég setti upp á vefsíðuna DansiDans
(http://dansidans.com/2010/04/23/enn-af-umbodsmanni-plotusnuda/).

Í ljósi þessarar fréttar http://www.ruv.is/frett/margir-thingmenn-fulltruar-hagsmuna hef ég ákveðið að beina fyrirspurnum um umboðsmann plötusnúða til Bjarna Benediktssonar (og setti hann í cc í tölvupósti þessum), hann virðist fúsari til þess að starfa á alþingi í þágu hagsmuni takmarkaðra hópa í þjóðfélaginu (eins og má kannski dæma af þingferli hans). Kannski er hann fáanlegur til þess að starfa ötult að bættu starfsumhverfi plötusnúða.

bestu kveðjur
-Kalli

Umboðsmaður plötusnúða

Ég legg til að Plötusnúðafélag Íslands biðli til Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, 10. þingmanns Reykjavík-Suður og Forseta Alþingis, um að gerast verndari félagsins og sérstakur umboðsmaður plötusnúða. Þessa tillögu legg ég fram í ljósi ferils Ástu en í ferilskrá hennar á www.althingi.is segir m.a.

Plötusnúður í Glaumbæ 1969-1971, auk þess í Tónabæ og Klúbbnum

Margir þingmenn vinna að hagsmunum ólíkra starfstétta og hafa fyrrum stéttarsystur og bræður sína í huga við störf sín á Alþingi. Ásta ætti að vera öflugur málsvari plötusnúða á Alþingi. Ég vil til að mynda sjá frumvarp sem bindur í lög rétt plötusnúða til almennilegs tækjakostar, monitoraðstöðu, fasts sætafjölda á gestalista og lágmarkslaun, þá ætti að skrá í lög skattaafslátt af headphonum og plötuspilurum og niðurgreiða vínylplötur sem atvinnutæki (annað eins hefur nú verið gert fyrir aðrar stéttir).

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingmaður og fyrrum plötusnúður

Ég hugsa að ég fari ekki með fleipur þegar ég segi að ógreiddar og útistandandi skuldir plötusnúða hjá núverandi og fyrrverandi skemmtistaðaeigendum og prómóterum nemi milljónum, þessar upphæðir hafa svo sannarlega áhrif á þjóðarbúið. Ríkið ætti að gangast í ábyrgð fyrir slíkum skuldum og almennt að styðja betur við bakið á plötusnúðastéttinni.

Hlutverk plötusnúða sem eins konar öryggisventill kapítalísks þjóðfélags er óumdeilt, hver veit hvar samfélagið endaði ef ekki væri fyrir skemmtanalífs soundtrackið sem plötusnúðar bjóða upp á. Við þá tóna fær ölvaður almenningur dans-útrás fyrir fústrasjónir daglegs lífs á hrunskerinu. Líkt og glímukappar í hringleikahúsum Rómar hið forna eru plötusnúðar samtímanum mikilvægir og koma jafnvægi á ringulreiðina. Því er ekki nema sanngjarnt að þeir eigi sérstakan fulltrúa hjá löggjafavaldinu.

Að lokum legg ég til að fræknir rekstraraðilar skemmtistaða bóki Ástu Ragnheiði til þess að spila hjá sér, væri skemmtilegt að sjá hvaða skífur hún leggur á fón og hvernig hún gæti náð upp stemningunni á dansgólfum landsins. Að snúa skífum er eins og að hjóla, list sem gleymist seint ef hún einu sinni er lærð.

Ég hef sent Ástu Ragnheiði tölvupóst með hlekk á þessa færslu og áskorun um að láta til sín taka í þessum málum. Áhugasamir lesendur geta fylgst með framvindu mála hér á DansiDans.

-Karl Tryggvason

viðbót 20.04.2010 – texti úr tölvupósti til Ástu R.

Sæl Ásta

Karl Tryggvason heiti ég, er plötusnúður og áhugamaður um tónlist ýmis konar. Á vafstri um veraldarvefinn varð fyrir vegi mínum ferilskrá þín á www.althingi.is og þótti mér forvitnilegt að sjá þar að þú starfaðir sem plötusnúður á árum áður.

Í ljósi þessara upplýsinga setti ég fram áskorun á vefsíðunni DansiDans.com (ég er einn umsjónarmanna síðunnar), þar sem ég legg til að þú talir máli plötusnúða á okkar háa Alþingi, auk annarra tillagna þessu máli tengdu. Vil ég gjarnan heyra hvað þér finnst um þessa hugmynd og hvort þér þyki ekki rétt að kjörnir fulltrúar landsins styðji við bakið á plötusnúðum líkt og öðrum starfstéttum? Hlekkur á þess áskorun: http://dansidans.com/2010/04/20/umbodsmadur-plotusnuda/

bestu þakkir og kærar kveðjur
-Kalli

Alþjóðlegi Plötubúðadagurinn (og plötubúða pælingar)

Á morgun verður Alþjóðlegi Plötubúðadagurinn haldinn hátíðlegur í 4. skipti, en eins og nafnið bendir til er þessi dagur tileinkaður óháðum plötubúðum og þeirri menningu sem í kringum þær ríkir.  Hér á litla Íslandi halda verslanirnar Havarí, Bankastræti og Lucky Records, Hverfisgötu upp á þennan dag með tónlistartengdri dagskrá ýmis konar. DansiDans hvetur fólk til þess að líta við, gera sér glaðan dag og jafnvel að versla sér smá músík í fýsísku formi.


Annars er umræða um stöðu og framtíð plötubúða svo margtugginn í fjölmiðlum, spjallborðum og bloggum og maður veit ekki hversu miklu maður hefur við að bæta. Sjálfur sakna ég almennilegrar plötubúðar helgaðari raf- og danstónlist í Reykjavík en held að það sé engan veginn rekstrargrundvöllur fyrir neitt slíkt (þ.e. búð sem höfðar til plötusnúða og tekur reglulega inn nýjar sendingar af vínyl).

Held almennt að viðskipti muni færast meir og meir á netið.  Enn sér ekki fyrir endann á þeirri grisjun sem fer fram í plötubúðaflórunni, þær búðir sem munu lifa af eru stóru vöruhúsin (t.d. Juno og Chemical), sérhæfðari verslanir (t.d. Boomkat) og svo goðsagnakenndar stórborgaverslanir á borð við Hardwax, Black Market og Vinyl Junkies. Litla, vinalega plötubúðin (sem sérhæfir sig í plötusölu, en er ekki með það on the side við klippingar eða café au lait) í minni borgum mun á flestum stöðum hverfa á braut. Hins vegar verður eflaust alltaf ágætis bisness á Ebay, Discogs og í 2nd hand búðunum.

p.s. með þetta allt saman í huga er hér skemmtilegur leikur sem kom upp í spjalli um daginn, þegar maður hlýðir á plötusnúð á skemmtistað getur verið gaman að spyrja sjálfan sig “hefði þessi snúður keypt þetta lag á vínyl í Þrumunni?”.

Beatportal – Weekend Weapons

Á tónlistarbloggsíðunni Beatportal sem er blogsíða tengd Beatport má finna samansafn af greinum sem bera nafnið Weekend weapons. Í þessum greinum er tekið viðtal við hina ýmsu plötusnúða um  lög sem eru í uppáhaldi hjá þeim og boðið upp á sýnishorn af lögunum.

Nú reyni ég yfirleitt að  finna tónlist sjálfur en ekki bara spila það  sem stóru snúðarnir spila, en þessar greinar geta þó verið skemmtileg lesning. Það getur verið gaman að sjá hvort þeir séu að fíla eitthvað svipað og maður sjálfur og ef svo er afhverju þeir fila það eða hvort þeir hafi einhverjar skemmtilegar sögur bakvið lögin. Viðtalið við Dinky þykir mér mjög skemmtilegt og mæli með því.

Lista yfir viðtölin má sjá hér.

Topp tíu – apríl

Kalli
1. Addison Groove – Footcrab (Swamp 81)
2. Breakage – Foundation (Digital Soundboy)
3. Unknown Artist – Larva (Weevil Series)
4. Mizz Beats – My World (Deep Medi Musik)
5. Ramadanman – No Swing (Hessle Audio)
6. Marcel Dettmann  – Vertigo (Wincent Kunth remix) (Ostgut Ton)
7. Dj Jana Rush – Watchout (Juke Trax Online)
8. Calibre – Steptoe (Signature)
9. Kyle Hall – You Know What I Feel (Hyperdub)
10. James Blake – the bells sketch (Hessle Audio)

Leópold
1.  Ogris Debris – Miezekatze (Estrela)
2. Massimo Di Lena & Massi DL – 9991 Highway (Cadenza)
3. N/A – Fables and Fairytales feat. Rosina (Deniz Kurtel remix) (Crosstown Rebels)
4. Thomas Fehlmann – Soft Park (Kompakt)
5. Jenn – Mau Castle House (Karate Klub)
6. Damian Lazarus – Diamond in the Dark (dOP remix) (Get Physical)
7. Mount Kimbie – Taps (Hotflush)
8. Alexkid & Rodriguez – Le Doigt African (NRK)
9. Jason Fine – Many to many (Ben Klock remix) (Kontra Musik)
10. Moodymanc – Faith (House is the cure)

Dansidans Hlaðvarp#10 – Árni Kristjánsson

DansiDans Hlaðvarp#10 – Árni Kristjánsson

Árni Kristjánsson er fjölbreyttur fýr og hefur komið nálægt hinum ólíkustu geirum raf- og danstónlistar. Undanfarinn misseri hefur hann hins vegar einna helst einbeitt sér að boogie / funk / diskó tónlist 9. áratugs síðustu aldar og getið sér gott orð með mixum, klúbbakvöldum og partíum í þeim gírnum.

Árni er um þessar mundir búsettur í Tokyo þar sem hann akademíserar um danstónlist á daginn en spilar hana af plötum á kvöldin. Það er DansiDans mikill heiður að kynna tíunda hlutann í hlaðvarpi okkar frá Árna Kristjánssyni.

Þú getur náð í syrpuna hér og gerst áskrifandi að hlaðvarpinu okkar hér.

1. Hvernig er syrpan sett saman? Einhverjar pælingar eða þema?
Ekkert þema nema bara níundi áratugurinn og sálarfull músík.  Ólíkt hinum 80s diskó og boogie mixunum mínum hef ég smellt hér inn mínum eigin edit-um og svo er eitt lag frá Japan.

2. Hvað ertu annars að bralla þessa dagana?
Er í námi við Tokyo University of Fine Arts að gera rannsókn á klúbbatónlist hér í landi, þá aðallega dubstep og hvernig sena hefur myndast í kringum tónlistina í Japan.  Í tengslum við það verð ég með málþing í skólanum þann 17. apríl um dubstep senuna hér með gestunum Goth Trad, Cycheouts Ghost og Dj Tuttle en þeir hrintu senunni af stað hérlendis.
Er einnig að undirbúa annað Boogie in Motion kvöld sem verður haldið í lok apríl en það er viðburður sem að ég, DJ Kent úr Force of Nature og Shacho úr pönk-djasssveitinni Soil & “PIMP” Sessions stofnuðum snemma á síðasta ári.

Síðast en ekki síst erum við í hljómsveitinni The Zuckakis Mondeyano Project að undirbúa 10 ára starfsafmælis-tónleika sem við ætlum að halda í lok september á Íslandi.  Svo er ég stöðugt að versla og leita að plötum.

3. Hvernig finnst þér “senan” á Íslandi?
Þar sem ég er búsettur hinum megin á hnettinum eins og er hef ég lítið getað fylgst með klúbbakvöldum en mér finnst nóg af skemmtilegri músík að birtast og finnst eins og breiddin sé orðin meiri heldur en seinustu ár.  Mjög spennandi tímar framundan.

4. Hvað feelaru?
Akkúrat núna er það hlaðvarpið I Love Movies hans Doug Benson, tónlistarmaðurinn DJ Deeon og sjónvarpsþátturinn 30 Rock.

5. Linkar / Plögg / Lokaorð?
Rímix mitt af lagi Ezequiel Lodeiro “El Latinazo” er nýkomið út á 10″ á útgáfunni Lovemonk (fæst á Juno /Fat City / Chemical Records og víðar) og kemur út mjög fljótlega sem dánlód.

Við í hljómsveitinni The Zuckakis Mondeyano Project (TZMP) erum svo með nýlegt vídjó við lag okkar Electro Party (In Your Pants) sem má skoða hér.  Svo eru öll þrjú boogie mixin mín reiðubúin til dánlóds á heimasíðunni minni eða í gegnum mæspeisið.

www.arnikristjansson.com
www.myspace.com/arnikristjans
www.myspace.com/tzmp

Lagalisti:
1. Forecast – Don’t Stop
2. Kwick – Night Life
3. Cecil Parker – What It Is (Arni Kristjansson Re-edit)
4. Chic – Soup For One
5. Yamashita Tatsuro – Bomber
6. Locksmith – TMI
7. First Love – Party Lights
8. High Fashion – Feelin’ Lucky Lately
9. Dayton – Meet The Man
10. Blue Magic – Clean Up Your Act (Arni Kristjansson Re-edit)
11. Skipworth & Turner – Street Parade
12. Network – Cover Girl
13. Con Funk Shun – If You’re In Need of Love (Arni Kristjansson
instrumental edit)

DansiDans þakkar Sigga kærlega fyrir artworkið fyrir þetta hlaðvarp.