Monthly Archives: maí 2010

Party Zone leitar af garðveisluplötusnúð ársins 2010

Dansþáttur þjóðarinnar stendur nú fyrir keppni þar sem sigurvegarinn verður krýndur garðveisluplötusnúður ársins 2010. Til að taka þátt í keppninni þarf einfaldlega að senda þeim mix fyrir 10 júni ,dómnefnd mun síðan gefa settunum einkunn. Dj settið þarf að hafa nafn og er frumleg nafngift eitthvað sem hjálpar.

Skv. Party Zone hefur stór hluti af landsliði plötusnúða tilkynnt þáttöku sína og má meðal annars nefna Jónfrí, Andrés og Alfons X. Fyrsti settið er komið í hús og það er plötusnúður Útursnúður sem á bakvið það. Mixið hans er hægt nálgast hér og fleirri upplýsingar um keppnina hér.

Föstudagsflagari: Octave One – Blackwater

Föstudagsflagarinn að þessu sinni er frá árinu 2000. Tíu ára gömul “framtíðarklassík” sem er ágætt orð en mér þykir það frekar hallærislegt að tala um klassík þegar lag er ekki eldra en þetta. Dramatísk byrjun, bongo trommur, grípandi og seyðandi söngur einkennir “Blackwater” með Octave One. Lagið kom upprunalega út án söngs og strengja og sló í gegn á Winter Music Conference þetta sama ár. Fór það strax í spilun hjá fullt af súperstjörnuplötusnúðum á borð við Kenny Dope og Roger Sanchez og var að finna á óteljandi mixdiskum.

jútúb útgáfan sem ég læt hér flakka er ekki sú upprunalega heldur strengja/vokal útgáfan sem kom í kjölfarið vegna vinsældanna. Mér þykir hún einfaldega betri, þó báðar séu þær góðar.

Ef einhver hefur áhuga á að smella sér á eitt vínyl eintak fyrir aðeins 24.99€ getur viðkomandi kíkt hingað.

Ingvi Jónasson – Souldog

Dansidans Hlaðvarp#11 – Árni Vector

DansiDans Hlaðvarp#11 – Árni Vector

Árni Valur eða bara Árni Vector hefur um árabil fengist við techno tónlist í ýmsum myndum. Hann hefur samið og gefið út tónlist undir nöfnum á borð við Vector og Den Hard Nusher og spilað á flestum klúbbakvöldum og skemmtistöðum sem að tekur að nefna.

Árni Vector setti saman 11. hlutann í hlaðvarpi DansiDans, tæp klukkustund af techno tónlist í sinni fínustu mynd, njótið vel.

Þú getur náð í syrpuna hér og gerst áskrifandi að hlaðvarpinu okkar hér.

1. Hvernig er syrpan sett saman? Einhverjar pælingar eða þema?
Flest lögin eru frá því tímabili sem að ég var að byrja dja og stíllinn á því svipaður (mid-late 90´s)… að undanskyldu Miss Kittin laginu sem að er þarna fyrir stelpurnar og Squarepusher sem að er óskalag fyrir vin minn sem var að trúlofa sig um daginn…

2. Hvað ertu annars að bralla þessa dagana?

Hef verið mest að spila á Weirdcore kvöldunum síðustu 2 árin fyrir utan svona einstaka kvöld af og til og er búinn svona hægt og sígandi að koma plötusafninu mínu á stafrænt form eftir að hafa skipt yfir í Serato fyrir rúmlega ári síðan….  stefni á að vera mun actívari á komandi misserum heldur en að ég hef verið síðustu ár þannig að um að gera að fylgjast með ..

3. Hvernig finnst þér “senan” á Íslandi?

Hún er frekar óstöðug en góð á köflum, koma sterkir tímar en svo inn á milli steindauðir… eigum mjög gott safn af færum plötusnúðum og tónlistarmönnum en það er leiðinlegt hvað það er erfitt að finna langtímaheimili fyrir góðan klúbb hér heima…

4. Hvað fílarðu?

Það er orðinn frekar breiður skali sem fer stækkandi með árunum, hef að vísu lengst af verið kenndur við techno í harðari og hraðari kantinum. En aðrar stefnur sem að ber kannski helst að nefna eru IDM, Ghettotech og svo hef ég alltaf verið veikur fyrir 80′s…

5. Linkar / Plögg / Lokaorð?

Fyrir þá sem að vilja heyra meira þá er linkur inn á Mediafire hér.

Smá plögg svo í lokin .. hvet alla til að mæta á þessi kvöld

Extreme Chill

Weirdcore

lagalisti:
1. Gísli Rúnar sem sjónvarpsdúkkan Palli af plötunni Alger Sveppur – Í Draumalandi
2. Mike Dunn – Magic Feet (Edge Of Motion remix) (Djax-Up-Beats)
3. JB3 (Joey Beltram) – Believer (Novamute)
4. Pacou – Replicant 02 (Djax-Up-Beats)
5. Claude Young – Dark 1 (Djax-Up-Beats)
6. Woody Mcbride – Rattlesnake (Magnetic North)
7. Mike Dearborn – Birds On E (Djax-Up-Beats)
8. Planetary Assault Systems – In From The Night (Peacefrog Records)
9. Steve Stoll – Observer (Original Brooklyn Mix) (NovaMute)
10. Miss Kittin – Requiem for a Hit (Dance Factory )
11. System 7 – Alpha Wave (Plastikman acid house mix) (Butterfly Records)
12. Squarepusher – The Barn (303 Kebab Mix) (Warp)
13. Gísli Rúnar – Snúið Sveppnum við

DansiDans þakkar Sigga kærlega fyrir artworkið fyrir þetta hlaðvarp.

Fyrir plötusnúðinn sem á allt

Myndi nú tæplegast ganga með svona sjálfur, en þetta er kannski sumum að skapi. DJ Skartgripir, verð frá 300$ og upp úr.

Topp tíu – maí

Magnús Felix
1. Prosumer & Murat Tepeli – Believe (Ostgut Ton)
2. Robert Hood – Funky Souls (Rush Hour)
3. Leópold Kristjánsson II – Faux Pas (dub)
4. Hundred in the hands – Dressed in Dresden (Kyle Hall remix) (Warp)
5. Wax – Wax 3003 (Wax)
6. Anton Zap – Captain Rush (Underground Quality)
7. Radio Slave – N.I.N.A (Rekids)
8. Birgiss – Horizon (dub)
9. The Mole – Secret mommy (New Kanada)
10. Ame – Fiori (Dixon edit) (Innervisions Jewel)

Kalli
1. Girl Unit – IRL (Night Slugs)
2. Deadboy – If You Want Me (Numbers)
3. Ikonika – Idiot (Hyperdub)
4. Gremino – As Ya Head Bop (FreeP3)
5. EQD – Equalized #003 (Equalized)
6. Roska – Squark (Rinse)
7. Fracture & Neptune – The Trunk (Astrophonica)
8. Broken Haze – Block (Jus Like Music)
9. Lynx & Malibu – Bangin Arcs (Detail)
10. Joker – Tron (Kapsize)