Monthly Archives: júní 2010

DansiDans Hlaðvarp #12 – Andrés

Mynd fyrir HlaðvarpDansiDans Hlaðvarp #12 – Andrés

Andrés er einn af færustu snúðum okkar Íslendinga, þjóðkunnur reynslubolti sem hefur verið lengi að. Hann hefur í gegnum árin daðrað við ýmis konar grúv, frá house sveiflu í dansrokk og yfir í öllu lounge skotnari tóna. Undanfarið hefur hann skipað dúettinn Már&Nielsen ásamt útvarpsmanninum geðþekka Helga Má og hafa þeir kveikt í dansgólfum um víðan völl.

Í hlaðvarpssyrpu Andrésar gætir ýmissa grasa, byrjað er á draumkenndum kosmískum tónum en síðar er litið við í kraut rokki og elektró geiranum. DansiDans þakkar Andrési kærlega fyrir 12. kaflann í hlaðvarpinu okkar og vonar að lesendur hafi jafn gaman að syrpunni og við umsjónarmennirnir.

Þú getur náð í syrpuna hér og gerst áskrifandi að hlaðvarpinu okkar hér.

1. Hvernig er syrpan sett saman? Einhverjar pælingar eða þema?
Mixað í einni töku í 2x CDJ200 og Rane Rotary Empath, convertað í Apogee Digital PSX-100, tekið upp gegnum Sound Forge.

2. Hvað ertu annars að bralla þessa dagana?
Dagskráin er þétt skipuð og fer að mestu í mína daglegu vinnu og fjölskyldulíf. Svo kemur tónlistin.

Síðustu ár hef ég verið að spila mikið með Helga Má undir nafninu Már&Nielsen. Við höfum verið að halda uppi svona hæfilega kærulausu partýi. Við skemmtum okkur konunglega við það :)

Ég spila einnig undir nafninu Andrés, það eru yfirleitt lounge tengdari gig.

3. Hvernig finnst þér “senan” á Íslandi?
Það gerist margt gott en smæðin háir okkur stundum.


4. Hvað fílarðu?
Það breytist dag frá degi. Almennt séð fíla ég þó fjölbreytileika í dj settum. Finnst lögin njóta sín betur ef mixuð eru saman ólík lög, gömul og ný.

5. Linkar / Plögg / Lokaorð?
Már&Nielsen gáfu út Dansa Meira vol.5 í maí. Diskurinn er gefinn á kvöldunum okkar í sumar. Endilega látið mig vita ef ykkur vantar eintak.

Lagalisti:
1. Peak – Along for the ride
2. Oto – Bats
3. Anne Clark – True love tales
4. Severed Heads – Bayer
5. Mark Lane – Sojourn (original)
6. Guyvers Connection – La transformation
7. Neural Circus – Neural circus
8. Visible – TLC
9. Tara Cross – Small talk
10. The Fallout Club – The beat boys
11. Drinking Electricity – Breakout (long version)
12. Kroma – Sexy films (vocal)
13. Severed Heads – Dead eyes opened (long version)
14. Arpanet – Devoid of wires
15. Squadra Blanco – Night of the illuminati
16. Giampiero Boneschi – Saturns ambush
17. Lee Negin – Nothing goes right

DansiDans þakkar Sigga kærlega fyrir artworkið fyrir þetta hlaðvarp.

Jeff Mills and Montpellier Philharmonic Orchestra

Um daginn heyrði ég The Bells með Jeff Mills í dj setti. Ég hafði heyrt lagið endrum og eins áður en aldrei skynjað það eins og ég gerði í þetta sinn. Þegar ég kom heim þurfti ég að youtube- a lagið og fann þá 80 mínutna tónleika með Jeff Mills og the Montpellier Philharmonic Orchestra. Tónleikana má finna á DVD útgáfunni af Blue Potential. Þetta concept er að vísu gamalt en mér finnst þetta takast mjög vel hjá Jeff Mills. Mæli með að fólk tékki á þessu.

Lagalisti:

1 Opening
2 Imagine
3 Man from Tomorrow
4 The March
5 Time Machine
6 Eclipse
7 Entrance to Metropolis
8 Keatons Theme
9 Daylight
10 The Bells
11 Gamma Player
12 4 Art
13 Medium C
14 Amazon
15 See this Way
16 Sonic Destroyer

Topp tíu – júní

Kalli
1. James Blake – CMYK (R&S)
2. Flying Lotus – Do The Astral Plane (Warp)
3. Gremino – Shining (Car Crash Set)
4. Lenzman – Open Page feat. Riya (Metalheadz)
5. Guido – Mad Sax (Punch Drunk)
6. Moody – It’s 2 Late 4 U And Me (KDJ)
7. Blawan – Iddy (Hessle)
8. Grace Jones – Love You to Life (Digital Myztiks Remix) (Wall of Sound)
9. Roska – I Need Love (feat Anesha) (Rinse)
10. Kavsrave – Baggage Handler (Numbers)

Ingvi
1. Andy Scott – Tell Me Anything
2. Anthony Red Rose – Electric Chair
3. Norm Talley – Cosmic Waves
4. Greg Gow – Pilgrimage EP
5. Feindrehstar – Knochenbrechers Ball
6. Marcello Napoletano – The Space Voodoo
7. Tornado Wallace – Paddlin’
8. The Oliverwho Factory – Night Lights
9. Taron Trekka – Blue Random EP
10. Various Artists – Music Institute 20th Anniversary Pt. 2

Leópold
1.  Dj Koze – Rue Burnout (Pampa)
2. Caribou – Sun (Universal)
3. Wax – Wax 30003 B (Wax)
4. Affkt & Alberto Sola feat. Los Updates – Pobla (International Freakshow)
5. dOP & Catz n’ Dogz – Deaf Wagrant (Watergate)
6. Efdemin – Secrets of Shoeshine (Dial)
7. Lawrence – Treacle Mine (Dial)
8. Findling – Stay Down (Kindisch)
9. I:Cube – Bionic Ears (Versatile)
10. Christian Burkhardt – Fairy Floss (Oslo)

Föstudagsflagarinn: Papermusic – Issue one

Föstudagsflagarinn að þessu sinni er er rosaleg hús tólf tomma frá árinu 1995. Þessir tónar koma frá Manchester borg, frá frábærum snúðum og félögum, þeim Elliot Eastwick og Miles Holloway eða öllu heldur “Papermusic”, en þeir komu einmitt við á klakkanum nokkrum sinnum og spiluðu fyrir dansglaða Íslendinga seint á síðustu öld. Strákarnir stofnuðu útgáfufyrirtækið “Paper Recordings” í kringum 1995 og var “Issue one” eitt að fyrstu útgáfunum. Tólf tomman inniheldur hið frábæra lag “Downtime” og alls ekki síðra lag “The Bridge”, en fyrir þá sem ekki muna er hið síðarnefnda lag að finna á íslenska mixdiskinum “Partyzone 96″.

Að mínu mati hljómar Downtime eins frábærlega í dag og þegar ég heyrði það í fyrsta skipti á safnplötunni Splinter. Þetta er algjör klassík.

Funky breikið (min 2:23) er svakalegt.

Ingvi Jónasson

Klúbbabókmenntir

Augljóslega hafa plötusnúðar, danstónlist og klúbbamenning spilað stórt hlutverk í daglegur lífi ungmenna síðustu 20 ár eða svo og gerir enn. Þessi viðfangsefni hafa orðið uppsprettan af fjöldann allan af bókum og í þessari færslu ætla ég að fjalla um nokkrar.

Altered State: The story of ectstasy culture and acid house eftir Matthew Collin og John Godfrey
Eins og titillinn bendir til fjallar þessi bók um eiturlyf, danstónlist og klúbbamenningu. Í bókinni er farið yfir hvernig MDMA þróaðist frá því að vera lyf notaða af sálfræðingum yfir í hið vinsæla rave eiturlyf betur þekkt sem ecstacy. Spennandi að lesa hvernig lyfið var notað fyrst. Skv. bókinni hefði maður fengið handskrifaðar leiðarvísir sem ætti að koma manni í gegnum reynslunna hafði maður keypt eiturlyfið 1970.

Seinni hluti bókarinn er síðan um rave-menninguna í Englandi og hvernig þeir sem stóðu á bakvið rave-inn fóru að því að klekkja á yfirvöldum. Mæli sérstaklega með fyrri hluta bókarinnar, en seinni hlutinn fannst mér verða svolítið langdrægur. Bókin er þó í heildina skemmtileg lesning fyrir alla þá sem hafa brennandi áhuga á danstónlist.

Lost and Sound: Berlin, Techno und der Easyjetset eftir Tobias Rapp
Þar sem Berlín hefur verið eins konar Mekka danstónlistaraðdáendans datt auðvitað einhverjum í huga að skrifa bók um það. Tobias Rapp hefur lengi  fylgst með senunni í Berlín og fer yfir þróunina á henni síðan á tíunda áratugnum. Gaman að heyra lesa sögur af gamla Tresor, hugmyndafræðina og söguna bakvið hin alræmda Bar25 og viðtöl við nokkra lykilmenn senunnar t.d. Dixon og Efdemin.

Skemmtilegasti hluti bókarinnar þykir mér þó vera kaflinn um Berghain eða meira um röðinna fyrir utan Berghain. Ég hef staðið í þessari röð nokkrum sinnum og gaman að sjá hvernig höfundurinn er að hugsa nákvæmlega það sama og maður sjálfur. Innervisions hafa svo fengið bókina þýdda yfir á ensku og er hún fáanlega hér.

How to Dj (properly): The art and Science of playing records eftir Bill Brewster og Frank Broughton
Þessi bók er meira svona coffee table bók heldur en hinar. Í bókinni fara þeir Bill Brewster og Frank Broughton(sem eru líka höfundar Last night a dj saved my life)  yfir öll helstu atriði plötumennskunnar eins og að beatmixa, opna nýjar plötur og meika það sem kvennkynsplötusnúður. Ýmiss skemmtileg og hagnýt ráð má finna í bókinni og misgáfuleg quote eftir fræga plötusnúða eins og “Silence is as important as sound”, ég leyfi lesendum að giska eftir hvern þetta quote er.