DansiDans.com – Raf- og danstónlist á Íslandi

Entries tagged as ‘2009’

Árslistinn 2009 (Leópold Kristjánsson)

janúar 29, 2010 · 1 ummæli

Singlar:::::::

DJ Koze

1. Dj Koze – Mrs. Bojangles (Circus Company)

Eins og það er til mikið af góðri músík þá kemur hún mér ekkert alltaf á óvart. Það gerist þó einstaka sinnum. Þetta lag er frábær blanda frumleika og gamalla gilda.

2. Sometime – Optimal Ending (Leópold Kristjánsson & Steinunn remix) (Itsuka)

Í opinberri listasmíð – eins og þessari – er það orðin staðalaðgerð að ota sínum tota örlítið. Árið 2009 var fínt tónlistarár fyrir mig. Með vorinu kom út mín fyrsta plata og línurnar voru að vissu leyti lagðar fyrir árið í ár. Af því sem ég tók þátt í árið 2009 er ég hvað ánægðastur með útkomuna og viðbrögðin við þessu lagi.

3. Precious System – The Voice from Planet Love (Running Back)

Óvæntur slagari sem hitti beint í mark hjá mér sem og mörgum öðrum. The Voice from Planet Love var spilað á öðru hverju diskóteki sem ég heimsótti sumarið 2009 og rataði í töskur óvæntustu snúða.

4. Die Vögel – Petardo (Pampa)

Þetta lag kórónaði svolítið flottann frá “Minimal” hljómnum þetta árið. Flautu og bongotrommu carnival.

5. Audion – Look at the moon (Spectral Audio)

Ég er mjög veikur fyrir Audion og þetta er líklega hans besta árið 2009. Leggur kannski engar nýjar línur en stórgott samt.

6. Moodyman – Freeki Mutha F cker (KDJ)

Detroit var tískuborgin 2009. Verst að danstónlist skuli ekki taka upp stærri hluta af GDP-inu hjá þeim.

7. 2562 – Who are you fooling (Tectonic)

Tekið af bestu Dubstep plötu ársins að mínu mati. Hrátt og drungalegt.

8. Burial & Four Tet – Moth (Text Records)

Meiriháttar samstarfsverkefni Burial og Four Tet. Alltaf gaman þegar tveimur listamönnum með sterk höfundareinkenni tekst að blanda þeim saman í einu verki.

9. Fever Ray – Seven (Marcel Dettman remix) (Rabid Records)

Mörg góð remix gerð af þessu lagi. Mætti þar nefna Martyn mixið og fleiri. Berghain boltinn hafði þó vinninginn að mínu mati.

10. Shed – The Lower Upside Down (Surgeon remix) (Ostgut Ton)

Önnur Berghain tenging. Grjóthart en engu að síður melódískt. Mjög sterkt ár hjá Surgeon.

11. Leopold Kristjansson – Bring Me Champagne When I’m Thirsty (Deepeel)
12. Brigitte Fontaine & Khan – Fine Mouche (I’m Single)
13. Stimming – Una Pena feat. Paulo Olarte (Solomun Vocal mix) (Diynamic records)
14. Who Made Who – Keep me in my plane (Dj Koze remix) (Gomma)
15. Theodor Zox – Tell Me (Ransom Note)
16. Margaret Dygas – Frankly (Perlon)
17. Boola & Demos – Thirst Duub (LoMidHigh)
18. Maayan Nidam – Tengo (Pover Shovel)
19. Marieu – Roots (Restoration)
20. Tiefschwarz – Best Inn (Souvenir)

21. Frank Leicher – Lazy Weather (Christian Burkhardt remix) (Einmaleins)
22. dOP – Cold World (Watergate recordings)
23. Ben Klock – Godly Sin (Robert Hood remix) (Ostgut Ton)
24. LCD Soundsystem – 45:33 (Prince Language remix) (DFA)
25. Marcel Knopf – Rec-Chord (Mo’s Ferry)
26. Cesar Merveille & Pablo Cahn-Speyer – Tribute (Cadenza)
27. GusGus – Thin Ice (Wareika remix) (Kompakt)
28. Dirty Deal – Ahhh (Gluteus Maximus remix) (Spin Out records)
29. Danny Fiddo & Affkt – Points (Ricardo Villalobos remix) (Barraca)
30. Martyn – For Lost Relatives (3024)

31. SoulPhiction – Who to Call (Philpot)
32. Ryo Murakami – Swing (Morris Audio)
33. Till von Sein – Ovas (Catz n’ Dogz Ohne Fx remix) (Dirt Crew)
34. Sendai – System Policy (Peter van Hoesen remix) (Time to Express)
35. Masomenos – G-3rd Eye (Masomenos)
36. Bruce Springsteen – State Trooper (Trentemoller remix)
37. Wareika – Kings Child (Villalobos remix) (Motiv Bank)
38. The Barking Dogs vs. Club Silencio – The Guitar Man (Barking Dogs)
39. Rene Breitbarth – Swing (Deep Data)
40. GusGus – Take me baby (Kompakt)

Plötur:::::::

1. 2562 – Unbalance (Tectonic)
2. Hildur Guðnadóttir – Without Sinking (Touch)
3. Micachu and the Shapes – Jewellery (Rough Trade)
4. Varios Artists – Snuggle and Slap (Circus Company)
5. The Field – Yesterday and Today (Kompakt)
6. Martyn – Great Lenghts (3024)
7. Maayan Nidam – Nightlong (Pover Shovel Audio)
8. GusGus – 24/7 (Kompakt)
9. Bloody Mary – Black Pearl (Contexterrior)
10. Fabric Live 44 – Commix (Fabric)

Flokkar: listar
Tagged: , ,

Árslisti 2009 – Karl Tryggvason

janúar 27, 2010 · 3 Ummæli

Árslistahelgi framundan þar sem bæði PZ og Breakbeat.is gera upp árið 2009 með tilheyrandi húllumhæi. Það er því ekki seinna vænna að smella sínum lista hér inn ásamt nokkrum orðum um efstu lögin. Væri gaman  að sjá fleiri árslista í athugasemdum.

lög /smáskífur:
1. Joy Orbison – Hyph Mngo (Hotflush)
Ástæða þess að “Hyph Mngo” ratar í fyrsta sæti hjá mér er auðvitað fyrst og fremst að það er frábært lag, en þar að auki passar það skemmtilega við tíðarandann sem ríkti árið 2009. Lagið passaði ekki í niðurnjörvaða flokkadrætti danssenunnar, crossaði algerlega yfir senuna og var spilað af ólíklegustu kandídötum um allan heim, allt frá Gilles Peterson til Sasha. Fyrir rúmu ári vissi varla neinn hver Joy Orbison væri, en eftir að hafa endað í settum hjá mönnum eins og Ben UFO og Skipple breyddist hróður hans fljótt út enda um stórkostlegar tónsmíðar að ræða.

2. Instra:mental – Watching You (Nonplus)
Instra:mental höfðu skapað sér nafn með minimalískum og flottum tónsmíðum en sýndu á sér svotil nýja hlið á árinu. Í “watching you” eru tregablandnir vókalarnir settir í gegnum effecta sem gera þá svo til kynlausa, þegar þetta rúllar svo ofan á electroskotnum synthunum og lágstemmdum en ákveðnum taktinum verður til einhvers konar framtíðar rnb grúvari, sexý og töff!

3. Darkstar – Aidy’s Girl’s a Computer (Hyperdub)
Darkstar leituðu líka á ný mið með “Aidy’s Girl…”, tölvustúlkan þenur hér vélræna en sálafulla rödd sína yfir blöndu af einföldum ásláttarhljóðfærum og hljóðgerflum fyrri ára. Retro-skotinn fútúrismi sem minnir mig alltaf á Hal úr 2001, gæsahúð í hvert einasta skipti sem skífa þessi ratar á fón.

4. Untold – Anaconda (Hessle Audio)
Untold átti stórgott ár og orsakaði eflaust mörg wtf moment á dansgólfum heimsins. Í lögum hans úir og grúir af tilvitnunum í hljóðheima ólíklegustu danstónlistar, grime áhrifum er blandað saman við hardcore melódíur, house er tengt við dubstep og þar fram eftir götunum. “Anaconda” byggir á svoleiðis grúvi, skrítið en grípandi.

5.
Animal Collective – Brother Sport (Domino)
Einhver hæpaðasta indieskífa seinni tíma, sem stóð þó fyllilega undir lofinu. Hljómar eins og Beach Boys að gera techno, dáleiðandi og flott.

6. Pepe Bradock – Path of most Resistance (Atavisme)
Deep house æðið tröllreið öllu á árinu 2009, minimal töffararnir höfðu endanlega skipt út minimalískum bleepum fyrir hljómborðshljóma, rafrænum klikkum og kött-um fyrir lífrænar” kongó og bongó trommur og niðurtjúnaðum vókölum um eiturlyf fyrir gospel-gaspri um ágæti hús tónlistar. En þeir sem ekki voru að elta neina tískubylgjur smíðuðu þó besta djúpa húsið af þeim öllum. Pepe Bradock bauð upp á hrátt og grípandi sánd og almennilegu melódíu í stað ofurpússaðrar og kurteisislegra laptop hljóma.

7. dBridge – Wonder Where (Nonplus)
dBridge pússlaði saman andstæðum, hörðum bassalínum og mjúkum vókölum og skapaði hugljúft dnb lag, hver hefði trúað því?

8. Wax – 20002A (Wax)
Einfalt og dáleiðandi techno frá hinum dularfulla Wax, leitað er í smiðju meistara tíunda áratugar síðustu aldar og útkoman er æðisgengið handstimplað white-label techno grúv.

9.
Bop – Song about my dog (Med School)
Bop er nýliði ársins í drum & bass heiminum að mínu mati, lagið hans um hundinn sinn Boyaka er hugljúft, fallegt og nýstárlegt sánd.

10.
Joker – Digidesign (Hyperdub)
Joker átti mjög gott ár eftir að hafa ruðst fram á sjónarsviðið árið 2008. “Digidesign” var sennilega hans stærsta lag og tengdi saman dubstep og suðurríkja hip hop með öflugum hætti.

11. Instra:Mental – Photograph (Darkestral)
12. Ramadanman – Revenue (Untold Remix) (2nd Drop)
13. Guido – Orchestral Lab (Punch Drunk)
14. Tony Lionni – Found a Place (Ostgut Ton)
15. Zomby – Godzilla (Ramp)
16. Tim Exile – Family Galaxy (Warp / Planet Mu)
17. Efdemin – Acid Bells (Martyn’s Bittersweet Mix) (Curle)
18. James Blake – Air and Lack There Of  (Hemlock)
19. Cooly G – Narst (Hyperdub)
20. Dan Habernam – Zoom Back Camera (Santorin)

21. Dorian Concept – Trilingual Dance Sexperience (Affine Records)
22. Fever Ray – Seven (Martyn’s Seventh Remix) (Rabid)
23. Hudson Mohawke – Zoo00OOm (Warp)
24. Escher – Austere (Future Thinkin’ Records)
25. Starkey – Gutter Music VIP (Keysound)
26. Spectrasoul feat. Mike Knight – Melodies (Exit)
27. Data – Causeway (Influence)
28. Rustie – Bad Science (Wireblock / Lucky Me)
29. Levon Vincent – Late Night Jam (Ostgut Ton)
30. Reactiv – Badlands (Break Fast Audio)

Breiðskífur:
1. Animal Collective – Merriweather Post Pavilion (Domino)
2. Mount Kimbie -  Maybes / Sketch on Glass EP’s (Hotflush)
3. Alix Perez – 1984 (Shogun Audio)
4. Harmonic 313 – When Machines Exceed Human Intelligence (Warp)
5. Bop -  Clear Your Mind (Med School)
6. Silkie – City Limits Volume 1 (Deep Medi)
7. Yagya – Rigning (Sending Orbs)
8. Martyn – Great Lengths (3024)
9. Peverelist – Jarvik Mindstate (Punch Drunk)
10. Hudson Mohawke – Butter / Polyfolk Dance EP (Warp)

safnskífur / endurútgáfur:

1.  Various – 5 Years of Hyperdub  (Hyperdub)
2. Commix – FabricLive 44: (Fabric)
3. Various / Pepe Bradock – Confiote de Bits  A Remix Collection (BBE)
4. Various – Snuggle & Slap (Circus Company)
5. Terror Danjah – Gremlinz (The Instrumentals 2003-2009) (Planet Mu)
6. Various / DJ Koze – Reincarnations (Get Physical)
7. John Tejada – Fabric 44 (Fabric)
8. Omar S – Fabric 45: Omar S (Fabric)
9. Various – Tectonic Plates 2 (Tectonic)
10. Various – 15 Years of Metalheadz (Metalheadz)

-Karl Tryggvason

Flokkar: Topp 10 · listar
Tagged: , , , ,

Ársuppgjör 2009

desember 14, 2009 · 3 Ummæli

Það er komin árslistatíð (og þar að auki áratugalistatíð…). Hér eru linkar á uppgjör nokkura vefmiðla í danstónlistargeiranum:

Resident Advisor
dubstepforum tilnefningar
Fact Magazine
Boomkat

Einhvern vegin er það svo hefðin á íslandi að gera tónlistarárið upp á nýja árinu (amk í dansgeiranum). Árslisti Breakbeat.is verður á sínum stað í janúar (og býst við því að sama sé upp á teningnum hjá PZ og fleirum). Hins vegar ekki seinna vænna að fara að pæla í þessu.  Hvað stóð upp úr hjá ykkur? Listamenn ársins? Breiðskífur ársins? Lög / smáskífur ársins? Tjútt ársins? Endilega segið frá í athugasemdunum.

Flokkar: linkar · listar · mp3
Tagged: , , , ,