The Mountain People
Mountain 006
MOUNTAIN 006
Mountain People
Deep House / Minimal
3/5
Félagarnir Serafín og Rozzo sem báðir eru þungavigtarmenn í housinu mynda duoið Mountain People. Í fyrra gáfu þeir út tvær 12″ undir þessu nafni, báðar þessar 12″ rötuðu á topplistana hjá plötusnúðum víðsvegar um heiminn, meðal annars hjá hinum þýsku Ame og tecno konunginum Ricardo Villalobos.
Á Mountain 006 er að finna tvö lög sem heita þeim frumlegu nöfnum Mountain 006.1 og Mountain 006.2(ef platan er keypt á beatport er einnig að finna auka lag). Bæði lögin minna mikið á fyrri lög dúosins, mikið percussion og mikill tech house fílingur. Þó að lögin séu bæði mjög groovy, þá eru þau keimlík og frekar . Hér legg ég þó áherslu á groovy, þá sérstaklega Mountain 006.2.
Ég efast ekki um að bæði lögin verði spiluð í gríð og erg næsta mánuðinn, enda vel produceruð lög og Mountain People orðnir vel þekktir í bransanum . Eftirminnilega verða þau þó örugglega ekki þar sem þau eru of lík flestu öðru sem er að gera í deep housinu í dag.
Tóndæmi:
The Mountain People – Mountain 006.1
The Mountain People – Mountain 006.2
Ég er sammála þessu. Ekkert nýtt undir sólinni en spikfeitt sánd samt sem áður. Spái því að ég muni spila þetta mikið næstu mánuði – sjáum svo hvað setur.
Heyrði viðtal við Rozzo/Peter Dildo sem tekið var fyrir um ári og þar vill hann meina að hann sé að selja um 10-20 % af því sem hann var að gera á tíunda áratugnum (af vínyl, það er). Hinsvegar sé senan miklu stærri og giggin betur borguð. Hann hefur (næstum) alltaf verið með 9-to-5.
Gerir hlutina „listarinnar vegna“ ef hlutunum er þannig háttað, vildi hann meina.
L.