Jútjúb Miksteip #2 – Lögin sem fóru algjörlega framhjá mér

Í þessu jútjúb miksteipi eru lög sem voru mikið spiluð þetta árið en ég einhvern veginn lærði ekki að meta þau fyrr en núna bara upp á síðkastið.

1. Audion – Billy says go
Jónfrí benti mér á þetta lag á sínum tíma og ég fílaði það ekki neitt. Heyrði Ellen Allien spila það á Melt Festival og fílaði það ekki heldur, Það var ekki fyrr en í október þegar ég var að stússast á beatport að ég rakst á það og lærði að meta það. Groove-ið í þessu lagi er geðveikt og ekki skemmir þetta sérstaka „Audion bassatromma“ fyrir. Eitt af lögum ársins að mínu mati.


2.DJ Koze – I want to sleep
Þetta lag var á listum frábærra plötusnúða eins og t.d. Sebo K. Ég hlustaði á þetta lag og skildi ekki hvað þessir plötusnúðar sáu við það. Síðan las ég viðtal við Koze og ákvað þess vegna að skoða myspacið hans. Það varð til þess að ég uppgötvaði þetta lag. Á myspacinu hans er einnig að finna remixið hans af Matthew Dear laginu Elementary lover sem er geðveikt.


3.Ricardo Villalobos – Enfants
Lagið sem gerði allt vitlaust í byrjun árs. Lagið er 17 mínutur og stærsti hluti þess er chílenskur barnakór að syngja. Keypti eintak í Berlín en gaf það þar sem ég sá ekki fram á að eiga eftir að spila það. Rakst á það í mixi um daginn og sé núna mikið eftir að hafa gefið plötuna.


4.Noze – Remember Love
Noze gerðu allt vitlaust á sínum tíma voru meðal annar með besta ,,actið“ á Íbiza að margra mati. Platan þeirra On the rocks var kom út í ár á ofurlabelinu Get Physical. Heyrði RA podcastið þeirra í sumar og var ekkert vitlaus í það. Svo um daginn var ég að sýna einhverjum hvað house gæti verið fínt live acti og það varð til þess að ég hlustaði á þetta mix aftur og keypti diskinn. Diskurinn er mjög góður, sérstaklega lagið Remember Love.

5.SiS – Trompeta
Ógeðslega cheesy loopa endurtekinn yfir rosalega miklu percussioni. Margi hafa líkt Trompeta við Heater sem gerði allt vitlaust í fyrra. Í fyrstu fannst mér þetta of cheesy og týpiskt. En svo komst ég að því að þetta lag er geðveikt ef rétt er farið með það í mixi.

add to del.icio.us : Add to Blinkslist : add to furl : Digg it : add to ma.gnolia : Stumble It! : add to simpy : seed the vine : : : TailRank : post to facebook

6 athugasemdir við “Jútjúb Miksteip #2 – Lögin sem fóru algjörlega framhjá mér

  1. fáein orð:
    1. Billy Says Go er klikkað en það tók mig líka tíma að ná því einhvern vegin, laglínan getur hins vegar verið ógeð í lélegu kerfi, háu tíðnirnar rífa úr manni hljóðhimnuna.

    2. Koze er töff en samt ofmetinn…

    3. Enfants er skemmtilegt og gaman að leika sér með það, videoið þarna er líka hillaríus!

    4. noze lagið hefur glatt flesta sem ég hef spilað það fyrir, skil ekki að það hafi ekki „crossað yfir“ meira

    5. ég skal selja þér mitt eintak af trompeta, þetta lag er algert gimmick.

  2. Öll þessi lög eru góð. Ég á Trompeta og það væri alls ekki vitlaust af greinahöfundi að kaupa umrætt eintak.

  3. trompetta með sis og samplið sem hann notar:

    http://www.getthecurse.com/2008/09/17/transmission-3-sis-vs-balkan-beat-box/

    skrollið niður fyrir enska útgáfu og tóndæmi.

  4. þessi lög eru eitthvað svo…. minimalísk….

  5. tja… get nú ekki verið sammála því að þau séu mjög minimalísk. Ekki nema kannski Dj Koze lagið.

  6. Er Enfants ekki minimalískt?

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s