Þessa vikuna hjá Resident Advisor sér Rene Breitbarth um podcastið þeirra. Mixið hans er troðfullt af lögum frá hetjum ársins 2008 eins og Guillaume & The Coutu Dumonts og MyMy. Meiri upplýsingar um kauða, mixið og tracklista má finna hér
Í vikunni rakst ég síðan á afterhour mix frá Rozzo úr Mountain People. Þetta mix sem er tekið upp á Slutfunk sem ég veit ekki alveg hvað er ,groovar svakalega og pumpar um leið. Ég hef ekki fundið lagalista þannig ef einhver þekkir þessi lög endilega látið mig vita, mikið af stöffi í þessu mixi sem ég myndi vilja eignast.
Greg Wilson, sem er sennilega einn fyrsti „alvöru“ plötusnúður breta, var svo með Essential Mix um helgina, löngu komin tími á það. Greg þessi á merka sögu að baki og hann segir skemmtilega frá henni á vefsíðunni sinni, forvitnilegar greinar og frásagnir fyrir þá sem hafa áhuga á fyrstu árum raf- og danstónlistar. Mixið er í boogie funk edit fíling, mér finnst fyrri helmingurinn sérstaklega skemmtilegur. MP3 og lagalisti hér.
http://tinyurl.com/rozzomountain
þarna eru einhverjar tracklisting tilraunir:
04.00 slutbox – nitrogen 2 oxygen 1
08:00 Ambivalent – Indecision
15:00 Rino Cerrone – Burnt It
18:30 Ulysse – Sometimes
42:00 Scott Ferguson – I cried for you (Walk in the Park Remix)
45:00 Chaton – Catch the beat (Agnes Remix)
50.00 50:00 = Solid Gold Playaz – Shhh…(Quiet)
53:00 Marcel Wave – 27 Holton (Serafin’s Back To New York Re-interpretation)
Geðveikt
Þetta Greg Wilson mix er það besta sem ég hef heyrt lengi!
já það er hressandi, fyrrihlutin sérstaklega, finnst þetta soldið stefnulaust eftir það. Hann var með fínasta Resident Advisor podcast í fyrra, má eflaust gúgla það. Svo mæli ég með Credit to the Edit plötunni og vefsíðan er einnig mjög góð lesning.