Djammrýni – Breakbeat.is:Fastakvöld @ Jacobsen 05.03.09

Það fór misjafnlega í fólk að Breakbeat.is hafi flutt sig yfir á Jacobsen. Margir vildu meina að staðurinn væri of stór til þess að almennileg stemning gæti myndast á þessum kvöldum, á meðan aðrir sögðu að staðurinn væri kjörinn fyrir kvöldin, þar sem hann hefur gott kerfi og stórt dansgólf.

Ég mætti um ellefuleytið á Jacobsen og þá var enginn á dansgólfinu, en staðurinn nokkuð þétt setinn. Tmus var búinn að spila og Anton var á bakvið spilarana. Anton spilaði DnB til að byrja en með smá svona dubstep keim inná milli.

n23470171266_1645225_1057017

Smám saman fór umferðin á dansgólfinu að aukast og þegar Ewok tók við  um tólf-leytið var gólfið orðið fullt. Ewok spilaði 50/50 dubstep/DnB sem fólk virtist taka vel í. Eins og í öll  dubstep sett a vegum Breakbeat.is innihélt settið hans: Spongebob, Night og Anti War dub, spurning hvenær verður hægt að sleppa þessum lögum? En settið var þrátt fyrir það mjög skemmtilegt og Gunni sannfærði mig enn einu sinni að hann er einn af mínum uppáhalds snúðum.

Klukkan 1 var stemningin svo góð að eigendur Jacobsen leyfðu partýinu að rúlla. Veit ekki endilega hvort að þetta hafi verið jákvætt fyrir mig þar sem þetta þýddi að ég gat haldið áfram að drekka sem jók líkurnar á því að hrokaMagnús myndi mæta, en partýið hélt engu að  síður áfram til klukkan að verða 2.

Gaman var að sjá hve mikið crowdið hefur breyst, mikið af ungum krökkum (en ekki  of ungum) steppuðu dub og er líkegt að ákveðinn kynslóðaskipti séu  að eiga sér stað í danstónlistarsenunni á Íslandi, sem er nátturulega frábært.

Jacobsen staðurinn er frábær, einfaldlega lang mest töff staðurinn í Reykjavík í dag. Vonandi nær hann að festa sér sess í íslensku skemmtanalífi. Þessi hornrúms pæling á neðri hæðinni massívt sniðug.

Á  heildina litið var þetta frábært kvöld og gott að sjá að breakbeatmenn eru back in the game, ég vona að komandi kvöld verði jafn góð og þessi.

Magnús Felix //magnusfelix@gmail.com

11 athugasemdir við “Djammrýni – Breakbeat.is:Fastakvöld @ Jacobsen 05.03.09

  1. Fín djammrýni Maggi mús

  2. hmm ég get svo svarið það að fyrstu 30 min af mínu setti hafi verið tileinkaðar dnb með það í huga að splitta sirka 50/50 dubstep og dnb. en þar sem ég fékk að spila töluvert lengur en ég bjóst við varð dubsteppið ansi ráðandi og endaði í slagaragír á köflum þar sem ég bjóst við að ég væri að setja loka lag á hvejru sinni.

    Uh hvar heyrðiru samt night? Ég var allavega ekki með plötuna né cdinn 😀

    En er alveg sammála með að sum lög séu orðin þreyttari en önnur þó góð séu.

    Annars flott skrif og keep on keepin on.

  3. Var kannski E-trips en ekki Night sem ég heyrði. Það er samt líka ofspilað.
    Gæti hafa misst af fyrstu 30 min þar sem ég var í þessum mega cosý pælingum þarna niðri.

  4. wot u saying bout my tune, bruv?

    nuff said

    haters

  5. Geðveik djammrýni…

    hvaða halastjörnur eru þetta á superman linknum, fuck sko…

  6. Enginn föstudagsflagari 😮

  7. Nei Jónfrí er sloj

  8. HAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAAHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHA þetta Benga comment er fyndnast í heimi ..þessi mynd sko hahahahaha

    En já ..leiðinlegt að hafa misst af þessu 😦

  9. Fleiri hittara Gunni Ewok!

  10. var þarna til lokunar. Afar þunnur föstudagur sem fylgdi í kjölfarið. Skemmtileg stemning sem myndaðist

  11. Ég hef ekki hlegið svona mikið lengi eins og þegar ég sá þessa kakóbræður sem hlekkurinn hér fyrir ofan vísaði á. Greyið strákarnir… En góð gagnrýni og skemmtileg síða. Big up!!

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s