Þegar ég var að byrja að hlusta á danstónlist, hlustaði ég mikið á þátt hjá Party Zone þar sem þeir völdu Topp 40 all time bestu danslögin. Þátturinn var augljóslega fullur af slögurum eins og „Gypsie Woman“, „Planet K“, „Good Life“ og svo mætti lengi telja.
Uppáhaldslagið mitt á listanum var þó alltaf „Music sounds better with you“ með Stardust. Lagið var algjör hittari um aldamótin, byrjaði á því að heilla klúbbaheiminn á Ibiza en sló síðar í gegn og var spilað í gríð og erg á MTV og popp útvarpsstöðum heimsins. Annar helmingur Stardust var Thomas Bangalter sem er betur þekktur fyrir að vera í Daft Punk og má einginlega að segja að hann hafi átt stærstan hluta í að þróa svokalla franskt house.
En franskt house, í það minnsta tónlistin frá 10. áratugnum, er yfirleitt búið til úr sömplum úr soul/fönk lögum. Þú skellir á þau filter, setur bassa og kick undir og voilá kominn hittari. Um daginn fann ég þetta myndband sem sýnir hvaðan sömplin úr frægustu frönsku house slögurunum (meðal annars „Music sounds better with you“) eru tekin.
Annars verð ég að segja að mér finnst franskt hús hafa hrakað gríðalega. Ed Banger labelið virðist hafa tekið við senunni og „electroað“ hana alltof mikið upp. Síðasta ár sá ég 4 franska plötusnúða sem virtust allir eiga það sameiginlegt að þurfa að sýna hvað þeir væru klárir á sampl fídusin á Cdj-inum sínum, mér til mikils ama.
Magnús Felix | magnusfelix@gmail.com
gaman að bæta við:
http://www.pedestrian.tv/blogs/view/2389/daft-punk-the-game.htm
daft punk leikur!
http://www.najle.com/idaft/
Það er kannski rétt hjá þér með pjúra franskt hús, surgið hefur tekið öll völd og neu rave draslið virkar eins og eitur í mín eyru.
Það er samt heilmikil gróska hjá mönnum eins og Pilooski, edit labelið hans (dirty) er frábært, og Botox projectið mjög fínt
Er akkúrat að kaupa mikið af frönsku house-i núna frá gullöldinni, eins og I:Cube, Pepe Bradock og dót af Versatile. Sumt eldist betur en annað en þessir frakkar kunna svo sannarlega að búa til house!
Já það er alveg hellingur af góðu frönsku dóti til,en það er ekki alveg beint tengt þessari tökum fönk loopor og breytum þeim í house stefnu. Er aðallega ósáttu með hvernig hún virðist hafa þróast, og alið af sér ógeð eins og neu rave.
Ahh elska french house