SyrpuSyrpa #20

Mikið af skemmtilegum mixum á netinu þessa dagana. Mix eftir Yamaho birtist á Soundcloud-inu hennar í gær. Fílingurinn í mixinu er svona deep/tech og í því má finna lög eftir Holger Zilske og Lee Van Dowski.

Pjúristarnir og töffararnir hjá Little White Earbuds voru að koma með nýtt podcast, að þessu sinni er það Frakkin Le K sem sér um það. Mikið party mix,enda gert fyrir frekar fyrir fullt fólk heldur en fólk á eiturlyfjum eins og Le K segir. Mæli með að fólk lesi viðtalið við hann líka. Viðtalið og mixið má finna hér.

LaFleur

TFA sem stóðu fyrir Stephan Bodzin kvöldinu eftirminnilega fyrr á þessu, eru nú að flytja inn sænsku teknó dívuna La Fleur. Við hjá DansiDans mælum með að fólk athugi þetta mix eftir hana og tjekki líka á Jacobsen í kvöld. En þar kemur hún fram ásamt Oculus, Sexy laser og Karius & Baktus. Miðaverð er 2500 kr í hurð og 2000 krónur í forsölu, forsalan er í Spútnik.

4 athugasemdir við “SyrpuSyrpa #20

  1. Suss, það er eins gott að Friðfinnur sé að spila einhversstaðar þegar ég kem í bæinn 🙂

  2. Já Le K mixið er geðveikt

  3. Hvernig var þessi La Fleur?

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s