Alþjóðlegi Plötubúðadagurinn (og plötubúða pælingar)

Á morgun verður Alþjóðlegi Plötubúðadagurinn haldinn hátíðlegur í 4. skipti, en eins og nafnið bendir til er þessi dagur tileinkaður óháðum plötubúðum og þeirri menningu sem í kringum þær ríkir.  Hér á litla Íslandi halda verslanirnar Havarí, Bankastræti og Lucky Records, Hverfisgötu upp á þennan dag með tónlistartengdri dagskrá ýmis konar. DansiDans hvetur fólk til þess að líta við, gera sér glaðan dag og jafnvel að versla sér smá músík í fýsísku formi.


Annars er umræða um stöðu og framtíð plötubúða svo margtugginn í fjölmiðlum, spjallborðum og bloggum og maður veit ekki hversu miklu maður hefur við að bæta. Sjálfur sakna ég almennilegrar plötubúðar helgaðari raf- og danstónlist í Reykjavík en held að það sé engan veginn rekstrargrundvöllur fyrir neitt slíkt (þ.e. búð sem höfðar til plötusnúða og tekur reglulega inn nýjar sendingar af vínyl).

Held almennt að viðskipti muni færast meir og meir á netið.  Enn sér ekki fyrir endann á þeirri grisjun sem fer fram í plötubúðaflórunni, þær búðir sem munu lifa af eru stóru vöruhúsin (t.d. Juno og Chemical), sérhæfðari verslanir (t.d. Boomkat) og svo goðsagnakenndar stórborgaverslanir á borð við Hardwax, Black Market og Vinyl Junkies. Litla, vinalega plötubúðin (sem sérhæfir sig í plötusölu, en er ekki með það on the side við klippingar eða café au lait) í minni borgum mun á flestum stöðum hverfa á braut. Hins vegar verður eflaust alltaf ágætis bisness á Ebay, Discogs og í 2nd hand búðunum.

p.s. með þetta allt saman í huga er hér skemmtilegur leikur sem kom upp í spjalli um daginn, þegar maður hlýðir á plötusnúð á skemmtistað getur verið gaman að spyrja sjálfan sig „hefði þessi snúður keypt þetta lag á vínyl í Þrumunni?“.

4 athugasemdir við “Alþjóðlegi Plötubúðadagurinn (og plötubúða pælingar)

  1. Vá hvað þetta er góður filter.

    Ég stend mig oft að því að belgja út safnið mitt með dóti sem ég er svona á báðum áttum með.

    Þá er spurningin ótrúlega valid: Myndi ég borga 1200 kr. fyrir þetta lag í þrumunni?

    Ef svarið er nei, þá ætti maður að henda laginu.

  2. ég ætla að kíkja í hardwax:)

  3. Ég er brúinn að vera að kíkja á Hardwax online búðina og það er allt morandi í eðalhousi. Mæli með að fólk tékki á þessu.

  4. Jón Frímannsson

    Rush Hour + Clone + Hardwax = Gæðastjórnun > Sigur.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s