Greinasafn fyrir merki: frankie knuckles

Jútjúb Miksteip #9 Þegar remixið er vinsælla en orginal-inn

Nú fyrir skemmstu kom út smáskífa með laginu „You got the love“ í flutningi Florence + the Machine (ásamt ófáum endurhljóðblöndunum) og hefur skífan gert góða hluti um víðan völl. Eins og flestir vita er þetta lag aðeins endurflutningur af lagi sem var upprunarlega samið af Candi Staton.

Það sem er sérstakt við „You got the love“ er að remix af laginu er þekktara heldur en upprunarlega lagið. Það kemur stundum fyrir að remix verðir vinsælli en orginalarnir og geta ástæður þess verið margar, t.d. þegar remixarinn er frægari heldur en artistinn sem gerir lagið, þegar upphaflega lagið er komið til ára sinna eða þegar remixið er einfaldlega betra. Í þessu Jútjúb mixteipi verður farið yfir „You Got the love“ í ýmsum útgáfum.


The Source Feat. Candi Staton – You got the love
„You got the love“ er soul lag frá 1986. Óhætt er að  fullyrða að lagið er rosalega funky ,gott groove, syntharnir klassískir og lagið eðall. Þrátt fyrir gæði þessa lags þekkja mun fleirri acapelluna í annari útgáfu, það er í einhvers konar sambræðingi við næsta lag.



Frankie Knuckles – Your love
Eins og áður hefur komið fram á Dansidans er Frankie Knuckles talinn vera  einn af upphafsmönnum house tónlistar. „Your love“ sem er frá 1989 er líklega eitt af vinsælustu lögum kappans  og eitt af mínum uppháhalds lögum. Uppbyggingin í byrjun lagsins er stórskemmtileg og synthalínan algjör classic. En árið 1991 kom út annað lag eða bootleg sem ég held að hafi haft stór áhrif á vinsældir lagsins.



Candi Staton feat. The Source – You got the love
Þessi sambræðingur af fyrrnefndum lögum er vægast sagt algjör bomba á dansgólfinu og gerði bæði lögin ódauðleg. Ég tel að þessi útgáfa sé mun meira spiluð heldur en báðir orginalarnir sem eru notaðir. Þessi útgáfa er jafnvel svo þekkt að fólk heldur að hinar útgáfurnar séu endurhljóðblandanir en ekki öfugt. Hef heyrt sögur af hörkurifrildum milli Gunna Ewoks og hóp af stelpum um hvort lagið væri nú betra. Hvað finnst ykkur? Annars er forvitnilegt að lesa um tilurð þessa lags á Wikipedia.


Candi Staton feat. The Source – You Got the Love
Hér er svo önnur útgáfa sem líka er skrifuð á The Source,  lakara lag að mínu mati, minnir mig  þar að auki alltaf á „Clubbed To Death„… Kannski þekktast fyrir að hljóma undir lokaatriðinu í Sex and the City (DansiDans er metrósexúal og mikil aðdáandi Beðmálanna).


Florence & The Machine – You got the Love (Jamie XX remix)
Hér er þetta svo farið að verða virkilega póst-módernískt, remix af coveri af mashuppi, skemmtileg pæling! Jamie XX úr hipster hljómsveitinni vélar um endurhljóðblöndun af trendý kollega sínum Florence & The Machine. Garage bræðingur einhvers konar og vókalaleikfimi, lag sem er heldur betur að slá í gegn þessa dagana, enda frábært lag (slær seint upphaflega lagið út, eða þið vitið, remixið af upphaflega laginu sem var sett saman úr tveim öðrum lögum eða þannig…)

Jútjúb Miksteip #8 – 80’s House

Grimmt og óforskammað plögg í gangi hér, en ég er ásamt Árna Kristjáns að standa að 80s danstónlistarkvöldi undir nafninu 198X á Kaffibarnum á fimmtudaginn kemur. Þar ætlum við að spila boogie, house, electro, techno og sitt lítið fleira frá níunda áratugnum. En svo sem löngu kominn tími á smá 80s house og hér er ætlunin að tína til þekkt og góð lög sem eru þó kannski ekki á allra vitorði.

.


Frankie Knuckles & Satoshie Tomiie – Tears
Frankie Knuckles er oft kallaður guðfaðir house tónlistar en nafn stefnunnar er sagt hafa komið frá Warehouse klúbbnum þar sem Knuckles var fastasnúður. „Tears“ var unnið með Satoshie Tomiie árið 1989 að ég held og í vókal útgáfunni sem við heyrum hér er það rödd house tónlistar, Robert Owens, sem að þenur raddböndin.

.


Plez – I Can’t Stop
Þekki ekki mikið til Plez en „I Can’t Stop“ er algert killer lag, var meðal annars að finna á Ame Fabric disknum sem kom út í fyrra enda hljómar þetta eins og þetta gæti verið að koma út í dag.
.


Mr. Fingers – Beyond the Clouds

Í hverri einustu upptalningu af klassískum house lögum má finna „Can You Feel It“ með Mr. Fingers, enda á maður það orðið í 15 mismunandi útgáfum á 30 mismunandi safnskífum. Larry Heard e.þ.s. Mr. Fingers hefur þó gert óteljandi aðra klassíkera í gegnum tíðina og „Beyond the Clouds“ er einn þeirra, ljúfur og svífandi acid fílingur í gangi.

.


JM Silk – Music Is The Key
Smellum hér inn einu hip house lagi enn eins og nafnið bendir til var hip house tilraun til þess að blanda saman hip hop og house tónlist, þetta var skammlíft trend sem þó hafði mikil áhrif á eurodance dót næstu ára/áratuga. Sum þessara laga eru þó stórskemmtileg og ekki síst vókalarnir, finnur t.a.m. varla betri línu en „I am a dj man / and Music is my plan“ eins og er sönglað hér í upphafi.

.


KC Flightt – Let’s get Jazzy
Smá jack fílingur í gangi hér, fáránlega góð bassalína og voxarnir og percussionið í kring er gott partý.

Svona mætti auðvitað lengi telja og væri gaman að fá fleiri linka í athugasemdir. En ef þið viljið tjútta við svona stöff sjáumst við vonandi á Kaffibarnum á morgun.