Rakst á skemmtilegt internetfyrirbæri um helgina, hið svokallaða Soundamus. Þessi vefsíða tekur upplýsingar af tónlistartengdum samfélagsvefjum (eins og t.d. last.fm eða iLike) og tengir þær við væntanlegar útgáfur. Útfrá áhugasviði þínu bendir Soundamus þér á plötur og geisladiska sem eru að koma út á næstunni og eru líklegar til að falla þér að skapi. Þú getur svo gerst áskrifandi af rss feedi af herlegheitunum og þannig fylgst með því hvað ratar í plötuverslanirnar á næstunni.
Hér getur að líta feedið sem smíðað var úr mínum prófílupplýsingum af last.fm. Sýnist þetta vera nokkuð nærri lagi, skemmtileg blanda af underground dóti og meira mainstream útgáfum. Getur verið skemmtileg leið til þess að fylgjast með nýrri og væntanlegri músík.
Svo er kannski rétt að benda á dansidans.com last.fm grúppuna sem við stofnuðum nýverið, endilega gangið í hana ef þið notist við Last.fm.